Bæjarins besta - 29.01.1997, Page 16
Nýr
varalitur
frá Helena
Rubinstein
Tilboð!
Champagne
ilmur frá Yves
Saint Laurent Bæjarins besta
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 170 m/vsk
Fauk fram af Óshlíð og endaði á hvolfi í fjöruborðinu
Beltin og Guð
björguðu mér
segir Valdimar Lúðvík Gíslason, sérleyfishafi
á leiðinni milli Ísafjarðar og Bolungarvík, sem
lenti í þeirri óskemmtilegu lífreynslu á fimmtu-
dag í síðustu viku að fjúka með bifreið sinni 30-
40 metra niður snarbratta Óshlíð
Bifreið Valdimars Lúðvíks í fjöruborðinu við Óshlíð. Eins og sjá má er bifreiðin ónýt og kraftaverk að ökumaður skyldi ekki
hljóta meiri meiðsl en raun ber vitni. Valdimar Lúðvík Gíslason er á innfelldu myndinni.
,,Ég var í Seljadalnum, á
svipuðum slóðum og vindurinn
hafði feykt tveimur öðrum
bifreiðum stuttu áður. Það var
fljúgandi hálka og miklir
sviptivindar og því var ég búinn
að snúa við og ætlaði aftur til
baka. Ég mætti bíl og þurfti
því að fara aðeins utar á
veginum. Ég náði ekki bílnum
á réttan vegarhelming og á
sama augnabliki kom mikil
vindhviða og náðast feykti
bílnum fram af veginum,”
sagði Valdimar Lúðvík Gísla-
son, sérleyfishafi á leiðinni
milli Ísafjarðar og Bolungar-
víkur, en hann lenti í þeirri ó-
hugnalegu lífsreynslu rétt eftir
kl. 13 á fimmtudag í síðustu
viku, að bifreið hans fauk út af
veginum um Óshlíð og stöðv-
aðist ekki fyrr en í fjöruborð-
inu, um 30-40 metrum fyrir
neðan veginn. Bifreið Valdi-
mars Lúðvíks sem er af Toyota
HiAce gerð er gjörónýt. Hann
slapp sjálfur með skrámur og
mar.
,,Bílinn fór eina eða tvær
veltur og stöðvaðist á hvolfi.
Þetta var skrýtin tilfinning enda
hef ég aldrei lent í neinu slíku
áður og er þó búinn að aka um
veginn í 33 ár. Ég hef fram til
þessa verið mjög lánsamur á
Óshlíðinni. Ég held að beltin
og Guð almáttugur hafi orðið
mér til bjargar,” sagði Valdi-
mar Lúðvík. Eftir að bifreið
arvík um þessar mundir.
,,Ég er með skrámur og er
mjög aumur eftir beltin. Þau
tóku mikið á og hafa eflaust
bjargað lífi mínu. Þetta var
óskemmtileg lífsreynsla, með
því óhuggulegra sem maður
getur lent í. Ég hef ekið
Óshlíðina áður í miklu hvass-
viðri, en aðstæðurnar voru
slæmar í dag, hvasst og mikil
hálka. Vegurinn hallar fram á
vegbrún í stað þess að halla að
fjallinu og því fór sem fór. Það
má kannski segja það eftir á,
að vanir menn eins og ég eigi
ekki að gera svona hluti en það
er alltaf gott að vera vitur eftir
á,” sagði Valdimar Lúðvík
Gíslason í samtali við blaðið.
Tvær aðrar bifreiðar fuku til
á Óshlíð á fimmtudag í síðustu
viku og vó önnur þeirra salt á
vegarbrún en hin stöðvaðist
utan vegar nær fjallshlíðinni.
Sama dag fauk bifreið út af
Hnífsdalsvegi, við Leiti í
Hnífsdal og á föstudag fauk
bifreið út af Óshlíðarvegi, á
svipuðum slóðum og bifreið
Valdimars Lúðvíks. Bifreiðin
stöðvaðist niður í fjöru og er
talin mikið skemmd. Ökumað-
ur hennar slapp án teljandi
meiðsla.
hans stöðvaðist á hvolfi í fjöru-
borðinu, náði Valdimar Lúðvík
að komast út úr henni en það
tók nokkurn tíma þar sem hún
var illa farin. Hann kraflaði
sig upp á veginn og stuttu síðar
kom þar að önnur bifreið.
Ökumaður hennar ók Valdi-
mar Lúðvík að heilsugæslu-
stöðinni í Bolungarvík þar sem
hjúkrunarkona hlynnti að hon-
um, en læknislaust er í Bolung-
Strætisvagn ók inn í hús í Hnífsdal
Mildi að engan sakaði
Mikil mildi var að ekki urðu
slys á fólki er vagn frá Strætis-
vögnum Ísafjarðar fór út af veg-
inum við Hreggnasa í Hnífsdal
um kl. 9 á fimmtudag í síðustu
viku og hafnaði inni í íbúðar-
húsi. Miklar skemmdir urðu á
vagninum sem og á húsinu, en
það var talið óíbúðarhæft eftir
óhappið. Ökumaðurinn strætis-
vagnsins var einn í bifreiðinni
og sakaði hann ekki. Ung kona
með þriggja ára son sinn var á
efri hæð hússins og sakaði þau
ekki.
Vagninn var að koma frá
Ísafirði og virðist sem hann
hafi fokið út af veginum í hálku
og hafnað á íbúðarhúsinu við
Hreggnasa 3, sem er þriggja
hæða timburhús. Framendi
strætisvagnsins lenti inni í
eldhúsi og urðu miklar
skemmdir á því sem og á lofti
eldhússins, en þar fyrir ofan er
svefnherbergi húsráðenda. Þá
urðu nokkrar skemmdir á
ofnakerfi hússins. María Dröfn
Erlendsdóttir var í svefnher-
berginu ásamt syni sínum þegar
Strætisvagninn fauk út af veginum við Hreggnasa og stöðvaðist inni í eldhúsi á þessu þriggja
hæða timburhúsi.
Bifreið þessi skemmdist nokkuð er hún fauk á stæðinu við
Bakka í Hnífsdal.
óhappið var. Hún var uppi í
rúmi þegar hún heyrði í mikilli
vindhviðu. Í sömu andrá heyrð-
ist mikill dynkur og brothljóð
frá neðri hæðinni og hraðaði
hún sér því þangað. Þar blasti
við henni strætisvagn í eldhús-
inu.
Starfsstúlkur hjá Bakka hf.,
í Hnífsdal komu ökumanni
strætisvagnsins til hjálpar og
komu honum í húsaskjól. Mjög
hvasst var í Hnífsdal þennan
morgun, sunnan 8-10 vindstig,
en sunnan og suðvestan áttir
geta verið mjög sterkar í
Hnífsdal þar sem vindurinn
slær niður dalinn. Bifreiðar sem
stóðu við Bakka hf., fuku til í
verstu hviðunum og urðu
nokkrar skemmdir á þeim. Þá
fauk hluti af glerhúsi við
Strandgötu í Hnífsdal. Þann 15.
janúar á síðasta ári ók sami
strætisvagn inn í hús við Sund-
stræti á Ísafirði.
Um kl. 13 sama dag, fuku
síðan tvær bifreiðar á veginum
um Óshlíð. Önnur þeirra stöðv-
aðist á vegarbrún við Seljaldal
og vó þar salt. Um þrjátíu metra
snarbrött hlíð er þar niður í sjó.
Hin bifreiðin stöðvaðist fyrir
ofan veginn. Engin slys urðu á
fólki.
Eins og sjá má urðu miklar skemmdir á eldhúsinu.
f l
i i