Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1920, Blaðsíða 15

Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1920, Blaðsíða 15
157* 1913 hug aö geta hans sjerstaklega, af því, að jeg hefi ekki áður sjeö mastitis á fullorSnum, nema eftir barnsfæSing. Hún hafSi um leiS og á undan smá- graftarbólur í andliti, conjunctivitis phlychænul. og keratitis, og hefir ef- laust flutt þaSan veikina i brjóstiS — meS nöglunum. Slys voru ekki tíS nje stórfeld. Eitt liShlaup. Þrjú beinbrot á viSbein- um, öll á börnum innan viS 8 ár, öll bundin meS heftiplástursumbúSum, er gefast mjer vel á börnum. Corpora alien., sem talin eru upp aS framan, eru öll smávægileg (korn, flísar, matbaun, er barn tróS upp í nefiS). Sárin öll smávægileg, nema tvö, annaS á 8 ára gömlum dreng, er hleypur á gaddavírsgirSing og sker eSa rífur alveg sundur efri vörina öSru meg- in, út í kinn. Grætt án lýta, meS því aS sauma vandlega saman bæSi húS og slímhúS. SkotsáriS var á færeyskum sjómanni, er var fluttur hingaS til lækningar. Vísifingurinn var rifinn og tættur (I. phal. mulinn sundur) og lófinn talsvert rifinn. SlysiS varS á þan hátt, aS hann dregur aS sjer byssuna hlaSna og heldur um hlaupiS þannig, aS vísifingurinn er fyrir byssukjaftinum. Mun bógurinn hafa gripiS í eitthvaS sem fyrir honum varS, dregist upp dálítiS og sprengt svo, er hann slapp af aftur. Helstu handlæknisaðgerÖir á árinu voru: TekiS burt leg út um legganginn, vegna gamallar inversio uteri, er ekki varS lagfærS; er nefnd í skýrslu rninni frá árinu næst á undan, en aS- gerSin var gerS í byrjun þessa árs. Laparotomia, vegna appendicitis-ígerSar. SkurSurinn gerSur á 10. degi veikinnar og gekk vel. Thoracotomia meS resectio costæ, vegna plevritis purulenta, á barni á 2. árinu, sem nú er orSiS heilbrigt, án fistils. Fjórum sinnum skoriS burt æxli. Eitt var fibrom (polyp. x hársverSin- urn á 13 ára gömlum dreng), annaS ,,kímgangs“-æxli viS barkann á full- orönum karlmanni; í þriSja sinniS skorin 5 atherom úr höfSi á karlmanni á sextugsaldrinum, og í fjórSa sinniS kirtilkrabbamein á sjötugum manni (submaxillar.), þeim sama er jeg skar krabbamein úr vör á, áriS áSur (sbr. aSalskýrsluna 1912). Þá var ekki merkjanleg kirtilbólga, en nú var komiS mein á stærS viS barnshnefa, en ekkert athugavert viS vararsáriS.* Einu sinni gerS óblóSug víkkun á legopi og leghálsi og skafið innan legiS vegna endometritis chronica. SaumuS varar- og kinn-rifan, sem áSur er getiS um. SaumuS saman mikil ruptura perinaei, ný, eftir barnsburS. Tvisvar opnuS fingur-sinarskeiSin frá gómi upp í lófa, vegna sina- skeiSar-ígerSar. Fjórum sinnum skornar djúpar ígerSir, tvær frá periostitis maxill. infer., ein djúpt i hnjesbót og læri. og ein í gl. parotis. Þessi var á 25 ára görnl um karlmanni, heilbrigSum, og enginn sjúkdómur farinn á undan. Ein amputatio á fingri, vegna skotsársins, sem minst er á áSur. í sambandi viS þennan kafla, dettur mjer í hug aS geta þess, aS jeg hef skoSaö kvenmanninn, sern jeg skar voriS 1912, vegna krabbameins í brjósti (aSgerSinni er lýst í aðalskýrslu minni 1912), og er enginn vottur um recidiv (liSin nærri því 2 ár). — * MeiniS undir kjálkanum tók sig upp aftur eftir nokkra mánuði, og sjúkling- urinn er nú dáinn.

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.