Nýtt land-frjáls þjóð - 21.06.1974, Síða 4

Nýtt land-frjáls þjóð - 21.06.1974, Síða 4
4 NÝTT LAND „Kreppu'Yáðstafanir nýrrar „viðreisnar": 40% gengislækkun — Nýtt láglau nakerf i! Fyrirætlanir Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum feimnismál fyrir kosniningar! Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn þegi vandlega um fyrirætlanir sínar í efnahagsmálum nú fyrir kosn- ingar, eins og fólk hefir sjálfsagt veitt athygli, hefir sitthvað kvisast út úr innsta ráði flokksins. Kunnugir menn þeim hnútum fullyrða, að ætlunin sé að koma á einskonar skyndikreppu, með viðeig- andi atvinnuleysi til að réttlæta aðgerðir, sem flokkn- um eru hugstæðar. Opinberar framkvæmdir verða skornar miskunn- arlaust niður, eða þeim slegið á frest. Við það munu hundruð eða þúsundir manna missa atvinnu. At- vinnuvegir þeir er flokkurinn ræður yfir, munu draga saman seglin. Vísitölukerfið mun verða endurskoðað með það fyrir augum að draga út úr því veigamikla neyzluvöruflokka og fyrirhuguð 40% gengislækkun verður ekki bætt launþegum. ísland verður á ný gert að láglaunalandi og svipu atvinnuleysis verður veifað yfir höfðum vinnandi fólks. Margír telja, að spjaldskrá sú, er „varið Iand" lét gera í tölvu, sé flokknum tiltæk, til saman- bmðar við eigin spjaldskrá. Gerðir séu síðan út kosninga- smalar til að tala við það fólk, sem er á þessari spjaldskrá, en ekki flokksins. Engin ráð séu síðan ónotuð til að hræða þetta fólk til að kjósa flokkinn, eða fá það til þess með öðrum hætti. Æðsta ráðið gerir að sjálf- sögðu ráð fyrir þeim möguleika, að ekki vinnist meirihluti með Alþýðuflokknum, en þá á að Jeita til hægri manna Framsókn- ar og nota hermálið til að fá þá til að reyna að knýja flokk- inn til samstarfs, eða þá hrein- lega kljúfa hann og fá hluta hans til að vinna með sjálfstæð- ismönnum. Þetta verður sjálfsagt erfitt, en nú skulu allar brýr brotnar og einskis látið ófreistað, því að hagsmunahóparnir í flokkn- um neita að styðja hann áfram, komist hann ekki í stjórn. Hvað um Alþýðuflokkinn? Þótt Alþýðuflokkurinn sé í niðurníðslu og eymd hans geti varla meiri orðið, ef haft er í huga, að hann telur sig vera jafnaðarmannaflokk, þá verður því varla trúað, að hann hætti tilveru sinni fyrir fullt og allt, með því að halda áfram þý- mennsku sinni við íhaldið. í flokknum eru sterk ; ., sem ekki munu una áframhaldandi þjónkun við Sjálfstæðisflokkinn. Gylfa mun ekki takast til fram- búðar, að teyma flokksmenn sína á asnaeyrum við hlíð <haldsins. Hann veit að dagar hans mimu þá senn taldir, sem for- manns flokksins og ráðherra- kandidat, en vel má vera að hann vilji tæma síðasta fullið til botns, áður en hann sezt í helgan stein. Til fyrrgreindra verka getur Alþýðuflokkurinn ekki gengið, nema að fremja raunverulegt sjálfsmorð. Til að koma í veg fyrir þetta herhlaup hagsmunahópanna í Sjálfstæðisflokknum, sem telja sig illa svikna, á hendur vinn- andi fólki og þjóðinni allri, verða kjósendur að átta sig á því hvað býr á bak við skrúð- mælgi, fögur loforð og falleg orð. „Sjálfstæðisstefnan" eins og hún þarf að líta út í augum kjósenda, þolir ekki að þeir geti skygnst á bak við. Þess vegna er þyrlað upp moldviðri um glundroða, „vinstri villu" og „vinstri siys". Hœgra slysið 1959 gerði ís- lenzku krónuna að skeinisblaði á 12 árum og skaðaði íslenzku þjóðina um milljónir kr. verð- mcetra vinnustunda í atvinnuleysi og verkföllum. Vilja kjósendur láta söguna endurtaka sig? — Tœplega. Ný „viðreisn“ Þetta eru meginatriðin í fyrir- ætlunum þeim, er nú er og verð- i)t vandlega haldið leyndum fram yfir kosningar. Viðreisnarflokkarnir hafa magnað ótta meðal fólks um yf- irvofandi háska í efnahagsmál- um, sem núverandi ríkisstjórn hafi búið til. Takist þeim að ná völdum, á miskunnarlaust að láta svip- tma ríða yfir landsfólkið oig kenna núverandi ríkisstjórn um allt saman. Miklir áhrifamenn í Sjálf- stæðisflokknum vilja gera nýja Hlaut NATOstyrk Einn íslendingur, Baldiur Guð- laugsson, lögfræðingur, sem lauk nú í vor meistaraprófi í alþjóða- stjórnmálum frá The Fletcher of Law and Diplomacy í Massa- chusetts í Bandaríkjunum, var meðal þeirra, er hlutu fræði- mannastyrki Atlantshafsbanda- lagsins við úthlutun fyrir há- skólaárið 1974 - 75. Hlaut hann styrk til að fjalla um helstu við- fangsefni og valkosti í utanrík- isstefnu íslands í nútíð og fram- tíð. Styrktímabilið er -,ð jafnaði 2-4 mánuðir, og er upphæð styrks 23.000 belgískir frankar á mánuði, eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í gjaldeyri annars að- ildarríkis, auk ferðakostnaðar. Styrkirnir eru veittir í því skyni að stuðla að námi og rann- sóknum á ýmsum tilgreindum sviðum er varða aðildarríki Atl- antshafsbandalaigsins sérstaklega. Fréttatilkynninig frá utanríkisráðuneytitni samninga við Bandaríkjamenn um „varnarmál", sem veiti þeim rétt til meiri athafna hér, en þeir hafa haft hingað til. Fyrir það eiga þeir að „borga". Franco-Spánn er fyrirmyndin, en þetta á að réttlæta með „vilja- yfirlýsingu" þjóðarinnar, nánar tiltekið undirskriftasöfnun „var- ins Iands". Gengið á að lækka um að minosta kosti 40% og gengis- mun á að nota til að greiða nið- ur landbúnaðarvörur, en taka er- lenda vöruflokka út úr vísitöl- unni. Nýir neyzluskattar verða Iagð- ir á í formi virðisaukaskatts, sem er að sjálfsögðu ekkert annað en söluskattur. Atvinnuvegunum verður svo ýtt af stað aftur með láglauna- vinnukrafti og erlent fjármagn verður fengið í nýja stóriðju. Margir áhrifamenn í flokkn- Dagana 15. - 17. júní héldu Rauðsokkar ráðstefnu að Skóg- um undir Eyjafjöllum og fjöll- uðu um stefnu hreyfingarinnar og starfsaðferðir, skipulag og verkefnaskrá komandi 'rs. í nýrri stefnuyfirlýsingu, sem samþykkt var kemur fram m.a., að barátta kvenna fyrir jafnrétti 'kynjáhria vérður ekki slitin úr tengslum við baráttu undirok- aðra stétta fyrir þjóðfélagsilegum jöfnuði, né heldur verður sigur unninn í verkalýðsbaráttunni án virkrar þátttöku kvenna. Einnig að baráttan er tvíþætt, annars vegar fyrir breyttu þjóðfélagi samfara tímabundnum umbótum og hins vegar að efla sjálfsvit- und og virðingu kvenna. Meðfylgjandi tillögur voru samþykktar og sendar Alþingi og viðkomandi ráðherrum. Ráðstefna Rauðsokkahreyfing- arinnar að Skógum undiir Eyja- fjöllum dagana 15. - 17. júní s.l. samþykkti eftirfarandi: I. Ráðstefna Rauðsokkahreyfing- um vilja fá gamlan afdankaðann kommúnista í embætti fjármála- ráðherra, Jónas Haralds, sem eft- ir langan „aðlögunartíma", hef- ur nú „frelsast" og gengist „sjálfstæðisstefnunni" á hönd, af hug og hjarta. Það er nefnilega gömul og góð retynzla, að slíkir „viUuráf- andi sauðir" reynast hinir nyt- sömustu fyrir „sjálfstæðisstefn- una". Með klóm og kjafti Nú er það svo, að ekki eru miklar líkur til, að görnlu við- reisnarflokkunum takist að fá hreinan meirihluta á Alþingi, en allt getur þó skeð, ef kjósendur gæta ekki að sér. Hinn gífurlegi blaðakostur Sjálfstæðisflokksins og ótakmark- að fjármagn, ásamt vel smurðri kosningavél, er hlutur sem ekki má vanmeta. arinnar haldin að Skógum 15. til 17. júní gerir þá kröfu til menntamálaráðherra, að hann sjái um, að bundinn verði end- ir á þau hættulegu uppeldis- áhrif, sem útsendingar Keflavík- ursjónvarpsins hafa í för með sér og því verði lokað þegai;. í stað. .,, II. lltlllO ;#• Ráðstefna Rauðsokkahreyfing- arinnar haldin að Skógum 15. til 17. júní 1974 skorar á kom- andi Alþingi að samþykkja frumvarp það óbreytt, er lagt var fyrir á sl. þingi um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðing- ar og ófrjósemisaðgerðir . III. Ráðstefna Rauðsokkah’-eyfing- arinnar haldin að Skógum dag- ana 15. - 17. júní 1974 krefst þess að tryggingamálaráðherra beiti sér fyrir því, að allar kon- ur, sem eru Iaunþegar, hafi jafn- an rétt til fæðingarorlofs á laun- um í a.m.k. 3 mánuði. ® ÚTBOÐ Tilboð óskast í 2500 m af „Ductile”-pípum fyrir Vatnsveitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri. Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 2. júli 1974, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKUR BORC :ar Fríkirkjuvegi 2 i' l i i\;nT iiwix 1 - Sími 25800 Skrífstofustarf Lögreglustjóraembættið óskar að ráða mann til skrifstofustarfa í sumar vegna sumarleyfa starfsmanna. Starfið er við bifreiðaskráningar o.fl. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist fyrir 23. þ.m. Lögreglustjórinn í Reykjavík. 14. júní 1974. AÐVÖRUN um stðövun atvinnurekstrar vegna vanskila á söluskatti. Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heimild í lögum nr. 10, 22. mars 1960, verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæm- inu, sem enn skulda söluskatt fyrir ianúar - mars 1974, og nýálagðan söluskatt frá fyrri tíma, stöðvaður, þar til þau hafa gert full skil á hinum fullgreiddu gjöldum, ásamt á- föllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir sem vilja komast hjá stöðvun, verða að eera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar við Tryggvagötu Lögreglustjórinn í Reykjavík, 18. júní 1974. Sigurjón Sigurðsson. 9

x

Nýtt land-frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land-frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/1529

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.