Börn og menning - 01.09.2012, Qupperneq 21

Börn og menning - 01.09.2012, Qupperneq 21
Átta mánaða krdi og svooona stórt! 21 sýninguna og útlán barnabóka jukust. Það má því segja að tilgangi sýningarinnar hafi verið náð. Hún er auðvitað enn í fullu gildi og hefur hangið uppi í Háskólanum á Akureyri síðan á afmæli skólans í byrjun september. Þá var Barnabókasetrið með sérstakt sýningar-, lestrar- og kósírými fyrir foreldra og börn sem var afar vel sótt. Næsta stóra samfélagsverkefni er á leiðinni UPP á Ijósastaura á Akureyri. Það er sýning sem við köllum leshring eða göngulestur og á að höfða til barnafólks á leið um bæinn. Járnspjöld, eða opnar járnbækur, verða fest á 20-25 staura frá Amtsbókasafninu, gegnum ^niðbæinn og alla leið að Nonnahúsi. Á hvert spjald er límdur kafli úr (slenskri barnabók nneð nógu stóru letri til að auðvelt sé að 'esa en þó er textinn nógu mikill til að fólk þurfi að staldra við. Markmiðið er sem fyrr að kveikja lestraráhuga heilu fjölskyldanna, fá foreldra til að lesa með börnunum og sameina lestur og útivist. Svo má alltaf rölta á nókasafnið og sækja bókina sem vakti mesta forvitni... Menningarsjóður Akureyrar veitti %rk til þessa verkefnis enda mun það án efa kæta bæði ferðamenn og bæjarbúa. Helga Birgisdóttir doktorsnemi í barnabókmenntum var ráðin til að velja textana á spjöldin og eru þeir mjög fjölbreyttir. Frá því í febrúar og fram að skólalokum 1 vor stóð Barnabókasetrið reglulega fyrir °Pnum fræðsluerindum á Amtsbókasafninu. i^iarkmiðið var að ná til kennara, foreldra °9 annarra uppalenda. I september stóð Barnabókasetrið fyrir ráðstefnu um lestur °9 læsi ásamt Skólaþróunarsviði Háskólans á Akureyri. Á ráðstefnuna mættu á þriðja hundrað kennarar og þar gafst því gott tækifæri til að koma setrinu á framfæri. Þarna ræddi ég um lestrarmenningu íslenskra barna og mikilvægi bóklestrar. Stemningin á þessari ráðstefnu var frábær og greinilegt að kennarar hafa mikinn hug á að taka þátt í að endurvekja, efla og viðhalda lestraráhuga nemenda sinna. Rannsóknir og nemendavinna Barnabókasetrið hefur lagt metnað i að sinna rannsóknum á barnabókmenntum og lestri barna og veita nemendum tækifæri til þátttöku í rannsóknum á þessu sviði, eins og kveðið er á um í stofnskrá. Setrið sótti um styrk til Nýsköpunarsjóðs námsmanna í vor og fékk aura til að ráða tvo nemendur í að framkvæma rannsóknina „Lestrarvenjur ungra bókaorma" með það að markmiði að komast að því hvað gerir börn að virkum lesendum. Kristín Heba Gísladóttir og Þorbjörg Ólafsdóttir fengu sumarvinnu hjá setrinu en þær eru báðar MA-nemar við Háskólann á Akureyri (þó að Þorbjörg hafi að vísu tekið svolítið hlé, lagt sjó undir fót og gerst kennari I Grímsey). Umsjón með rannsókninni hafði auk mín Herdís Anna Friðfinnsdóttir, barnabókavörður á Amtsbókasafninu. Rannsóknin fór fram á sumarlestrarnámskeiðum Amtsbókasafnsins þar sem þær Kristín Heba og Þorbjörg ræddu við rýnihópa ungra bókaorma úr 3. og 4. bekk. Þær ræddu jafnframt við börn í samanburðarhópum, annars vegar af íþróttanámskeiði hjá KA, og hins vegar börn sem ekki voru ( neinu tómstundastarfi. Margt merkilegt kom fram í viðtölunum, það er í raun efni í heila grein að gera grein fyrir svörum barnanna. Það er þó hægt að nefna að bókaormarnir höfðu mun skýrari hugmyndir en samanburðarhóparnir um gildi lestrar. Aðeins eitt barn í samanburðarhópi gat nefnt kost við að vera góður í lestri og þá að það væri auðveldara að lesa dæmin í stærðfræðinni! Annað sem vakti athygli var að bæði feður og mæður komu að lestraruppeldi bókaormanna, þ.e. höfðu lesið fyrir börnin, en eingöngu mæður nærri allra barnanna í samanburðarhópunum. Það var líka sláandi að lestrarhestarnir höfðu allir mjög virka lesendur sem fyrirmyndir heima en börnin í viðmiðunarhópunum höfðu sum hver engar fyrirmyndir þegar kom að lestri. Enn og aftur sannaðist að heimilin gegna lykilhlutverki í að móta lestrarvenjur og lestraráhuga barna. Almennt virtust börnin þó óvön því að ræða um bækurnar sem þau voru að lesa. Rétt um helmingur lestrarhestanna hafði rætt við einhverja um lestur og bækur og þá aðallega fjölskyldumeðlimi. Þarna er augljóslega sóknarfæri. Með því að gera börn meðvitaðri um gildi lestrar og þjálfa þau í að ræða um lestur og bókmenntir má styrkja sjálfsmynd þeirra sem lesenda, virkja þau til jafningjafræðslu og efla áhuga barnahópsins á bóklestri. Svo má ekki gleyma að nefna að lestrarhestarnir kvörtuðu yfir úrvalinu á skólasöfnunum sem þeir heimsækja mjög oft. Það ætti ekki að koma neinum á óvart, bókakaupafé skólasafnanna var skorið niður um að meðaltali helming við hrunið mikla og hefur ekki verið uppfært aftur (sjá grein mína „Skólasöfn á krepputímum" í Þjóðarspeglinum 2011). Bókaormarnir ræddu jafnframt um mikilvægi góðrar aðstoðar á skólasafni, að starfsfólk þyrfti að þekkja bækurnar vel og vita hvaða bækur hentuðu þeim og höfðuðu til þeirra. Næst á dagskrá Næsta rannsókn er í burðarliðnum en Barnabókasetrið fékk styrk úr Háskólasjóði KEA til að rannsaka fjölskyldulestur á Akureyri. Rannsóknin er hugsuð sem viðbót

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.