Reginn - 01.02.1968, Blaðsíða 3

Reginn - 01.02.1968, Blaðsíða 3
R E G I N N 3 Æskulýðsheimili Siglufjarðar tók til starfa, að þessu sinni 15. október s.l. og starfar væntanlega til aprílloka. — Heimilið er opið alla daga, nema mánudaga, sem hér segir: Simnudaga kl. 16,30—22,30 Þriðjudaga — 16,00—22,30 Miðv.daga —< 16,00—18,30 Fimmtud. — 16,00—22,30 Föstudaga — 16,00—18,30 Laugardaga — 16,00—22,30 Gert er ráð fyrir að ekki séu gestir heimilisins yngri en 7 ára, og eftir kl. 20 fá yngri en 14 ára ekki aðgang. Hér er um opið hús að ræða sem hver getur heimsótt innan þeirra aldursmarka, sem getið er. Heimilið hefur til umráða ýmis leikáhöld og tæki, sem gestir fá til af- noita. Á fimmtudögum eru allt- af kvikmyndasýningar, eink- um fyrir þá yngri. Á laug- ardagskvöldum dansleikir eða spilakvöld fyrir þá eldri. Námskeið hefur verið í filtvinnu, sem forstöðukon- an, Anna Magnúsdóttir, sá um. Ætlunin er að fljótlega hefjist skólafræðsla og leið- beiningar í framsögn. Allt er ókeypis, sem fram HÉR Á ÆSKAN HEIMA fer, nema 3—5 kr. aðgangur á kvikmyndasýningar. Ýmsir klúbbar og hópar hafa samastað 1 Æskulýðs- heimihnu og koma saman á fundi og starfstundir á viss- um dögum og tímum. Sumir fá umráð yfir sér herbergj- um. Stofnað var myntsafnara- félag og fékk það hér irmi. iSkátar: stúlkur, Valkyrjur, og drengir, Fýlkir, eru hér til húsa með starfsemi sína og fundi, bæði sameiginlega og sitt í hvoru lagi. Barna- stúkan hefur fundi annan hvem sunnudag kl. 10 að morgni. Fram að áramótum vom gestir heimilisins um 5000 að meðtöldum þeim, er þar halda fundi sína. Forstöðukona heimilisins í vetur er frú Ánna Magnús- dóttir. Æskulýðsráð Siglufjarðar sér um rekstur heimihsins og nýtur til þess framlags frá Siglufjarðarkaupstað, rkissjóði og Áfengisvarnar- ráði o.fl. aðilum. Ráðið skipa fuhtrúar ýmissa félagasam- taka á Siglufirði. Formaður hefur verið Ragnar Fjalar Lámsson, varaform. Stein- dór Hannesson og gjaldkeri frú Herdís Guðmundsdóttir. Til lesendanna Blaðið BEGINN, blað templara í Siglufirði, hefur nú komið út í 30 ár. Er það blaðnefnd st. Framsókn nr. 187, sem séð hefur um útgáfu blaðsins. Má það telj- ast merkilegt starf, að halda úti bindindisblaði í 30 ár. Til þess hefur þurft fórnfúst starf og fjárhagslegan stuðning velunn- ara. En þetta hvorttveggja hef- ur Beginn hlotið. Argjald blaðs- ins er nú 25 kr. og eru kaup- endur beðnir að greiða það til Helga Ásgrímssonar, Eindargötu 1, Siglufirði. BEGINN Ákveðinn drengur Dag nokkurn gekk tíu ára drengur niður á bryggju og horfði hrifinn á bátana, sem voru við hafnargarðinn. Sjómaður nokkur veitti honum allt í einu athygli og kailaði til hans: „Viltu skjótast fyrir mig í svo- litla sendiferð, drengur minn?“ „Já, það skal ég gjaman gera,“ svaraði drengurinn og hljóp til hans. Þá sagði sjómaðurinn: „Farðu með þessa flösku til hans Bjarna og sæktu fyrir mig brennivín. Héma em peningar til þess að greiða vínið.“ „Nei, þetta get ég ekki gert fyrir þig,“ svaraði drengurinn. Hann sneri sér við og bjóst til að fara. „Bíddu rólegur! Þú skalt fá tvær krónur, ef þú gerir þetta fyrir mig.“ „Nei, ég get það ekki.“ „Hvað er þetta, drengur minn? Hvers vegna geturðu það ekki?“ Þá svaraði drengurinn: „Hann pabbi minn segir, að ég skuli forðast áfenga drykki og aldrei hafa nein afskipti af þeim. Og ég er ákveðinn í að gera það sem pabbi segir." Drengurinn hélt leiðar sinnar, en sjómaðurinn horfði á eftir þessum ákveðna snáða, orðlaus af undmn, með flösku sína og peninga í höndunum. S. G. Þýtt og endursagt FUNDUR í stúkuimi Framsókn nr. 187 í BORGARKAFFI þriðjudagiim 6. febrúar, kl. 20,30. Templarar. Mætum öll stundvíslega.

x

Reginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.