Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 29.03.1978, Side 8
8
FÉLAGSTÍÐINDI
Vinnustaðurinn minn
SAMÁBYRGÐ
ÍSLANDS
Á FISKISKIPUM
Þótt Samábyrgð íslenskra fiskiskipa
sé sjálfseignarstofnun, þá er starfs-
fólk hennar fullgildir aðilar í Starfs-
mannafélagi ríkisstofnana eins og starfs-
fólk ýmissa annarra stofnana, sem svipuð
tengsl hafa við ríkisvaldið. Trúnaðar-
maður SFR hjá Samábyrgðinni er Jóhannes
Þ. Jónsson, deildarstjóri, og r®ddi tíð-
indamaður Félagstíðinda við hann á dögun-
um.
Hann var fyrst beðinn að gera stuttlega
grein fyrir starfsemi Samábyrgðarinnar.
"Verkefni stofnunarinnar, sem nú er á
69. starfsári, er að tryggja skip, eins
og nafnið bendir til. Samkvsent lögum eru
öll skip, sem eru innan við 100 tonn,
skyldug til að vera tryggð hjá Samábyrgð-
inni, en auk þess eru ýmis stærri skip
einnig tryggð hjá okkur.
Stofnunin er eiginlega samnefnari
bátaábyrgðarfélaganna víðs vegar um landið,
en þau eru níu talsins. Skipin eru yfir-
leitt tryggð hjá þessum félögum en síðan
endurtryggð hjá Samábyrgðinni. Á arinu
1976 voru 590 skip undir 100 rúmlestum
þannig endurtryggð hjá okkur. Flest voru
tryggð skip hjá félaginu á Isafirði og
félaginu við Eyjafjörð, en fæst á Akranesi.
Þá eru skip, sem eru í eigu stofnana
ríkisins s.s. Landhelgisgæslunnar, Skipa-
útgerðarinnar og Hafrannsóknastofnunar-
innar, í frumtryggingu hjá Samábyrgðinni,
og það fer alltaf vaxandi, að skip sem eru
meira en 100 tonn séu tryggð hjá okkur".
- Hvernig er skipulag stofnunarinnar?
"Stofnunin starfar eiginlega £ þremur
deildum. Það er £ fyrsta lagi "Bráða-
fúadeildin", sem Pétur Sigurðsson veitir
forstöðu, "Slysa-, ábyrgðar-, farangurs-,
afla- og veiðifæratryggingadeild", þar
sem ég er deildarstjóri, og tjónadeildin,
en þar er Kristinn Einarsson deildarstjóri.
Framkvæmdastjóri stofnunarinnar er Páll
Sigurðsson, en Finnur Stephensen skrif-
stofustjóri.
Eins og áður sagði er hér um sjálfseigna- !
stofnun að ræða og hefur hún eigin stjórn,
stjórnarformaður er Agúst Flygera0'!ng.
Stofnunin stendur undir rekstri sínum sjálf,
en þarf þó að fá samþykki stjórnvalda við |
öllum iðgjaldahækkunum. Reksturinn hefur
gengið vel, og Samábyrgðin hefur skilað
hagnaði á undanförnum árum".
- Hver ákveður hversu hátt skuli tryggja
skip?
"Það er tjónadeildin sem metur skipin og
allt það sem í þeim er og gerir svo tillögu
um tryggingarupphró. Komi ekki sérstakar
breytingartillögur frá eigendum er skipið
tryggt samkvasmt því. Þetta mat er svo
endurskoðað reglulega".
- Hvað starfið þið mörg hjá stofnuninni?
"Við störfum 12 á skrifstofunni, en þar
að auki starfar einn eftirlitsmaður við
höfnina, Jón Sigurðsson frá Görðum. Hann
fylgist með skipunum í höfninni og lætur
viðkomandi aðila vita ef eitthvað er í
hættu. Þannig hefur hann sparað stórfé
á liðnum árum".
- Hvernig er vinnuaðstaða ykkar?
"Hún er mjög góð. Við erum í nýtískulegu
húsnæði við Lágmúla".
- Og launakjörin?
"Ég held að fólkið hjá okkur sé yfirleitt
betur launað en almennt hjá rikisstofnunum,
þótt auðvitað dugi engum það sem hann hefur
£ kaup".
- Er hægt að halda uppi félagsstarfsemi
á svona litlum vinnustað? Framh. á bls. 7
elisabet GuÐJOHNSEN
SCRLASKJOL 6
107 REYKJAVIK