Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.07.1998, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 08.07.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 Súðavíkurhreppur er 7,5% af flatarmáli Íslands „Ef af þessu verður, þá hlýt- ur að koma til ýmis tengd þjónusta. Ferðamenn hafa vissulega um ýmislegt að velja til afþreyingar á norðan- verðum Vestfjörðum, en við viljum koma á fót sem mestu af því tagi hér í heimabyggð- inni og byggja þá þjónustu á okkar svæði hér í Súðavíkur- hreppi sjálfum, en fara ekki endilega á sömu staði og aðrir eru að bjóða upp á. Sveitarfé- lagið okkar er ekki aðeins ákaflega fagurt og fjölbreytt, heldur einnig geysilega víð- lent. Innan marka Súðavíkur- hrepps er um 750 ferkílómetra landsvæði, allt frá Götu við Arnarnes og inn í Ísafjarðar- botn, eða um 7,5% af flatar- máli Íslands. Til samanburðar má geta þess, að innan marka Reykjavíkur var 114 ferkíló- metra svæði áður en Kjalar- neshreppur bættist þar við, þannig að við áttum sjö sinn- um stærra landsvæði. Vega- lengdin eftir akveginum milli endimarka Súðavíkurhrepps er svipuð og úr Reykjavík og upp í Norðurárdal. Út á þetta svæði og sögu þess viljum við gera, út á náttúrufegurðina og kyrrðina, út á landnáms- söguna og atvinnusöguna. Hér eru mjög fallegar göngu- leiðir milli fjarða, hinar gömlu þjóðleiðir, til dæmis hér upp úr Álftafirðinum og yfir skörð- in. Örstutt er yfir í Önundar- fjörðinn. Hér innar í Álftafirði eru slóðir Jóns Indíafara og Reisubókarhöfundar og heim- ili í æsku hans og elli og úr þeirri sögu gætum við gert eitthvað. Húsin í gömlu byggðinni eru yfirleitt mjög góð, þau eru hér og verða hér um ókomin ár, enda þótt þau séu háð kvöðum, og það væri mjög dapurlegt fyrir Súðavík og Vestfirði alla ef þau grotn- uðu niður, engum til gagns. Það er hreinlega skylda okkar að finna leiðir til að nýta þau.“ Enda þótt aðeins 17 sveita- býli séu eftir í byggð í Súða- víkurhreppi, er Ágúst ekki svartsýnn á framtíð þeirrar byggðar, enda hreppurinn mjög grösugur og landstór og vel fallinn til sauðfjárræktar. „Ég er þeirrar skoðunar að nýta beri landsins gæði eftir því sem best hentar á hverjum stað, og hér er einmitt mjög gott að rækta sauðfé.“ Samkomulagið og starfið í hreppsnefndinni – Hvernig hefur samkomu- lagið verið í hreppsnefndinni? „Það hefur nú oft verið sagt, að allt skjálfi og nötri í hrepps- nefndinni í Súðavík. En þann tíma sem ég hef starfað hér, frá því í febrúar 1995, finnst mér það samstarf hafa gengið vonum framar. Súðavíkur- hreppur hefur nú á tveimur árum gengið í gegnum verk- efni sem sveitarfélag af þess- ari stærð tekst að jafnaði á við á tuttugu árum. Þetta höfum við gert með okkar eigin stjórnsýslu, án þess að ein- hverjar hersveitir hafi komið utan frá og tekið við heilum málaflokkum, og það hefur gengið mjög vel. Þetta hafa verið gríðarlega erfið og mikil verkefni og við höfum þurft að vinna mjög hratt og taka miklu skjótari ákvarðanir en venja er í stjórnkerfi af þessu tagi. Hreppsnefnd Súðavíkur- hrepps hefur að mínum dómi lánast ágætlega að takast á við þetta einstæða verkefni, að færa heilt þorp um set. Þetta hefur aldrei verið gert hér á landi áður. Menn hafa ekki getað gengið í einhverjar gamlar fundargerðir eða skýrslur frá öðrum eða hringt og spurt hvernig að slíku hafi verið staðið einhvers staðar annars staðar. Við höfum fetað okkar eigin braut, tommu fyrir tommu, og oft þurft að berjast við mjög þungt og stirt stjórn- valdskerfi. Mér er til dæmis mjög minnisstætt árið 1995, þegar stjórnsýsla Ofanflóða- sjóðs var með þeim hætti, að hún virkaði hreinlega ekki neitt. Erindi okkar þurftu að fara frá stofnun til stofnunar og hreinlega gufuðu upp. Með lagabreytingu var þessu sem betur fer komið í langtum betra horf, þegar stjórnsýsla Ofanflóðasjóðs var færð undir eitt ráðuneyti. En þessi þrauta- ganga hefur verið mjög erfið og tafsöm. Vissulega hefur hvesst í hreppsnefndinni, skárra væri það nú, en hún hefur skilað ágætu starfi. Segja má, að nær allur hennar kraftur hefur farið í þessi sér- verkefni, sem ég hef verið að lýsa, og þess vegna hefur hún haft mjög lítinn tíma til þess að sinna hinum hefðbundnu verkefnum sveitarfélaga.“ Góð staða sveitarfélagsins „En nú eigum við nýtt þorp með nýju gatnakerfi og nýju holræsakerfi og erum búnir að leysa útrásarvandamálin fyrir frárennslið, þannig að staða okkar er óneitanlega góð. Ekki má gleyma hinni rausnarlegu gjöf frá vinum vorum og frændum Færeying- um, nærri 26 milljónir, sem notuð var til að byggja nýjan leikskóla og til þess að ljúka við og bæta aðstöðuna í grunnskólanum. Grunnskól- inn er einsetinn og ákaflega vel búinn með frágenginni lóð og leikfimihúsi. Skuldir sveit- arfélagsins eru í meðallagi. Við eigum fyrir rekstri mála- flokka, getum borgað af nú- verandi lánum og eigum svo- lítinn afgang. Þessi staða veitir okkur ákveðinn forgang.“ Eftirmál hreinsunar- starfanna – Nú er komin á sátt vegna hreinsunarstarfanna… „Eins og þú veist, voru eftir- mál við aðstandendur og þol- endur snjóflóðanna vegna hreinsunarstarfa, sem voru unnin strax eftir flóðin. Árið 1996 var reynt að ná sáttum í þeim málum, en það gekk ekki alveg þá. En í hugum manna var mjög mikilvægt að gera aðra tilraun, áður en sveitar- stjórnin sem hafði staðið í öllu þessu færi frá. Þess vegna var séra Kristján Björnsson sókn- arprestur á Hvammstanga fenginn til þess að vinna að þeim málum í vetur, og sú vinna endaði með sátt. Hún er að vísu þannig, að líklega er enginn fullkomlega sáttur, en það sýnir einmitt að allir hafa lagt sig fram um að ná saman og teygt sig lengra en þeir ætluðu í upphafi. Og það finnst mér góð sátt þegar allir hafa lagt sig fram.“ Heiðar Guðbrands- son og Anna Lind – Hvernig er að vinna með Heiðari Guðbrandssyni? „Hann hefur starfað mjög lengi í hreppsnefnd og mörg- um hefur þótt hann nokkuð fyrirferðarmikill. Það orðspor hefur borist um allt land. Vissulega getur stöku sinnum verið fjandanum erfiðara að vinna með honum, hann á til að valta yfir fólk og virða ekki það sem manni finnast eðli- legar markalínur í mannlegum samskiptum, en á móti kemur að hann á til góða spretti. Allir eiga sínar góðu og veiku hliðar, bæði ég og þú, og það hlýtur að gilda um hann eins og aðra.“ Í lok samtals okkar berst talið að því, að Bergljót Jónsdóttir, hinn ágæti skóla- stjóri Grunnskóla Súðavíkur, er á förum til stærri verkefna á Norðurlandi. Nýr skólastjóri hefur þegar verið ráðinn, Anna Lind Ragnarsdóttir, ung kona sem er fædd og uppalin í Súðavík. Hún nýtti sér fjar- námsleiðina í kennaranámi, eftir að hafa lokið stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Ísafirði. „Mér finnst það ákaf- lega ánægjulegt að við skulum eiga hér fólk í heimabyggð sem hefur bæði hæfileika og menntun til að takast á við slík verkefni og hefur átt kost á að nýta sér slíka leið til náms“, segir Ágúst Kr. að lokum. – Hlynur Þór Magnússon. Læknaritari HSÍ Læknaritari óskast í 50% starf við HSÍ. Vinnutími er frá kl. 13:00-17:00. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 15. júlí. Nánari upplýsingar gefur Þóra Gestsdóttir, læknafulltrúi í síma 450 4501 kl. 08:00- 16:00 virka daga. Eldhús Aðstoðarmatráðsmaður óskast í 100% starf. Starfsfólk til almennra starfa í eldhúsi. Hlutastörf koma til greina. Umsóknum skal skila til yfirmatráðsmanns, Birgis Jónssonar sem einnig veitir nánari upplýsingar um störfin í vs. 450 4560 og í hs. 456 4703. Atvinna Óskum eftir starfsfólki til almennra fisk- vinnslustarfa í öllum deildum fyrirtækisins. Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Þór Jónsson á skrifstofu Þorbjarnar hf. eða í síma 456 7500. LEIKSKÓLINN SÓLBORG Leikskólakennara eða annað áhuga- samt starfsfólk vantar á leikskólann Sólborg á Ísafirði. Um er að ræða þrjár 50% stöður eftir hádegi. Einnig vantar okkur leikskólakennara eða þroskaþjálfa í sérkennslu í 50-60% stöðu fyrir hádegi. Nánari upplýsingar gefur leikskóla- stjóri í síma 456 3185. ÍSAFJARÐARBÆR ÚTBOÐ Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í endurbætur á inntökum og aðveituæð vatnsveitunnar á Suðureyri. Útboðsgögn verða afhent hjá tækni- deild frá og með fimmtudeginum 9. júlí nk. og kosta kr. 3.000.- Tilboð verða opnuð 16. júlí nk. Tæknideild. Fasteign til sölu Til sölu er fasteignin Kjarrholt 6, Ísafirði, sem er ca. 120m² einbýlishús á einni hæð, byggt árið 1980, ásamt 35m² bílskúr. Fast- eignin er laus mjög fljótlega. Allar nánari upplýsingar gefa Björn Jóhann- esson hdl., sími 456 4577 og Ingimar Hall- dórsson, sími 456 3983. Lögsýn ehf.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.