Börn og menning - 01.09.2012, Qupperneq 14

Börn og menning - 01.09.2012, Qupperneq 14
Börn og menning skapi fylltist ég hryggð þegar ég frétti að úr þessu yrði aldrei. Höfundurinn var hrumur af elli ef ekki örendur; þessar bækur yrðu aldrei til. Hrifning mín á Ævintýrabókunum staðfesti hið ómögulega hlutskipti þess að finna til og vera lifandi: hið fagra býr jafnframt yfir fyrirheitinu um eigin feigð og dauða. Maður getur skemmt sér inni í Ævintýrahöllinni og gleymt sér niðri í Ævintýradalnum, en um leið skal maður vita að öll gleði tekur enda. Þegar maður lýkur aftur Ævintýraskipinu er gamanið búið. Ævintýrakafbáturinn er bara óraunsær draumur. Og maður finnur hvernig sársaukinn lamar mann, hverfulleiki heimsins verður helsta svið hans og vettvangur, í frálíðandinni sjálfri. Þannig er fortíðarþráin ekki aðeins staðfest í endurliti til löngu liðinna daga. Hún er samgróin kenndum þess sem sökkvir sorgum sínum í draumum og lestri. Patosið sem góður höfundur stólar á í sambandi sínu við heillaðan lesanda sækir styrk sinn í þessa nostalgíu: um leið og maður les og hverfur inn i veröldina hinum megin við orðin játast maður galdrinum sem upphefur þrána til fegurri heims. Flestum þykja meðmæli með góðri bók að verða svolítið hryggur eftir lesturinn, sakna persónanna og draumsins sem fangaði mann á meðan maður dvaldi í þessum tilbúna heimi. Margir höfundar hafa gert þessa tilfinningu að helsta viðfangi skrifa sinna. Proust setti allan heiminn inn í magdalenuköku, hann hreiðraði um sig í nostalgíu sem var gerð úr möndluhveiti og smjöri. Bækurnar sem maður les sem barn eru því alls ekkert grín. Þær móta mann og tilheyra manni fyrir lífstíð, hvort sem manni Ifkar betur eða verr. Ég hef heyrt fjölda rithöfunda lýsa því yfir að Bróðir minn Ljónshjarta hafi haft mótandi áhrif á líf þeirra. Bókin virðist hafin yfir fýlukenndar athugasemdir um stílbrögð, persónusköpun og byggingu og ástæðan ekki aðeins vera sú að hún fangaði mann á réttum tíma. Sagan um bræðurna leitar inn í kvikuna, eins og þegar Proust fór inn í magdalenukökuna. Kannski er sigur höfundarins ekki síst tilkominn vegna tregans sem bókin skilur eftir sig: nostalgíunnar sem er samgróin textanum og heimtir sérhvern lesanda í ævilanga þjónustu. Þegar ég reis upp úr lautinni í rigningunni á Hornbjargi eftir síðustu Ævintýrabókina ákvað ég að lesa Bróður minn Ljónshjarta aftur. Ég var átta ára og þurfti almennilegt efni til að hrista úr mér skjálftann. Blyton væri á enda. ( miðri senunni þar sem skrímslið Katla spýr eldi sínum yfir hermenn Þyrnirósadals og hörmungin og þunglyndið virðist eina niðurstaðan af framrás lífsins, þá neyði ég sjálfan mig til að leggja bókina frá mér, hleyp niður á neðri hæðina þar sem móðir mín er að sauma frottefrakka eftir mjög skemmtilegu frönsku sniði úr Alt for damerne, og segi við hana: „Ég er kominn þangað sem Katla spýr eldinum yfir hermenn Þyrnirósadals!" Svarið sem ég fékk var nákvæmlega það sem ég hafði óskað mér: „Hvernig í ósköpunum gastu hætt þar?" Ástæðan fyrir því að ég lagði bókina frá mér og hljóp niður stigann þar sem móðir mín var að sauma frottefrakka var einmitt sú að ég vildi ganga í augun á henni. Ég vildi heilla hana í blindu stolti þess nostalgíska lesanda sem fann um leið og hann las hversu ómögulegt það var að leggja bókina frá sér, en gerði það samt. Þarna nötraði allt tilfinningalíf mitt og hverfðist um pólana sem áttu allar sínar stoðir í orðum Astrid: lífið og dauðann, samkenndina og hatrið, og ég var fjarri öllum síðari tíma þörfum til að næra þessar tilfinningar með afþreyingu á

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.