Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.03.1978, Qupperneq 5
FÉLAGSTÍÐINDI
5
undanfömum árum, að einstáklingar hafi
fengið einhliða hækkun x launastiga af
óræðum völdum, án þess að við kænum þar
nokkuð nærri. Því skýtur nokkuð skökku
við, að úrskurður Kjaranefndar skuli
hljóða svo mjög upp á vilja samninga-
nefndar ríkisins gagnvart starfslýsingum.
Annars eru skilgreiningar svó úr garði
gerðar frá Kjaranefnd, að illmögulegt er
að vinna eftir þeim".
MISRÉTTI MILLI HÚPA
SB-1 VINNA HLIÐ VIÐ HLIÐ
- Hvaða atriði í síðasta úrskurði
Kjaranefndar um sérkjarasamning SFR eru
þór mest á móti skapi?
"Það, sem ef til vill er allra sárast,
er þegar starfsstéttir, sem vinna hlið við
hlið, njóta ekki sömu umbunar t.d. að því
er varðar gæsluvaktarálag. Það er og
verður krafa okkar, að umbun fyrir gæslu-
vaktir sé innt af hendi með 100% vakta-
álagi. Það þarf því engan að undra þótt
nú þegar séu uppi veruleg andsvör við því
að einstaklingum og starfshópum skuli
mismunað í greiðslum fyrir gæsluvaktir
eftir aðild að félögpra innan BSRB.
Að öðru leyti sjáum við ekki fyrir
endann á störfum Kjaranefndar. Þó má geta
þess, að innan okkar félags eru ýmis störf,
sem eru mjög sambærileg öðrum störfum í
opinbera kerfinu. Úg á við ýmis löggæslu-,
eftirlits- og umsjónarstörf. Félagsmönnum
innan SFR hefur æ ofan í æ, mörg ár aftur
í txmann, verið mismunað í launum miðað
við réttlætiskennd okkar, sem erum í for-
svari fyrir SFR. Það getum við ekki sætt
okkur við, og þetta verður aldrei til
annars en að auka á óróann í samskonar
málum félagsins við fjármálaráðuneytið.
- Hafa farið fram viðræður við ríkis-
valdið um framkvæmd á úrskurði kjara-
nefndar?
"Já, við erum aðeins komnir x snertingu
við launadeild fjármálaráðuneytisins í
því sambandi. Vinnuhópar okkar eru
farnir að senda sína oddvita í viðræður
við fulltrúa launadeildarinnar. Ðdært
hefur enn komið út úr því, nema hvað
stefnt er að því að reyna að koma þessum
málum í gegn á sem skemmstum txma".
- Það er þá ekki hægt að meta nákvænlega
hvað kemur út úr þessum úrskurði í heild?
"Nei, en miðað við úrskurðinn sem
liggur fyri.r frá Kjaranefnd, og miðað við
afstöðu samninganefndar rxkisins, þá á ég
ekki von á því, að við komum mjög feitir
út úr sérkjarasamningunum".
- Nú hafa meinatæknar sagt upp störfum
vegna úrskurðar Kjaranefndar. Eru fleiri
hópar jafn óánægðir og vonsviknir?
"Okkur hefur aðeins borist erindi frá
þessum eina hópi. En þar sem þetta er
innan heilbrigðishópsins, þá hefur hann
reynst samstilltur, að það kæmi mér ekkert
á óvart, þótt þetta yrði enn víðtækara
en þegar er orðið".
- Sýnir reynsla síðustu tveggja ára ekki,
að það sé ekki til neins að búast við
verulegum lagfæringum frá Kjaranefnd?.
"Fram að þessu höfum við ekki aðra reynslu
af Kjaranefnd. Ég tel, að löggjafarvaldið
hafi ætlað Kjaranefnd ákveðið hlutverk.
Ef hún misfer með það að okkar dómi, þá
endar með því, að rxkisstarfsmenn sprengja
þennan stakk af sér, menn leita annarra
leiða. Menn róa ekki á auð fiskimið".
ÚMERKILEG
VINNUBRÖGÐ
- Svo við víkjum aðeins frá Kjaranefnd
og að stöðunni í kjaramálum almennt. Hvert
er álit þitt á aðför rxkisvaldsins að gild-
andi kjarasamningum?
"Ég er furðu lostinn yfir því, að bestu
menn þjóðarinnar, sem trúað er fyrir því
að stjórna þjóðarskútunni, skuli skrifa
undir samninga við okkur, taka á sig fé-
bótarábyrgð, en snúi sér síðan við eftir
örskamman txma og rifti öllu með einu
pennastriki. Það er ótrúlegt, að þessir
menn skuli leyfa sér að sitja Pteð okkur
við samningaborð og undirrita við okkur
samning, en verða síðan berir að því
eftir á, að þeir hafi aldrei ætlað sér að
standa við það, sem þeir undirrituðu.
Þetta eru ómerkileg vinnubrögð, og þannig
vilja launþegar alla vega ekki vinna að
sínum málum".
- Það er öllum kunnugt til hvaða aðgerða
launþegar hafa gripið til að mótmæla
þessum aðgerðum. Er að vænta frekari
aðgerða á næstunni?
"Það er allt óákveðið af okkar hendi sem
stendur. En ef óxxSi verður á vinnumarkað-
inum út af þessu máli -þá væri mjög óeðli-
legt að rxkisstarfsmenn sætu þegjandi yfir
sínum skertu kjörum. Það er ekkert eðli-
legra en að þeir láti þá til sín heyra
og árétti sinn rétt til þess, að staðið
verði við þær fjárskuldbindingar, sem
gerðar voru við okkur á síðastliðnu
hausti".
- Nú er síðasta aðgerð ríkisvaldsins
að draga af þeim, sem tóku þátt í að-
gerðunum 1. og 2. mars, kaup á eftir-
vinnutaxta. Hvert er þitt álit á því?
Framh. á bls. 7