Víkingsblaðið - 01.04.1933, Qupperneq 6
6
VIKINGSBLAÐIÐ
Formenn Víkings
Axel Andrésson.
Óskar Norðmann.
Þegar félagið var stofnað — 21. apríl 1908
— var Axel Andrésson kjörinn formaðnr þess
og' gegndi því starfi fram til ársins 1924, þeg-
ar hann sökum burtfarar úr Heykjavik varð
að segja því lausu. 1 16 ár samfleytt var hann
því formaður félagsins. Árin 1930—’32 var
Axel aftur formaður þess. Formannsstarfann
leysti Axel svo vel af hendi, að ekki verður
betur á kosið. Hann var jafnan vakinn og sof-
inn yfir heill félagsins og velferð.
Óteljandi eru þær stundir, sem Axel hefir
fórnað „Viking“ og ógleymanlegt verður því
okkur í félaginu allt það mikla og góða starf
er hann liefir unnið í þess þágu. Jafnframt því
sem Axel var formaður félagsins var hann og
þjálfari þess. Var hann ágætlega til þess starfaj
fallinn, því um leið og hann har manna bezt
skyn á knattspyrnu,hafði hann sérstaklega goll
lag á því að halda uppi röð og reglu á æfing-
um, og var sýnt um að notfæra sem bezt þá
krafta, sem félagið hafði á að skipa á hverj-
um tíma. Um árangurin af starfi Axels þau ár
sem hann var formaður og þjálfari félagsins
ætla ég ekki að fjölyrða hér. Það verður gert
á öðrum stað í blaðinu. Aðeins vil ég taka það
fram, að á þeim árum hlaut „Vikingur“ marga
og glæsilega sigra og sjersatklega gat félagið
sér orð fyrir lipran og prúðan leik.
Knattspyrnudómari hefir Axel verið í lengri
tíð og' getið sér þar ágætan orðstir. Þegar
skotsku knattspyrnumennirnir voru hér uppi
sumarið 1928, rómuðu þeir mjög leikni Ax-
els sem dómara og létu um leið svo um mælt,
að hann gæfi ekkert eftir þeim erlendu dóm-
urum, er þeir þekktu til. Arið 1928 var Axel
kjörinn heiðursfélagi í Víking.
Nú á þessum tímamótum Víkings færa all-
ir félagsmenn Axel sínar innilegustu þakkir
fyrir lians mikla og óeigingjarna starf í þágu
félagsins og óska þess, að liann eigi eftir að
sjá Víkingana sína sem oftast sigra eins glæsi-
lega og þeir svo oft og tíðum g'erðu undir
stjórn hans. Eg veit að engum yrði meira
gleðiefni en Axel, að slíkt geti orðið og vona
eg að allir Víkingar starfi nú að því sem bezt
þeir mega, að upp megi megi renna sem fyrst
sigurs- og blómaöld i félaginu.
Það var engin tilviljun að Óskcir Norðmann
varð eftirmaður Axels 1924 (—26), því öll-
um félagsmönnum kom saman um það, að
honum væri hezt treystandi til þess að skipa
hið vandfyllta formannssæti. Þessu trausti
brást Óskar ekki lieldur. Hann gegndi starf-
anum með sama dugnaðinum og sömu lipurð-
inni sem hann jafnan sýndi á sjálfum knatt-
spyrnuvellinum. En eins og mönnum er kunn-
ugt, þá var Óskar einn af ágætustu knatt-
spyrnumönnum þessa lands.
Magnús .1. Brynjólfssen.
Helgi Ejrríksson