Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.09.1998, Page 8

Bæjarins besta - 16.09.1998, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 – Nína Óskarsdóttir, þrefaldur Íslandsmeistari í vaxtarrækt, er sest að á Ísafirði Hér er Nína Óskarsdóttir í toppformi á Hornafirði á sýningarferð í fyrra. Nína Óskars- dóttir byrjaði að æfa kraftlyftingar fyrir alllöngu, en árið 1995 byrjaði hún í vaxtarrækt og varð Íslandsmeistari kvenna í þeirri grein þrjú ár í röð, 1995, 1996 og 1997, bæði í sínum þyngdarflokki og yfir alla línuna. „Ég var í mínus 57 kg flokki fyrsta árið en þyngdi mig svo upp í næsta flokk fyrir ofan og keppti þar næstu tvö árin.“ Nína er nýflutt til Ísafjarðar og ætlar að vera hér að minnsta kosti eitt ár. Hún vinnur á Hár- greiðslustofu Siggu Þrastar á daginn en þjálfar í Studio Dan á kvöldin. – Ertu hætt í vaxtarræktinni? „Nei, ég er sko ekki hætt! Ég er bara í pásu – ég er að vinna að því að gera mig betri en ég var.“ – Ennþá betri… „Já, ég er stefni að því.“ – Hvað ertu gömul? „Abbababb. Svona spyr maður ekki konur! Þetta er svo viðkvæmt!“ – Ég skrifa nú ekki allt sem ég fæ að vita. „Það verður bara að vera spurningarmerki hérna!“ – Af hverju ertu komin hingað vestur? „Það er nú málið. Ég kom hingað í mars og var þá í hálfan mánuð, og mér líkaði svo rosalega vel við Ísfirðinga að ég ákvað að koma aftur. Bæði er svo góður andi hérna og Ísfirðingar tóku mér svo óskaplega vel. Ég er hárgreiðslunemi og er að klára, og hún Sigga Þrastar hringdi í mig og bauð mér vinnu og bauð mér að ljúka náminu hjá sér. Og ég ákvað það bara einn, tveir og tíu, það var eiginlega engin spurning, mér líkaði svo vel hérna síðast.“ – Hvað varstu að gera hér í vor? „Ég var hér með einkaþjálfun. Þá voru allar fegurðardísirnar sem tóku þátt í Fegurðarsamkeppni Vestfjarða í þjálfun og ég var meðal annars með tvær þeirra. Ég kom eiginlega vegna þess að önnur þeirra, Fanney Sigþórsdóttir frænka mín, bað mig að koma og þjálfa sig.“ – Ertu búin að vera lengi við þjálfun og kennslu? „Já. Sjálf er ég búin að æfa í fimmtán ár. Ég byrjaði í kraftlyft- ingum.“ – Þú ert systir Skúla Óskarssonar kraftlyftingamanns… „Það má segja að kraftadellan sé í fjölskyldunni. Við erum þrjú systkinin í þessu. Fyrir utan okkur Skúla, sem er elsti bróðirinn, er Már Óskarsson yngsti bróðirinn í þessu líka. Ég er næstyngst af níu syst- kinum.“ – Hvað ertu að kenna og þjálfa hjá Stebba Dan? „Að hluta til er ég með einkaþjálfun og tek mína kúnna sjálf í þjálfun í tækja- sal...“ – Bæði konur og karla? „Já, bæði konur og karla, bæði unga og gamla af öllum stærðum og gerðum. Öllum er velkomið að fá hjálp hjá mér. Ég hef óskaplega mikinn áhuga á því að koma hér í gang „Gauja litla dæmi“ fyrir fólk sem er dálítið þungt á sér.“ – Í þessari einkaþjálfun ertu bara með einn í einu… „Já, þá helga ég mig alger- lega einni manneskju í 50 mínútur. Ég aðstoða og leið- beini líka með mataræði, hjálpa til við að setja saman matarlista, eða þá að ég læt fólk halda matardagbók sem ég fer svo yfir og geri athuga- semdir við. Svo er ég líka að kenna hjá Stebba þrjú kvöld í viku og þá er ég með opna tíma í salnum, aðstoða fólk sem er að byrja, vantar nýjar æfingar og þess háttar.“ – Þú ert semsagt ekki bara með fólk sem vill fá skrokk eins og þú… „Alls ekki! Það eru fæstir sem vilja verða svoleiðis“, segir Nína og hlær. „Það væri agalegt ef það væru margar Nínur.“ – Nú er ég orðinn fimmtug- ur, feitur, latur og ljótur. Hvað myndir þú láta mig gera, ef ég fengi einkatíma hjá þér? Mig langar svo voðalega að verða eins og Arnold Schwarzen- egger um tvítugt… „Það er allt hægt ef viljinn er nógu sterkur. En ég myndi byrja að setjast niður með þér og kynna mér hvað þú hefur verið að gera undanfarið, líka hvort allt sé í lagi, hjartað og lungun, og hvort það sé um einhver meiðsli að ræða, hvort bakið sé veikt eða hnén. Svo myndi ég vinna út frá því. Ég mundi líka spyrja þig hverju þú hefðir áhuga á. Sumir eru voðalega feimnir og segjast bara vilja verða grannir, en sumir þora alveg að segja: Ég vil fá svolítið af vöðvum, eða: Ég vil alls enga vöðva. Fólk kemur bara með sínar óskir. Síðan bý ég til í rólegheitunum prógramm með viðkomandi manneskju. Fyrsta vikan fer í mest í að kenna á tækin og leyfa fólki að prófa hinar og þessar æfingar, en þegar þessi vika er liðin er líkaminn að- eins farinn að taka við sér, þannig að þá er tímabært að taka svolítið á. Það er algengt að fólk sé hjá mér þrisvar í viku og þá er tekið þriggja daga prógramm í hverri viku. Það er mjög auðvelt að komast yfir allan líkamann í hverri viku. Maður byrjar á einhverj- um líkamshlutum, t.d. brjóst- kassanum og þríhöfða (tric- eps) og þá læt ég gera sérstak- ar æfingar fyrir þessa vöðva- hópa. Ef þú vilt brenna og ég sé að þú hefur þol til að gera þessar æfingar, þá mundi ég láta þig gera tólf til fimmtán endurtekningar. Ef ég sé að þú ert orðinn mjög þreyttur, þá hægi ég á og fer alveg eftir þínum þörfum. Ef þú vildir brenna miklu, þá mundi ég benda þér á að spara svolítinn pening með því að taka brennsluhlutann sjálfur í göngubraut eða þrekstiga kannski tuttugu mínútur eða hálftíma áður en þú kæmir inn í tíma til mín. Eftir það færum við inn í tækjasalinn.“ – Þú ætlar að vera hér í vetur… „Ég ætla að vera hér í ár, eða að minnsta kosti ár. Ég fór til Svíþjóðar og ætlaði að vera í þrjá mánuði, en var í þrjú og hálft ár, þannig að áformin geta breyst. Ef mér líkar áfram svona rosalega vel við ykkur, ætli ég verði þá ekki bara ellidauð hérna.“ – Og færð ísfirskan ríkis- borgararétt og færir Ísfirðing- um kannski Íslandsmeistara- titil á næsta ári og þar næsta… „Ég er alls ekki hætt! Það er ágætt að taka frí í eitt ár og koma svo enn sterkari til baka.“ Nína Óskarsdóttir við æfingar í Studio Dan á Ísafirði. „Kraftadellan er í fjölskyldunni“

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.