Nýtt land-frjáls þjóð - 16.05.1974, Page 5
NÝTT LAND
5
BORGARSTJORNAR-
Ný leiktjöM — Nýir leik-
endur — Gamait leikrit
Sjálfsagt verður þetta ár, ár-
ið 1974, sögulegt og eftirminni-
legt ár. Fyrir var vitað um 11
hundruð ára afmælisfagnað ís-
lenzku þjóðarinnar og sveitar-
stjórnarkosningarnar í landinu.
Þar við hafa þegar bæzt sögu-
legir atburðir: Þingrof og nýj-
ar kosningar.
Fyrirsjáanlegt er ,að næstu
vikur og mánuðir verða spenn-
andi, þótt vitað sé um dóm
sögunnar og afleiðingarnar fyr-
ir þcgna þessa lands.
Að þessu sinni verður vikið
að borgarstjórnarkosningunum
hér í Reykjavík, þótt Nýju
Iandi og flokki þeim er það
fylgir að málum, þyki og
miklu varða úrslit sveitarstjórn
arkosninga um allt land.
Ástæðan er sú, að í Reykja-
vik eru sveitarstjórnarkosning-
ar með alveg sérstökum hætti,
og verður vikið að því hér á
eftir.
Síðastliðin 60 ár eða þar um
bil, hefir sami flokkur farið
með öll völd í höfuðborginni.
befur þessi flokkur
haft nafnaskipti, hét áður í-
haldsflokkur, en nafnið þótti
• of hreinskilið — hægara að
fela hið rétta eðli undir öðru
fegurra nafni, nafni sem í raun
réttri er móðgun við þjóðina,
ef saga flokksins er skoðuð
nánar, en nafnið er SJÁLF-
STÆÐISFLOKKUR!
Á þeim tíma, er nafnbreyt-
ingin átti sér stað ,gekk aðal-
málgagn flokksins undir nafn-
inu: DANSKI MOGGI, og
þarf ekki skýringa við. Það út-
heimtir ekki mikið hugarflug
að skynja hvaða heiti þeir
hreinskilnu menn, sem völdu
Mogga þetta nafn, myndu
velja honum nú, ef þeir væru
uppi og í fullu fjöri.
En það, sem hér verður leit-
ast við að skýra, er það, hvern-
ig það má vera að þessum
flokki hefur tekist að halda
hér völdum í 60 ár.
Blekkingin mikla
Helzta slagorð flokksins hef-
ir frá upphafi verið: Flokkur
allra stétta — stétt með stétt.
Hin auðuga borgarastétt, sem
að helzta kjarna var kaup-
mannastéttin og atvinnurek-
endur, myndaði þennan flokk
til að gæta hagsmuna sinna í
þjóðfélaginu. Hún lagði hon-
um til starfsfé, mannafla og
skipulagningu og tvö dagblöð,
sem voru borin fyrst og fremst
uppi af auglýsingum, sem þess-
ir aðilar réðu yfir .
Lífsskoðun þessa fólks, að
peningar væru ekki aðeins afl
þeirra hluta ,sem gera skal,
heldur það eina sem eftir-
sóknarvert væri hér I þessu
lífi, var lífsregla sú er flokkur-
inn skyldi fylgja — á bak við
tjöldin. Framhliðin skyldi mál-
uð öðrum litum.
Erfitt reyndist þó lengi vel
að fá forystumenn flokksins,
menn eins og Jón Þorláksson
og Magnús Guðmundsson, til
að sýnast annað en þeir voru,
enda var fylgi flokksins byggt
upp af borgarastéttinni á gaml-
an og á hennar máta góðan
hátt.
Borgarastéttin varð smátt og
smátt hlutfallslega fámennari
eftir því sem tímar liðu, en
þeim mun auðugri, en atkvæða
aflaði hún flokknum með þeim
hætti ,að ekki þykir sómi að,
nú á dögum.
Þessar aðgerðir urðu smátt
og smátt úreltar, eftir því sem
öðrum stéttum óx fiskur um
hrygg, svo að aðrar nýtísku-
legri aðferðir voru innleiddar.
Og nú kom í góðar þarfir
sú fyrirhyggja, að hafa eflt
tvö dagblöð í höfuðborginni
með fjárframlögum, svo að
þau gætu veitt lesendum sínum
betri þjónustu á mörgum svið-
um en önnur, og þar með auk-
ið útbreiðslu sína umfram önn-
ur, er ekki nutu þessarar að-
stöðu.
Nazistar í Þýzkalandi höfðu
sýnt fram á þýðingu áróðurs-
ins — hvernig hægt var að
gera lygina að sannleika í aug-
um fólks, ef hún var nógu oft
sögð og nógu víða.
Atvinnukúgunin var nú ekki
eins áhrifamikil, en áróður
hinna fjársterku dagblaða
þeim mun umfangsmeiri og
árangursríkari.
Meira að segja blekkingin
mikla, flokkur allra stétta —
stétt með stétt, var að mestu
lögð til hliðar, en leiktjöld á-
róðursins gerð þeim mun lit-
ríkari, og þannig er það í dag.
„Kar man nogen
sinde set noget sá ungt“
Sú saga er sögð um hinn
mikla danska leikara, Poul
Reumert, sem allir íslendingar
kannast að sjálfsögðu við, að
hann lék á löngum, frábærum
leikferli sínum hlutverk, sem
spannaði æviferil manns, frá
unga aldri til efri ára.
Leikaranum reyndist auðvelt
að leika gamlan mann, þótt
ungur væri, en er hann sjálfur
eltist, varð það, að leika ungan
TIL STU
Frjálslyndi flokkurinn
hefur úr litlu fé að spila
eins og flokksmönnum
er mæta vel kunnugt
— enda forðast flokks-
stjórn að fjárfesta í
dýrri kosningabaráttu.
Þrátt fyrir það hrannast
upp ýmsir kostnaðar-
liðir vegna komandi
kosninga, og engin leið
er að brúa það bil án
þess að leita til flokks-
manna og annarra
velunnaa flokksins um
b'tilsháttar fjársuðning.
Flokkurinn hefur nú á-
kveðið að efna til
skyndihappdrættis til
fjáröflunar fyrir kosn-
ingasjóð, og er dreifing
happdrættismiða nú að
herjast.
Við munum senda
nokkra miða til hvers
§
flokksmanns svo og
nokkurra velunnara, en
einnig viljum við hvetja
aðra til að koma við
á flokksskrifstofunni
eða hringja til okkar, og
kaupa nokkra miða
eða taka til sölu.
Dregið verður í happ-
drættinu 18. júní —
og vinningur er glæsileg
haustferð fyrir tvö til
Majorka, á vegum
Orvals — og dvöl í
íbúð í 20 daga
Hér eru komnir gestir
„Har man nogen sinde set noget sá ungt?“
mann, þótt honum væru flestir
vegir færir.
Á efri árum varð hann því
að búast gerfi ungs manns og
eitt sinn er Reumert stóð fyrir
framan spegil sinn, ífærður líf-
stykki og öðrum tilfæringum,
er kringumstæðurnar kröfðust,
varð honum að orði: „Har
man nogen sinde set noget sá
ungt?“
Þótt það sé í rauninni móðg-
un við minningu hins frábæra
listamanns ,að nefna hann í
sömu andránni og hið eld-
gamla íhald hér í höfuðborg-
inni, þá eru tilburðirnir ekki
ósvipaðir. Einn mikill lista-
maður gerði að vísu grín að
mynd þeirri er hann sá í spegl-
inum, af sínum alkunna húm-
or; myndinni sem var ætluð
til að leikhúsgestir sæu hann í
öðru ljósi en hann raunveru-
lega var.
En íhaldið kemur fram fyr-
ir kjósendur í höfuðborginni
sem fyrr, í fúlustu alvöru, og
og sýnir Isleif borgarstjóra,
sem táknmynd fyrir hinn 60
ára gamla borgarstjórnarmeiri-
hluta og segir við kjósendur:
„Har man nogen sinde set nog-
et sá ungt“!!
Og svo er tjaldið dregið frá
og leiksýningin byrjar. Nýr
maður er í aðalhlutverkinu,
svo snoppufríður, að hann gef-
ur hinum fyrrverandi sjarmör-
um íhaldsins ekkert eftir —
þeim Gunnari Thor og Geir
Hallgrímssyni.
Síðan er statistunum stillt
upp og meðal þeirra er ein
kona sem á að segja stikkorð-
ið: Hér eru komnir gestir!!
Síðan hefst leiksýningin, en
leiktjöldin eru að þessu sinni
ný og máluð grænum litum.
Og áhorfendum er ætlað að
gefa gestunum meðlæti næstu
fjögur ár!
Fyrir leikritinu sjálfu verður
gerð grein í næsta blaði.
Frjálslyndi flokkurinn gengur nú til kosninga í
fyrsta skipti. Borgarstjórnarkosningar fara fram þ.
26. þ.m., og þá sést nokkuð hverju gengi Frjálslyndi
fiokkurinn á að fagna.
Þann 30. júní fara fram alþingiskosningar og þá
reynir á hvort þjóðin velur sér viðreisnarstjórn eða
stjórn félagshyggjufólks, stjórn frjálslyndis og fram-
fara. Eina leiðin til að tryggja slíka stjórn er að
tryggja Frjálslynda flokknum þá aðstöðu á Alþingi
að hann geti haft áhr'if og aðild að stjórn og úti-
lokað viðreisnarflokkana frá ríkisstjórn. Þetta næst
ekki nema með því að efla Frjálslynda flokkinn.
Framsóknarflokkurinn og Alþýðuöandalagið hafa
ekki möguleika á að auka þingstyrk sinn svo að
þeir nái meirihluta, enda ekki rétt. Aflið sem vantar
tU, er Frjálslyndi flokkurinn. Hannibalistar vildu
aldrei vinstri stjórn, nú hafa þeir sýnt sitt rétta andlit.
Þeir vilja samvinnu við Gylfa og íhaldið — viðreisn-
arstjórn.
Stuðningsmenn Frjálslynda flokksins um land allt,
hafið samband við skrifstofu flokksins í Reykjavík
eða forsvarsmenn flokksins í ykkar heimabyggð.
Takið strax til starfa. Bjóðum fram í öllum kjör-
dæmum, vinnum að stórsigri Frjálslynda flokksins.
xV