Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.07.1998, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 08.07.1998, Blaðsíða 12
Bæjarins besta ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: hprent@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk BÍLATANGI Ísafirði Símar 456 3800 og 456 4580 BÍLATANGI Ísafirði Símar 456 3800 og 456 4580 Lyftaramaður, skipstjóri Hafsúlunnar BA 741 og Oddi hf. á Patreksfirði voru á föstudag dæmdir fyrir Héraðs- dómi Vestfjarða til að greiða samtals 1,2 milljónir króna í sekt fyrir að hafa landað tæp- lega fimm tonna þorskafla framhjá vigt af gáleysi í lok nóvember á síðasta ári. Oddi hf. sem var kaupandi aflans, er dæmdur til að greiða 400 þúsund króna sekt fyrir lyftaramanninn og sömu fjár- hæð sjálfstætt. Refsing skip- stjórans var hins vegar skil- orðsbundin þar sem Fiskistofa svipti hann veiðileyfi í fjórar vikur vegna athæfisins. Það var að morgni 25. nóv- ember á síðasta ári að tveir veiðieftirlitsmenn frá Fiski- stofu voru að fylgjast með löndun við bryggjuna á Pat- reksfirði. Þar var óvanur lyft- aramaður, piltur, í ákvæðis- vinnu við að landa úr Núpi BA 69. Einn úr áhöfn Hafsúl- unnar bað piltinn þá að keyra einnig fiskkör úr sínum báti og varð lyftaramaðurinn við því en ákvað að bíða með að láta vigta aflann úr Hafsúlunni til að tefja ekki uppskipun úr Núpi. Pilturinn ákvað síðan að keyra átta fiskkörum úr Haföldunni inn fyrir dyrnar á fiskmóttöku Odda, kaupanda aflans, og ætlaði síðan að láta vigta aflann þegar tími gæfist frá löndunarvinnunni við Núp. Þegar þarna var komið sögu gripu veiðieftirlitsmenn inn í og kölluðu lögreglu til. Málið fór síðan í rannsókn, Hafsúlan var svipt veiðileyfi í fjórar vikur og ákæra gefin út. Fyrir dómi sagði pilturinn að yfir- menn sínir hefðu aldrei bent sér á að óvigtaður afli yrði að fara rakleiðis á hafnarvog áður en honum væri ekið inn í hús. Í niðurstöðu Héraðsdóms kemur fram að samkvæmt meginreglu laga beri öku- manni sem flytur óveginn afla, skilyrðislaust að aka rakleiðis frá skipshlið að hafnarvog. Því teljist brot piltsins á lyftara- num fullframið. Samkvæmt lögum er skipstjóra jafnframt lögð sú skylda á herðar að láta vigta hverja fisktegund sérstaklega og taldi dómurinn að skipstjóranum hafi borið að sjá til þess að aflinn úr bát hans yrði vigtaður og hann hafi því vanrækt þá fortaks- lausu skyldu sína. Dómurinn taldi ósannað að forsvarsmanni Odda hafi ver- ið kunnugt um þá ráðagerð að bíða með vigtun aflans og var hann því sýknaður af þeim sakargiftum sem hann var ákærður fyrir. ,,Ekkert er fram komið í málinu sem bendir til þess að um samantekin ráð hafi verið að ræða af hálfu ákærðu, heldur verður að miða við að brotið hafið verið fram- ið af gáleysi," segir í niður- stöðu Héraðsdóms. Það var Helgi I. Jónsson, settur héraðsdómari á Vest- fjörðum sem kvað upp dóm- inn. Lyftaramaður, skipstjóri og Oddi hf. dæmdir fyrir Héraðsdómi Sektaðir fyrir ,,fram- hjálöndun“ af gáleysi Tálkni er oftast sem skuggamynd úr þessari átt, en hér er hann snemma að morgni um síðustu helgi, þegar morgunsólin notar síðasta tækifærið þann daginn að bregða geislum sínum á þetta fjallmyndarlega fjall. Sólarblik á Tálkna SONY ATV AIWA PANASONIC

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.