Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.01.1997, Page 3

Bæjarins besta - 29.01.1997, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 3 Verslun Björns Guðmundssonar við Silfurgötu 1 á Ísafirði skiptir um eigendur á laugardag. Fyrrum rekstraraðilar verslunar Björns Guðmundssonar. Frá vinstri: Garðar Guðmundsson, Jónína Jakobsdóttir, Björn Garðarsson, Atli Garðarsson og Jakob Falur Garðarsson. að Smiðjugötu 10 hér í bæ, en árið 1904 flutti hann verslunina að Silfurgötu 1, þar sem hún hefur verið allar götur síðan. Verslunin hefur ávallt verið rekin af sömu fjölskyldu, og fyrir marga verið fastur punktur í tilverunni. En allt er breyt- ingum háð, og á jafn löngum tíma og raun ber vitni, hefur mannlífið tekið miklum stakkaskiptum og margt borið að, er ekki verður tíundað hér. Verslanir hafa komið og farið, en alltaf hefur Björnsbúð staðið við Silfurgötuna. Ekki stendur til að breyting verði þar á. út af hraðbrautinni, inn á rólegri veg.” Erfiðir tímar án breytinga Í framangreindri fréttatil- kynningu frá eigendum Björns- búðar segir að undanfarin ár hafi sú þróun verið áberandi í íslenskum fyrirtækjarekstri, að rekstrareiningarnar hafi verið að stækka og um leið hafi þeim fækkað, og hafi Ísafjörður ekki á neinn hátt verið undanskilinn í þeirri þróun, eins og komið hafi í ljós á breyttu eignarhaldi í ísfirskum fyrirtækjum undan- Í haust sem leið hætti Kaup- félag Ísfirðinga rekstri. Þá varð ljóst að tímabil langs stöðu- gleika í verslunarrekstri á Ísa- firði var lokið, að miklar breytingar í umhverfi matvöru- verslunar á Ísafirði væru í uppsiglingu. Jafnframt var ljóst að þeir einstaklingar er borið höfðu hitann og þungann af rekstri Björnsbúðar undanfarna áratugi, þeir bræður Aðalbjörn og Garðar Guðmundssynir og eiginkona Garðars, Jónína Jakobsdóttir, væru komin að þeim tímamótum í lífi sínu að tími væri kominn til að beygja farna mánuði. ,,Þessi þróun er að mörgu leyti jákvæð, og sýnir að fjárfestar og stjórnendur fyrirtækja hafa trú á atvinnu- rekstri og fjárfestingum hér á svæðinu. Þessi þróun snertir Verslun Björns Guðmundsson- ar ehf., jafnt og önnur fyrirtæki. Án nokkurs bakhjarls, líkt og ,,Þinnar verslunar” eða Búrs ehf., var ljóst að framundan væru að mörgu leyti erfiðari tímar. Það hefur því verið eigendum Björnsbúðar ljóst í nokkurn tíma að komið væri að tímamótum í rekstri versl- unarinnar. Að vel athuguðu máli, varð sú breyting, sem nú er að verða að veruleika, talinn besti kosturinn í stöðunni. Eigendur Björnsbúðar hafa notið þess í gegnum tíðina, að eiga stóran hóp viðskiptavina, sem haldið hafa tryggð við kaupmanninn sinn á horninu. Við tímamót þessi, er okkur, aðstandendum Björnsbúðar, efst í huga sérstakt þakklæti til allra okkar góðu viðskiptavina. En líkt og hverjum kaupmanni er nauðsyn að eiga góða við- skiptavini, er ekki síður nauð- synlegt að hafa á að skipa góðu starfsfólki. Björnsbúð hefur ávallt notið beggja. Því viljum við einnig þakka sérstaklega öllu því fólki sem hefur unnið fyrir verslunina í gegnum árin, og með því hjálpað til við að gera Björnsbúð að því sem Björnsbúð stendur fyrir í hugum fólks í dag. Kafla í sögu verslunarinnar við Silfurgötu 1 er lokið, en sagan er engan veginn öll. Verslun Björns Guðmunds- sonar ehf., óskar nýjum kaup- manni alls hins besta og væntir þess að verslun á þessum stað megi blómstra áfram á sama stað sem aldrei fyrr, og verða áfram fastur punktur í tilver- unni.” Ísafjarðarbær ,,Gjugg í bæ” í þrjá daga Dagana 7.-9. febrúar næstkomandi verður ,,Gjugg í bæ” helgi í Ísafjarðarbæ. Í tengslum við dagana verða veitingastaðir Ísafjarðarbæjar með fjölbreytt skemmtiatriði á boðstólum auk þess sem vestfirskur þorramatur verður í hávegum hafður. Föstudaginn 7. febrúar verður boðið upp á hlaðborð og dans í Vagninum á Flateyri, daginn eftir verður vestfirskt þorrablót á Hótel Ísafirði sem og smökkunarferð á vegum Vesturferða auk þess sem haldnir verða dansleikir í Sjallanum, Krúsinni og Á Eyrinni. Einnig verða veitingastaðir í Bolungarvík og Súðavík opnir fyrir gesti. Þorrablót Bolvíkingafélagsins í Reykjavík og nágrenni verður haldið í Víkingasal Hótels Loftleiða á laugardag. Þorrablótið á laugardag er það þriðja sem Bolvíkinga- félagið heldur. Um 250 manns mættu til síðasta þorrablóts og vonast stjórn félagsins til að enn fleiri mæti í ár. Þá vonast stjórn félagsins eftir því að íbúar í Bolungarvík sjái sér fært að mæta til blótsins. Formaður þorrablótsnefndar er María Guðmundsdóttir í síma 565 6593. Þorrablót í Víkingasal Bolvíkingafélagið og heldur uppi virku dreifineti flutninga á helstu þéttbýlisstöðum Vest- fjarða, svo sem á Bíldu- dal, Flateyri, Þingeyri, Patreksfirði, Tálknafirði og Ísafirði. Íslandsflug heldur uppi áætlunarflugi til tíu áætlunarstaða innan- lands, og styrkir byggðar- lög með flugi innan fjórðunga, svo sem milli Bíldudals, Flateyrar og Ísafjarðar og milli Hólma- víkur og Gjögurs. Einnig er ein flugvél félagsins staðsett næturlangt á Ísafirði, þar sem hún þjónar sjúkraflugi frá Vestfjörðum. Mikil aukn- ing hefur verið á fjölda farþega í leiguflugi, bæði innanlands og milli landa. Farþegum í leiguflugi innanlands hefur fjölgað um 31% og milli landa um 18,6%. Í dag rekur Íslandsflug fjórar skrúfuþotur, þar af er ein ATR-42, 46 sæta, einn Metro 19 sæta og tvær Dornier 19 sæta. Auk þess leigir félagið út eina Dornier flugvél til Svíþjóðar, þar sem hún flýgur áætlunarflug. Þá rekur félagið einn Bee- chraft King Air, 13 sæta og tvær Piper Chieftain 9 sæta, sem notaðar eru í leiguflug og sérverkefni eftir þörfum. Í apríl n.k. bætist við önnur ATR-42 flugvél, en Íslandsflug festi kaup á henni í lok síðasta árs. Flugvélin verður að öllu leyti eins og núver- andi vél félagsins. Nýja vélin verður notuð til þess að auka sætaframboð félagsins á áætlunarleið- um þess svo og í auknu leiguflugi. Íslandsflug flutti 53 þúsund farþega á árinu 1996 og hefur félagið aldrei flutt jafn marga farþega. Þetta samsvarar um 16% aukningu frá árinu áður, þegar félagið flutti 45.500 farþega. Hlutur áætlunarflugs er stærstur, eða 34 þúsund farþegar, sem er 8,5% aukning frá árinu 1995. Aukinn og bættur flug- vélakostur félagsins og aukin tíðni ferða til Vest- fjarða vega þar þungt, en félagið flýgur allt að þrjár ferðir á dag til Vestfjarða Aukin tíðni til Vest- fjarða vegur þungt Farþegaflutningar Íslandsflugs jukust um 16%

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.