Bæjarins besta - 08.07.1998, Blaðsíða 1
- sjá samtal við Ágúst Kr. Björnsson,
sveitarstjóra Súðavíkurhrepps í miðopnu
Bæjarins besta
Miðvikudagur 8. júlí 1998 27. tbl. 15. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
Ódýrasta parketið í bænum!
Innveggjaefni í úrvali!
aðeins kr. 1.595.- pr. m²
Ódýrasta sólpallaefnið í bænum!
28 x 95 á kr. 133.- pr. m
21 x 95 á kr. 97.- pr. m !
Héraðsdómur Vestfjarða
Krafði útgerð
bóta fyrir eigið
kjaftshögg
Færeyskur karlmaður sem
sló skipsfélaga sinn og braut í
honum tvær tennur um borð í
Núpi BA og var dæmdur fyrir
líkamsárás, krafðist þess að
útgerð skipsins greiddi honum
700 þúsund krónur í bætur
vegna þess að hann var sjálfur
óvinnufær eftir árásina sökum
þess að sýking komst í hnef-
ann.
Dómur í þessu máli var
kveðinn upp í Héraðsdómi
Vestfjarða á föstudag - skaða-
bótamáli árásarmannsins
gegn útgerð Núps sem hafði
sagt Færeyingnum upp störf-
um með fjórtán daga lög-
bundnum uppsagnarfresti
vegna langvarandi samskipta-
örðugleika.
Umrædd árás átti sér stað
15. október 1996 og við hana
hruflaðist Færeyingurinn á
hnefa viðkjaftshöggið. Sýking
komst í sárið og var maðurinn
óvinnufær um hríð. Útgerðin
hélt því fram að maðurinn
hefði ekki sinnt því að vinna
út uppsagnarfrestinn en þar
sem Færeyingurinn var
óvinnufær taldi hann sig eiga
rétt á launum í veikindafor-
föllum. Krafa hans var upp á
samtals 700 þúsund krónur.
Héraðsdómur Vestfjarða
taldi að Færeyingurinn hefði
með vítaverðri háttsemi sinni
um borð í Núpi, fyrirgert rétti
sínum til forfallalauna þann
tíma sem hann var frá störfum
vegna afleiðinga eigin gjörða
og sýknaði því útgerð Núps
af kröfum Færeyingsins.
Helgi I. Jónsson, settur
héraðsdómari á Vestfjörðum
kvað upp dóminn.
Ísafjarðarhöfn
Féll ofan í lest
Síðdegis á fimmtudag í síð-
ustu viku fékk lögreglan á Ísa-
firði tilkynningu um að skip-
verji á Auðbirni ÍS hefði fallið
frá þilfari og ofan í lest.
Lögregla og sjúkralið fóru
þegar á vettvang en talið var
að maðurinn hefði legið á lest-
argólfinu um tíma. Hann var
þegar fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Ísafirði til að-
hlynningar.
Samkvæmt upplýsingum
frá vakthafandi lækni á FSÍ
voru meiðsl mannsins ekki
alvarleg og fékk hann að fara
til síns heima eftir sólarhring.
Frá slysstað við Sundahöfn
á Ísafirði á fimmtudag.
20 ára starf unnið
á tveimur árum