Börn og menning - 01.09.2012, Side 19
Átta mánaða kríli og svooona stórt!
Fyrsta æviskeið Barnabókasetursins á Akureyri
Það var kaldur en bjartur laugardags-
morgunn á Akureyri. Bærinn lá hljóður
undir fannhvitu teppi, eins notalega
kuldalegur og hann verður í byrjun febrúar.
Allar lyftur suðuðu i fjallinu, sundlaugin
var volg og Brynjuísinn kaldur, allt eftir
uPpskriftinni. Frá bókasafninu barst hins
vegar ilmur gömludaganna, frá rykföllnum
harnabókum og úr risastórum pottum.
Sýningin „Yndislestur æsku minnar"
var kominn upp á vegg og akureyrski
^ugardagsgrauturinn mallaði í eldhúsinu.
Þar stóðu nú búsældarlegar matseljur,
skömmtuðu rúsínur, blönduðu kanilsykur
°9 helltu á könnuna. Við sem höfðum
mánuðum saman unnið að undirbúningi
þessa dags vorum svolítið stressuð. Skyldi
einhver mæta svona snemma dags, skyldi
fólk i alvöru hafa áhuga á barnabókum og
lestri barna ?
Áhyggjurnar reyndust með öllu óþarfar.
Eins og í ævintýri seiddi grautarilmurinn
bæjarbúa að bókasafninu og þegar
dagskráin hófst var setið í öllum sætum og
staðið og kúrt (svona eftir aldri) meðfram
öllum veggjum. Sigrún Klara Hannesdóttir,
guðmóðir Barnabókasetursins, sagðist hrærð
og feimin þegar hún ánafnaði setrinu safn
sitt af barnabókum. Svo las hún kafla úr
Heiðu og mikið átti jákvæðni stelpunnar
nú vel við. Katrín Jakobsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, mætti með
Jón Odd og Jón Bjarna - og góða ávísun.
Rithöfundar og krakkar lásu úr barnabókum
og börnin hlustuðu, södd og sæl. Foreldrarnir
rifjuðu brosandi upp bækurnar sem þeir lásu
með vasaljós undir teppi á sjónvarpslausari
tímum. Við vorum alsæl - en gerðum okkur
enga grein fyrir atinu sem var framundan.
Barnabókasetrið var stofnað 4. febrúar
sl. i Amtsbókasafninu á Akureyri en
viljayfirlýsing um stofnun þess var undirrituð
á degi íslenskrar tungu 2011. Formlega
heitir það Barnabókasetur - rannsóknasetur
um barnabókmenntir og lestur barna við
Háskólann á Akureyri. Samstarfsaðilar eru
Háskólinn, Amtsbókasafnið og Minjasafnið
á Akureyri. í stjórn setursins, sem skipuð
var á stofnfundinum, eru auk mín Hólmkell
Hreinsson Amtsbókavörður og Haraldur Þór
Egilsson Minjasafnsstjóri. Auk þessara þriggja
stofnana gerðust nokkur samtök stofnaðilar;
Rithöfundasambandið, Samtök barna og
unglingabókahöfunda (S(UNG), IBBY og
Félag fagfólks á skólasöfnum.
Hlutverk setursins skv. stofnskrá eru
eftirfarandi:
• Að efla og stunda rannsóknir og fræðslu
um barnabókmenntir og lestur á íslandi.
• Að miðla þekkingu og upplýsingum um
barnabókmenntir á íslandi.
• Að vinna að framgangi lestrarmenningar
meðal barna og ungmenna á íslandi.
• Að efla og treysta innlend og erlend tengsl
og taka þátt í alþjóðlegri þekkingarsköpun
á fræðasviðinu.
• Að hvetja háskólanemendur í rannsóknar-
og þróunarverkefnum á framhaldsstigi
og skapa þeim aðstöðu til að stunda
rannsóknir á sviðinu.
• Að standa fyrir málþingum og stuðla að
útgáfu fræðilegs efnis á sviðinu.
Við höfum lagt okkur fram við að sinna
sem flestum af þessum málaflokkum fyrstu