Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2001, Blaðsíða 16
Skýrs 1 a s 1 jórdar SFR 2 0 0 0
Kj arasamningur
í Leifsstöð
Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) var
gerð að hlutafélagi 1. október
2000. Þó svo að ríkið eigi öll hluta-
bréfin í flugstöðinni verða félags-
menn okkar í Fríhöfninni ekki lengur
skilgreindir sem ríkisstarfsmenn,
heldur starfsmenn á almennum
vinnumarkaði. Kjarasamningur fyrir
félagsmenn okkar í FLE við þessar
breyttu aðstæður, var undirritaður
17. febrúar sl. og vár þar stigið nýtt
skref í sögu félagsins. SFR hefur ekki
áður samið fyrir hóp á almennum
markaði með þessum hætti. Þó var
fyrir samningur við meðferðarheimil-
ið FHáholt, sem er einkarekið en með
þjónustusamning við ríkið.
Kjarasamningurinn er við stjórn
FLE, en þeir hafa gengið í Samtök
atvinnulífsins og nutu því aðstoðar
þeirra við samningsgerðina. Samn-
ingamenn frá stjórn FLE voru Gísli
Guðmundsson, FHöskuldur Áskelsson
og Stefán Þórarinsson og FHrafnhild-
ur Stefánsdóttir frá Samtökum at-
vinnulífsins, en frá SFR Árni St. Jóns-
son, Jens Andrésson, Tryggvi Þor-
steinsson og Valdimar Þorgeirsson.
Töluverður tími hefur farið í gerð
þessa samnings. Flelgast það fyrst
og fremst af því að laga þurfti kjara-
samning SFR að nýjum aðstæðum,
þ.e.a.s. að kjaraumhverfi á hinum
almenna vinnumarkaði. Kjaraum-
hverfi ríkisins og almenna markaðar-
ins eru um margt mjög ólík og við
samningagerð er gengið út frá mjög
ólíkum forsendum. Almennt er
hægt að segja að kjaraumhverfi rík-
isins byggi á öflugum réttindum og
tiltölulega föstum ákveðnum laun-
um, en á almenna markaðinum er
byggt á minni réttindum og launurm
sem ákvarðast eftir því hvernig al-
mennt efnahagsástand er í þjóðfé-
laginu. f efnahagslegri uppsveiflu,
þar sem mikil eftirspurn er eftir
vinnuafli, hafa laun á almennum
markaði tilhneigingu til að aukast
en lækka í niðursveiflu. FHjá ríkinu
koma þessar sveiflur vissulega einnig
fram, en þó í mun minni mæli.
Frá undirritun samningsins í húsakynnum Samtaka atvinnulífsins.
16
Félagslfðindi - raars 2001