Bæjarins besta - 04.06.1997, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997 5
Uppsagnir hjá Vöruvali
Áherslubreyt-
ingar í rekstri
Vöruvalsverslananna
segir Benedikt Kristjánsson, sem ætlar að
hætta rekstri kjötvinnslu í Bolungarvík og taka
verslunarrekstur í Hnífsdal til endurskoðunar Benedikt Kristjánsson, kaupmaður í Vöruvali.
Starfssamningi starfsmanns
verslunarinnar Vöruvals í
Hnífsdal hefur verið sagt upp,
en Benedikt Kristjánsson,
eigandi Vöruvalsbúðanna,
sagði í samtali við blaðið að
ástæðan væri mikill samdráttur
í versluninni þar.
Íbúum hefur fækkað
gífurlega
„Það hefur ekki verið tekin
nein ákvörðun um að loka
versluninni í Hnífsdal. Við
erum skuldbundin starfsmann-
inum samkvæmt samningnum
og sögðum honum upp til að
geta haft frjálsar hendur við
endurskipulagningu eða að
hætta rekstri ef til þess kemur.
Því er ekki að leyna að það
hefur orðið verulegur samdrátt-
ur í Hnífsdal. Skýringin er fyrst
og fremst sú, að íbúum þar
hefur fækkað gífurlega, eða um
þriðjung eftir því sem mér er
sagt. Öll húsin á snjóflóða-
hættusvæðinu standa tóm en
sennilega hafa íbúar þeirra
verið á bilinu 40-60. Við þetta
bætist að atvinnulíf í Hnífsdal
er og hefur verið gjörsamlega
lamað vegna verkfallsins. Fólk
sem unnið hefur í fyrirtækj-
unum þar hefur auðvitað átt
viðskipti við verslunina og það
er alveg ljóst að við þolum
ekki þann samdrátt sem orðið
hefur vegna verkfallsins. Þess
vegna verðum við að grípa til
ráðstafana til að bregðast við
þessu ástandi,“ sagði Benedikt.
Hann sagðist ekki á þessari
stundu vita í hverju þær ráð-
stafanir yrðu fólgnar, en jafnvel
gæti komið til greina að skerða
þjónustuna. Eins og staðan væri
í dag væri hann þó svartsýnn á
að af áframhaldandi rekstri gæti
orðið. Hann sagði að hann
myndi bregðast jákvætt við
aðilum sem sýna yfirtöku á
rekstrinum áhuga.
Einnig samdráttur
í Bolungarvík
Í verslun Vöruvals í Bolung-
arvík hefur starfssamningi
kjötiðnaðarmanns, sem jafn-
framt er verslunarstjóri, verið
sagt upp ásamt samningi annars
starfsmanns, en þessir tveir
starfsmenn eru þeir einu sem
eru fastráðnir. Benedikt sagði
ástæðuna þá sömu og í Hnífs-
dal, eða samdrátt. Hann hyggst
hætta rekstri kjötvinnslu í
Bolungarvík og taka upp svo-
kallað „freepack“, eða sölu á
kjötvörum í lofttæmdum um-
búðum. Hann var spurður um
ástæður samdráttarins.
„Verslun Vöruvals á Ísafirði
hefur staðið undir kostnaði, en
það sama er ekki hægt að segja
um verslunina í Bolungarvík.
Ég hef verið mjög ósáttur við
útkomuna þar, en það var tap á
rekstrinum á síðasta ári. Þegar
við tókum við rekstrinum á
Verslun Einars Guðfinnssonar
árið 1993, þá voru íbúar Bol-
ungarvíkur um 1300. Í dag eru
íbúarnir rúmlega 1100 og þar
af eru útlendingar nærri 100.
Ég er ekki að hnýta neitt í þetta
ágæta fólk, en staðreyndin er
sú að virðisaukinn sem það er
að skilja eftir sig í bæjarfél-
aginu er sáralítill. Mér er sagt
að þetta fólk fái senda alla
nauðsynjavöru frá heimalönd-
um sínum. Ef það er rétt, þá
skil ég ekki hvernig í ósköp-
unum er hægt að flytja inn til
landsins allar þær vörur sem
þarf til daglegs lífs. Af öllum
vörum sem við flytjum inn
erlendis frá, þurfum við að
greiða tolla, vörugjöld og
virðisaukaskatt. Það segir sig
einnig sjálft að 200 manna
fækkun í Bolungarvík kemur
niður á viðskiptunum.“
Sníða þarf stakk
eftir vexti
Benedikt segir að fólk verði
að gera það upp við sig hvort
það vill hafa þjónustuna við
húsdyrnar hjá sér, eða hvort
það vill fá alla hluti, stóra sem
smáa, í póstkröfu frá Reykja-
vík. Einnig verði að vera hægt
að halda uppi atvinnu ef Vest-
firðir eigi að vera byggilegir.
Til að svo megi verða megi
vinnudeilur ekki dragast svo á
langinn sem raun beri vitni um.
Verkfallið lami ekki bara
fiskvinnsluna, heldur öll þjón-
ustufyrirtæki í fjórðungnum,
sem megi ekki við því.
Benedikt segir að talsvert sé
um að fólk í verkfalli hringi til
að óska eftir reikningsviðskipt-
um. Hann hafi yfirleitt reynt
að bregðast jákvætt við, en ljóst
sé að verslunin standi ekki
undir lánsviðskiptum og þá
sérstaklega ekki ef verkfallið
dregst á langinn. Reiknings-
viðskipti hafi verið viðvarandi,
en þeim verður hætt 1. júlí,
segir Benedikt.
Að sögn Benedikts hefur
rekstur Björnsbúðar staðið
undir væntingum hans það sem
af er og eins og áður sagði
stendur verslunin á Skeiði undir
kostnaði. Benedikt hefur þó
ekki ráðið í tvær stöður sem
losnað hafa þar og hefur að
auki sagt upp einum starfs-
manni. Fyrisjáanlegt er því að
starfsfólki verslananna hafi
fækkað um sex fyrir haustið,
þ.e.a.s. ef uppsagnirnar ná fram
að ganga.
- En er Benedikt að íhuga að
hætta rekstri verslananna?
„Nei, ég er ekki að hætta
rekstrinum, en ég verð að vera
meðvitaður um hvar ég stend.
Ég hef haft mjög gaman af
þessu. Við erum að sjá 35
manns fyrir vinnu í þessum
verslunum og okkur hefur
gengið alveg þokkalega. Maður
áttar sig hins vegar á því að
sníða þarf stakk eftir vexti. Það
er eðlilegt að maður staldri við
af og til og hugsi sinn gang og
jafnfram að maður sé ávallt
mjög vel meðvitaður um nauð-
syn þess að stunda innbyrðis
naflaskoðun.“
Neytendasamtökin vinna
ekki á faglegan hátt
Benedikt segir að því sé ekki
að leyna að stundum sé hann
mjög ósáttur við umfjöllun um
verðkannanir og finnst ótækt
hvernig neytendasamtökin
standa að þeim. Hann tekur
sem dæmi síðustu könnun.
„Þar voru bornar saman litlar
landbyggðarverslanir og Bónus
í Reykjavík, en svona vinnu-
brögð eru ekkert annað en aðför
að verslun á landsbyggðinni. Í
umfjöllun um könnunina hjá
fjölmiðlum hérna á staðnum,
var samkeppnisaðilum okkar
hyglað og hampað og það er
alveg ljóst að það hefur áhrif á
okkur. Ég hef bent á að niður-
staða verðkönnunarinnar er
röng og umfjöllun um hana er
Neytendasamtökunum til van-
sa.
Ég fer nánast vikulega í
Samkaup á Ísafirði til að gera
verðkönnun þar. Ég hef borið
saman verð á þeim vörum sem
fást á báðum stöðunum og hef
ekki orðið var við að þar sé
vöruverðið lægra en hjá okkur.
Vöruúrvalið þar er langtum
minna en það sem við bjóðum
upp á og þess vegna er eðlilegt
að maður spyrji sig að því,
hvort við verðtökuna séu verð
á þeim vörum sem ekki fást í
Samkaup á Ísafirði, tekin í
Samkaup í Hafnarfirði eða
Keflavík og þau síðan borin
saman við verð í Vöruvali á
Ísafirði. Það var gengið frá
samkomulagi við Neytenda-
samtökin um að verðtaka færi
samtímis fram í öllum versl-
unum til að tryggja að samtökin
ynnu faglega, en það hafa þau
að mínu mati ekki gert.“
Gengur ekki að
samkeppnisaðilum sé
mismunað
Benedikt segir að það gangi
ekki að öðrum aðilanum sé gert
hærra undir höfði en hinum í
fjölmiðlum hérna á svæðinu
og sérstaklega ekki þegar
forsendurnar fyrir því eru
rangar.
„Þegar stórar fyrirsagnir
greina frá því að annar sam-
keppnisaðilinn hafi haft þau
áhrif með tilkomu sinni, að hér
sé búsældarlegra og byggi-
legra, þá spyr maður sig auð-
vitað: hvað er maður að gera
hérna? Ég hef lýst því yfir
margoft að samkeppni sé af
hinu góða, en það gengur ekki
að aðilum sé mismunað í
fjölmiðlum. Við þurfum líka
að hugsa til þess hvaða virðis-
auki verður eftir í byggðarlög-
unum af þeim fyrirtækjum sem
hér eru, sem eiga hér sitt lög-
heimili og greiða hér skatta og
skyldur. Ef við ætlum að búa
hér, þá verðum við hlúa að því
sem við eigum,“ sagði Bene-
dikt að lokum.
Ungviðið í Bolungarvík gekk rösklega fram í tunnuhlaupinu
þrátt fyrir misjafnan árangur.
Bolungarvík
Sjómannadagurinn
haldinn í blíðviðri
Dagskrá sjómanna-
dagsins í Bolungarvík var
með hefðbundnu sniði að
þessu sinni og fór fram í
bíðskaparveðri með
tilheyrandi sól og hlý-
indum. Fjöldi fólks var
samankominn við innri
höfnina þar sem kapp-
róður, tunnuhlaup,
stakkasund og kodda-
slagur var hápunktur
hátíðarhaldanna. Þar
gafst fólki einnig kostur á
að skoða hið nýja björg-
unarskip Slysavarna-
félagsins, Gunnar Friðriks-
son, sem fór um helgina í
fyrsta björgunarleiðangur
sinn norður í Aðalvík, þar
sem trilla slitnaði upp í
hvassviðrinu á laugardag.
Enginn er verri þótt hann
vökni.
Ýmsum ráðum var beitt í koddaslagnum og ekki öllum
drengilegum.