Börn og menning - 01.09.2012, Blaðsíða 15

Börn og menning - 01.09.2012, Blaðsíða 15
Að sakna þess sem er ekki til 15 borð við golfleiki og langsetur yfir Facebook. Nostalgían - þessi rótgróna þrá eftir fegurri heimi - fann sér stað í lestrinum sjálfum. Það er orðið sjaldgæft að bækur hafi þessi áhrif á mig í seinni tíð. Ég er alltof upptekinn af umbúðum, frásagnartækni og almennum vinnubrögðum höfundar til að láta heillast jafn óhikað inn í heim sem þokar öllu öðru í burtu. Ef ég legg frá mér hálfnaða bók sem ég kann að meta og er staðráðinn í að klára er það I mesta lagi til að fara inn í eldhús að sækja harðfisk eða tebolla, ég tek mér jafnvel hlé frá lestrinum til að skoða tölvupóst og sinna köllum sem eiga ekkert skylt við nostalgíu, eru þvert á móti niðurnjörvuð í þrásviptan og gráklipptan hversdagsleikann, ég skoða fasteignasíðu eða fer að hugsa um hvernig eigi að mála gamla viðarkommóðu í skærum lit til þess að lífga hana svolítið upp. Hæfileikinn til að þjást og kljást inni í öðrum heimi - heimi bókanna - hefur tekið á sig annað form, hið fullorðinslega form skynsemisverunnar sem keppist við að vega og meta allt sem fyrir sjónir hennar ber (stað þess einfaldlega að njóta. Ég stend upp eftir latteþeytingi og einset mér að afbyggja ekki neitt. Ég ætla að hugsa um framhaldið af Bróður mínum Ijónshjarta, þar sem Snúður °g Jónatan vakna saman f Nangilima. Og þó ég viti að sú bók verður aldrei skrifuð get ég allavega ímyndað mér efni hennar; glaðst yfir því að sakna þess sem er ekki einu sinni til. Höfundur er skáld og rithöfundur

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.