Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.01.1997, Side 5

Bæjarins besta - 29.01.1997, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 5 Vestfirðir Vélsleða- slys á Súðavík- urhlíð Um kl. 13 s.l. mánudag var lögreglunni á Ísafirði tilkynnt um slys á Súða- víkurhlíðinni. Að sögn Önundar Jóns- sonar, yfirlögregluþjóns, var þarna um að ræða vél- sleðamann sem fór út af veginum og endaði í fjör- unni en vélsleðinn nam ekki staðar fyrr en í fjöruborðinu. Maðurinn, sem komst af sjálfsdáðum upp á veginn og gat gert vart við sig, var fluttur með sjúkrabíl á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísa- firði þar sem hugað var að meiðslum hans en hann kvartaði yfir verkjum í baki. Önundi virtist sem aldrei væri ofbrýnt fyrir ökumönn- um að haga akstri eftir aðstæðum því talsvert hefði borið á að menn færu ógæti- lega, ekki síst í slæma veðr- inu sem var seinni part síð- ustu viku. Andlát Sigfús B. Valdimarsson, kristniboði hjá Hvítasunnu- kirkjunni Salem á Ísafirði, lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Ísafirði að kvöldi 22. janúar. Sigfús fæddist 5. desember 1911 að Ey- jólfsstöðum í Vatnsdal í Húnavatnssýslu og var því á 86. aldursári er hann lést. Framan af ævinni stund- aði Sigfús sjómennsku og síðar almenn verkamanna- störf. Hann var einn af stofnendum Hvítasunnu- safnaðarins Salem á Ísa- firði, en söfnuðurinn fagn- aði 50 ára afmæli sínu á síðasta ári. Eftirlifandi eig- inkona Sigfúsar er Guð- björg Þorsteinsdóttir. Þau eignuðust fimm börn sem öll eru uppkomin. Útför Sigfúsar B. Valdi- marssonar verður gerð frá Ísafjarðarkirkju, laugar- daginn 1. febrúar nk., kl. 14:00. Sigfús B. Valdimarsson Sigfús B. Valdimarsson. Vöruval fagnar 10 ára afmæli sínu á laugardag Höfum getað boðið upp á hagkvæman verslunarmáta Fyrirtækið Vöruval hf. er 10 ára um þessar mundir en það var stofnað 1. febrúar 1987. Að sögn Benedikts Kristjáns- sonar, kaupmanns, verður mik- ið um dýrðir í tilefni afmælisins og m.a. fjöldinn allur af af- mælistilboðum á ýmsum vöru- tegundum. Á fimmtudag, föstudag og laugardag mun viðskiptavinum Vöruvals- verslanana verða boðið að þiggja kaffi og tertur og jafn- framt mun Vöruval opna nýja verslun að Silfurgötu 1, en eins og greint er frá á öðrum stað í blaðinu hefur Vöruval tekið við rekstri Björnsbúðar á Ísafirði. „Við sem rekstraraðilar opnuðum verslunina á Skeiði 1. febrúar 1987 en ég hafði í 14 ár þar á undan starfað hjá Einari Guðfinnssyni í Bolungarvík sem kjötiðnaðarmaður og var farinn að hugsa mér til hreyf- ings. Ég var reyndar versl- unarstjóri hjá Heiðari Sigurðs- syni í tvö ár, frá 1. ágúst 1985, en hann rak þá verslunina Vöruval. Verslunin hefur vaxið Benedikt Kristjánsson, kaupmaður í Vöruvali. og dafnað jafnt og þétt á þessum árum og hefur staðið að ýmsum nýjungum. Árið 1990 var Vöruval t.d. ein af fyrstu verslunum í landinu til að taka upp strikamerkinga- kerfi og hefur síðan verið nokk- uð leiðandi í því kerfi sem nú er komið í flestar verslanir. Við opnuðum síðan Vöruval í Hnífsdal 24. apríl 1993 en þar hafði verslunin Búð verið áður. Við endurnýjuðum þá verslun alla á síðasta ári, skiptum um tæki og innréttingar og stækk- uðum húsnæðið nokkuð. Það var síðan 7. desember 1993 að við tókum við rekstri VEG í Bolungarvík og stofnuðum við þar sérstakt fyrirtæki sem heitir Vöruval Bolungarvík hf. Svona hefur sem sagt eitt leitt af öðru á þessum 10 árum en starfs- menn Vöruvals, í öllum versl- ununum, eru í dag um 30 tals- ins. Árið 1991 byrjuðum við milliliðalausan innflutning á mat- og nýlenduvörum frá Danmörku og við vorum einnig einir af stofnendum verslunarkeðjunnar „Þín verslun“, en markmið hennar var að ná fram hagræðingu með betri samningum við birgja sem aftur hefur orðið til hagsbóta fyrir viðskiptavini í formi lækkaðs vöruverðs. Með þessu höfum við getað boðið okkar viðskiptavinum upp á hagkvæman verslunarmáta og brugðist við samkeppni sem í mínum huga kemur ekki síður frá Reykjavík en frá svæðinu hérna,“ sagði Benedikt. Ísafjörður Bílvelta á Skut- ulsfjarðarbraut Eldri maður varð fyrir því óláni að missa stjórn á bifreið sinni á Skutulsfjarðarbraut í síðustu viku og endaði hún á hvolfi utan vegar. Maðurinn, sem var einn í bílnum, rotaðist við veltuna en ekki var um alvarleg meiðsl að ræða. Einhverjar skemmdir urðu á bifreiðinni en samt minni en efni stóðu til. Talsverð hálka og él var þegar slysið átti sér stað. Héraðskólinn í Reykjanesi Tilboð í húseignir Héraðs- skólans í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp voru opnuð 16. janúar s.l. Átta kauptilboð og tvö leigutilboð bárust í eign- irnar og hljóðuðu kauptilboðin frá 3 milljónum upp í 18 milljónir króna. Leigutilboðin voru frá tveimur hópum hér vestra sem tengst hafa ferða- þjónustu og var Áslaug Al- freðsdóttir, hótelstjóri á Hótel Ísafirði, í forsvari fyrir annan hópinn en Margrét Karlsdóttir, sem rekið hefur sumarhús í Hæsta tilboð 18 milljónir Hveravík í Ísafjarðardjúpi, fyrir hinn. Hæsta kauptilboðið, sem var kaupleigutilboð, var frá Gunnari Þór Árnasyni og Gunnlaugu Kristjánsdóttur í Reykjavík. Ekki er búið að taka ákvörðun um hvaða tilboði verður tekið en fastlega er gert ráð fyrir að það verði hæsta boð sem eins og áður sagði var upp á 18 milljónir króna. Þess má geta að fasteignamat hús- eignanna mun vera um 60 milljónir króna. Héraðsskólinn í Reykjanesi.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.