Reginn - 01.02.1968, Qupperneq 5
R E G I N N
5
Raddir æskunnar Raddir æskunnar
irnir eru framdir undir áhrifum áfengis. Ég gæti trúað að margur
maðurinn hugsaði til þess eftir á, hve feginn hann vildi gefa allt
til að þetta hefði ekki komið fyrir. Það hlýtur líka að vera voða-
legt fyrir börn þessara manna, að verða að upplifa það, að pabbi
þeirra verði einhverjum að bana í ölaeði Annars er ég bara hissa
á því, að þeir sem ráða mestu yfir þjóðinni skuli leyfa að flytja
áfengið, þennan útlenda óþverra, inn í iandið.
Óttar Bjarkan Bjamason
Tóbak og áfengi
Hvað er tóbak? Allt tóbak er unnið úr
tóbaksplöntunni Nikotina tabascum, sem
er upprunnin frá Suður-Ameríku. 1 blöð-
um tóbaksjurtarinnar er efni sem heitir
nikotin, sem er eitthvert sterkasta eitur,
er menn þekkja. Ef prjóni, sem er vættur
í nikotini, er haldið fyrir framan nefið
á litlum fugli, deyr hann samstundis. Og
ef tóbaksblöðin eru soðin og einum dropa
af soðinu er dælt inn í æð á mús, deyr
hún, eins og hún væri skotin. Menn neyta
tóbaks með ýmsu móti. Ekki aðeins með
þvi að reykja það, heldur einnig með því
að tyggja það og taka það í nefið. En
menn borða það ekki, til þess er það of
hættulegt. Við alla vinnu hverju nefni sem hún nefnist, eða íþróttir,
dregur áfengis- og tóbaksnautn úr afköstum og eykur slysahættu.
Fjölmargar vísindalegar rannsóknir hafa sannað, að áfengi dregur
úr vinnuþreki. Hver einasti íþróttamaður á að vita, að hann nýtur
sín ekki ef hann hefur neytt áfengis, allra sízt fyrir keppni.
Stundum íþróttir og vinnum vel öll okkar verk. Neytum aldrei
áfengis né tóbaks! Þorgerður H. Hlöðversdóttir
Áfengi og tóbak
Áfengi
Öll áfengisneyzla hefur örfandi áhrif á
blóðrásina og gerir menn rauða í andliti,
ef þess er neytt í miklum mæli. Vegna
hinna örfandi áhrifa finnst mönnum að
þeim líði vel og séu færari til fram-
kvæmda en áður. En svo er þó ekki, held-
ur þver öfugt, því að vegna áfengisneyzl-
unnar sljófgast skynfærin og öll hugsun,
og því meira, sem meira er neytt af áfeng-
inu. Mikil og stöðug áfengisneyzla hefur
skaðleg áhrif á líkamann, einkum á
taugakerfið og á lifur og nýru. Þeir, sem
eru veikir, þola illa áfengi og verður þáð
jafnvel til þess að auka á veikindin, þvi
að áfengið dregur úr mótstöðuafli líkam-
ans gegn sjúkdómum. Vegna þeirrar vellíðunar, sem mönnum finnst
að þeir njóti við að drekka áfengi, verður reyndin jafnan sú, að
menn vilja drekka meira og meira og endar oft með þvi, að menn
verða ofurölvi. Þannig á sig kominn veit viðkomandi ekki hvað
hann gerii og verður það oft til þess að hann framkvæmir alls-
konar óhæfuverk.
Tóbak
Allt tóbak inniheldur eiturefni, sem kallast nikotin. Nikotinið er
talið vera eitthvert sterkasta eitur, sem til er. Menn neyta tóbaks
á ýmsa vegu, ekki aðeins með því að reykja það, heldur einnig
með því að tyggja það og taka það í nefið. Eitrið í tóbakinu hefur
lamandi áhrif á taugakerfið og líkamann. Þegar menn eru búnir
að reykja lengi, finnst þeim að þeir geti ekki verið án tóbaks. Sé
tóbaks neytt að nokkru ráði í langan tíma, hefur það skaðleg áhrif
Raddir æskunnar Raddir æskunnar
á æðakerfið og lungun. Með tímanum hættir þeim, sem reykja, til
þess að fá krabbamein í lungu. Það er líka einkenni mikilla reyk-
ingamanna, að þeir verða mjög móðir við alla áreynslu og eru
með of tíðan hjartslátt. Kristín Hjörleifsdóttir
Áfengi er eitur
1 áfengum drykkjum er eiturefni, sem
nefnist vínandi. Vínandi er tær vökvi með
sterkri lykt. Þegar áfengis er neytt, berst
vínandinn með blóðinu um allan líkam-
ann, og veldur truflun og lömun á tauga-
kerfinu. Þess vegna er vínandi hættulegt
eitur.
Við, sem nú erum að alast upp, eigum
eftir að lenda í ýmsum hættum og margt
ber okkur að varast, er við vitum að er
skaðlegt heilsu okkar. Ein af hættunum
er áfengið. Þess vegna skulum við forðast
það.
Við höfum oft séð drukkna menn úti
á götum. Þeir ganga slagandi, syngjandi,
með allskonar hávaða, jafnvel þótt hánótt sé. Halda þeir þá vöku
fyrir fólki, sem þarf að sofa. Auk þess geta þessir drukknu menn
orðið fyrir ýmsum slysum, þar sem þeir eru svo sljóir á sál og
líkama. Það hlýtur að vera mikil raun fyrir böm, sem eiga drykkju-
mann fyrir föður. Ekki er ólíklegt, að þau hugsi sér að verða sín-
um bömum betri, og láta þau ekki þurfa að þola þá raun, að
eiga drykkfellda foreldra. Áfengi er hættulegt eitur.
Aðalsteinn Oddsson
Æska og bindindi
Enn erum við hvött til að láta í ljós
álit okkar á mesta bölvaldi þjóðarinnar:
tóbakinu og áfenginu. Áfengisneyzlan hef-
ur ekki minnkað, heldur aukizt, því er
verr, og er það illa farið. Það er eins og
sumir unglingar og fullorðið fólk miklist
af því að reykja og drekka og er byrjunin
oft af fikti, og þá finnst þeim þeir vera
miklir menn. Það er sorglegt til þess að
vita, að fullorðnir eiga stundum sök á
því. Það er ekki ósjaldan, að unglingum
er borið vín og bjór, og þeir neyta þess,
án þess að hafa hugmynd um afleiðing-
amar af því. Það eru mörg heimili, sem
eiga um sárt að binda sökum þess, að
heimilisfaðirinn er drykkjumaður, og áreiðanlega margt barnið, sem
fellt hefur tár af þeim sökum. Það er ekki aðeins eyðsla fjármuna,
sem hér er um að ræða, heldur einnig heilsa okkar, hún er áreiðan-
lega þess virði að um hana sé hugsað.
Reykingar eru hættulegar fyrir lungu og hjarta, en vín fyrir allt
taugakerfið. Við ættum að hugsa um það, að góð heilsa er það
dýrmætasta, sem við eigum.
Við hér á Siglufirði eigum okkar tómstundaheimili og ættum að
leggja leið okkar þangað, en ekki á sjoppumar, en þar sitja alltaf
margir og reykja og drekka gos, og er það oft byrjun á annarri
óreglu. Væri ekki réttara fyrir okkur að spara saman aura okkar,
en eyða þeim í ýmsan óþarfa, eins og t. d. í gos, sælgæti og reyk •
ingar. Við, sem viljum halda uppi heiðri þessa bæjar, gerum það
bezt með því að neyta hvorki tóbaks né áfengis, og verða með þvi
foreldrum okkar og bæjarfélaginu til sóma.
Sigríður Skarphéðinsdóttir
Framhald á 7. síðu