Bæjarins besta - 08.07.1998, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 5
Ásgeir Þór Jónsson.
Vestfirðir
Ásgeir Þór
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Fjórðungssam-
bandssins
Stjórn Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga ákvað
á fundi á mánudagskvöld
að ganga til samninga við
Ásgeir Þór Jónsson sem
næsta framkvæmdastjóra
sambandsins.
Fjórtán umsóknir bárust
um stöðuna. Þær voru frá
Þorgils Axelssyni Reykja-
vík, Einari Njálssyni
Húsavík, en hann dró um-
sókn sína síðan til baka,
Sigríði Hrönn Elíasdóttur
Súðavík, Pétri E. Trausta-
syni Kópavogi, Kristni
Jóni Jónssyni Ísafirði,
Elíasi Oddsyni Ísafirði,
Jónasi Inga Péturssyni
Reykjavík, Gylfa Þór
Gíslasyni Ísafirði, Magn-
úsi Ólafs Hanssyni Bol-
ungarvík, Jóni Inga Jóns-
syni Selfossi, Gunnari
Þórðarsyni Ísafirði, Ásgeir
Þór Jónssyni Bolungarvík,
Halldóri Má Þórissyni
Súðavík og Ingibjörgu
Elfu Stefánsdóttur Akur-
eyri.
Að sögn Péturs H.R.
Sigurðssonar stjórnarfor-
manns Fjórðungssam-
bandsins er vonast til að
nýr framkvæmdastjóri geti
hafið störf sem fyrst.
Eitthvað fyrir alla á Sæluhelgi 1998 á Suðureyri á næstu helgi
Markaðstorg og mansakeppni,
krafta-, kleinu- og harðfiskkeppni
Sæluhelgi 1998 verður á
Suðureyri um næstu helgi.
Þetta verður reyndar óvenju-
löng helgi, því að hún hefst
annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, með sýningu leikfé-
lagsins Hallvarðar súganda á
leikritinu „Það er spurning“.
Á föstudag er farið á Norður-
eyri og verður byrjað að ferja
yfir kl. 16. Þar verður sand-
kastalakeppni og gjarðaskopp
og mannskapurinn grillar á
staðnum.
Séra Valdimar Hreiðarsson
messar í Suðureyrarkirkju kl.
11 á laugardagsmorgun. Byrj-
að verður að skrá í mansa-
keppni kl. 13, síðan verða
dýfingar, barnaball, unglinga-
diskó og loks dansleikur sem
hefst kl. 23, en þar leikur
hljómsveitin Upplyfting.
Á sunnudag verður fjöl-
margt um að vera á Suðureyri
– markaðstorg á Sjöstjörn-
unni, kaffisala Kvenfélagsins
Ársólar, húsmæðrafótbolti,
sleggjukast, kraftakeppni,
söngvarakeppni (skráning um
leið og í mansakeppnina),
pylsusala Félagsmiðstöðvar-
innar, kleinukeppni, harðfisk-
keppni, barnahestar verða til
reiðu (og reiðar) fyrir yngstu
börnin, og undir lokin er af-
hending verðlauna og brekku-
söngur. Miðnætursýning á
leikritinu hefst svo kl. 23.
Þátttakendur í kleinu- og
harðfiskkeppni komi með
hálft kíló af framleiðslu sinni
til Ævars keppnisstjóra milli
kl. 13 og 14 á sunnudag. Gefin
hefur ver ið út spóla með
tveimur Sæluhelgarlögum (97
og 98) og verður hún til sölu
meðan upplag endist. Sælu-
helgarmerki verða seld á kr.
400 og gilda þau sem að-
göngumiðar á allt nema dan-
sleik og leiksýningu. Einnig
fást Sæluhelgarhúfur.
Aðalmót SJÓÍS 1998
Meira en hálft
fimmta þúsund
fiska veiddist
Aðalmót Sjóstangaveiðifé-
lags Ísfirðinga (SJÓÍS) um
síðustu helgi heppnaðist í alla
staði hið besta, bátarnir voru
sérlega snyrtilegir og góð að-
staða um borð. Skipstjórar og
aðstoðarmenn þeirra lögðu sig
alla fram við að hjálpa veiði-
mönnum að taka fisk af krók-
um, greiða úr flækjum og gera
að aflanum. Sérstakar þakkir
fékk Guðmundur Jakobsson
skipstjóri á Neista, en hann
bauð áhöfn sinni til veislu um
borð. Þar átu menn lambasteik
og rjómatertu og kváðust
veiðimenn á báti hans aldrei
hafa notið slíkrar gestrisni á
öðrum mótum sem þeir höfðu
tekið þátt í annars staðar á
landinu.
Keppendur voru 33 víðs-
vegar af landinu, 8 konur og
25 karlar. Róið var frá Bol-
ungarvík á sjö bátum bæði
laugardag og sunnudag á
veiðislóð undir Ritnum og úti
fyrir Straumnesi. Veður var
hið ágætasta, nær sléttur sjór,
skýjað en þurrt. Alls veiddust
4.563 fiskar sem vógu samtals
6.549 kg, aðallega þorskur,
en lítilsháttar veiddist af ýsu,
ufsa, karfa, stembít og kola.
Þá bar það til tíðinda, að tíu
kílóa lúða veiddist.
Á mótum sem þessu er
sveitakeppni karla og kvenna
og fjórir keppendur í hverri
sveit, en jafnframt er um ein-
staklingskeppni að ræða. Í
sveitakeppni kvenna sigraði
sveit Sigrúnar Baldursdóttur,
Ísafirði, með 706 kg. Í öðru
sæti var blönduð sveit Sigríðar
Rögnvaldsdóttur með kepp-
endum frá Siglufirði, Reykja-
vík og Akureyri með 499 kg. Í
karlaflokki sigraði blönduð
sveit Gunnars Þorsteinssonar
frá Reykjavík og Akranesi
með 988 kg. Í öðru sæti varð
sveit Andra Páls Sveinssonar,
Akureyri, með 945 kg og í
þriðja sæti sveit Árna P.
Björgvinssonar, Akureyri,
með 908 kg.
Í einstaklingskeppni
kvenna sigraði Sigríður Jó-
hannesdóttir, Ísafirði, með
325 kg, í öðru sæti varð Sig-
ríður Rögnvaldsdóttir, Siglu-
firði, með 197 kg og í þriðja
sæti Ragnheiður Jónsdóttir,
Ísafirði, með 149 kg.
Í karlakeppninni sigraði
Þorsteinn Einarsson, Reykja-
vík, með 415 kg, í öðru sæti
varð Magnús Ingólfsson,
Akureyri, með 394 kg, og í
þriðja sæti varð Sigurjón
Guðmundsson, Ísafirði, með
362 kg.
Auk verðlauna fyrir sigur í
sveita- og einstaklingskeppni
voru keppendur heiðraðir fyrir
stærstu fiska af einstökum
tegundum, flestar veiddar
tegundir, flesta fiska o.fl.
Aflahæsti skipstjórinn var
Sveinn Björnsson og áhöfn
hans á Fiskinesi með 1.412
kg samtals eða 353 kg að með-
altali á stöng. Í öðru sæti varð
Albert Jónsson og áhöfn hans
á Þuríði sundafylli með 1.396
kg eða 349 kg á stöng, og í
þriðja sæti varð Bjarni Freyr
og áhöfn hans á Auðbirni með
1.191 kg eða 298 kg á stöng.
Stjórn SJÓÍS vill þakka
öllum sem tóku þátt í mótinu,
en þó sérstaklega skipstjórum,
aðstoðarmönnum þeirra og
öðrum sem störfuðu við mót-
ið.
Ísafjörður
Sverrir Hermannsson
fyrrv. bankastjóri og ráð-
herra heldur almennan
fund í Stjórnsýsluhúsinu á
Ísafirði kl. 9 á sunnudags-
kvöldið og mun þar ræða
stjórn fiskveiða og stjórn-
málaviðhorfið almennt.
Það sætir nokkrum tíðind-
um, að Matthías Bjarna-
son, fyrrum þingmaður og
ráðherra fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn verður fundar-
stjóri.
Matthías
stjórnar
fundi hjá
SverriEldri borgarar í Ísafjarðarbæ
Rútuferð á Látrabjarg
Fimmtudaginn 16. júlí nk.
munu eldri borgarar í Ísa-
fjarðarbæ fara í rútuferð á
Látrabjarg. Farið verður frá
Dvalarheimilinu Hlíf á Torf-
nesi kl. 10 um morguninn
og verður gist í Flókalundi.
Þar verður einnig snætt
um kvöldið sem og morg-
uninn eftir. Að morgunverði
loknum verður haldið af stað
og ekið út að Örlygshöfn þar
sem safn Egils á Hnjóti verður
skoðað. Þaðan verður síðan
haldið út á Látrabjarg og síðan
til Patreksfjarðar þar sem
snæddur verður kvöldverð-
ur.
Á heimleiðinni verður
ekið um Tálknafjörð og
Bíldudal. Allar nánari upp-
lýsingar um ferðina fást á
skrifstofu Hlífar í síma 456
4076.
Þátttakendur í sjóstangaveiðimótinu þurftu ekki að fara langt til að ná þeim ,,gula" því nóg
var af honum við Brjótinn í Bolungarvík.