Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.03.2001, Side 18
Dóms-
mál
Eins og undanfarin ár hefur
Gestur Jónsson lögfræðing-
ur sinnt lögfræðilegri þjónustu
við SFR. Gestur er með sér-
staka tíma fyrir aðildarfélög
BSRB tvisvar í mánuði. Félögin
panta tíma hjá honum í gegn-
um BSRB en öll mál einstakra
félagsmanna, sem hugsanlega
þurfa lögfræðilegrar skoðunar
við, fara fyrst til athugunar á
skrifstofu SFR þar sem tekin er
ákvörðun um hvort málið fari
áfram til Gests.
Á hverju ári er þó nokkur
fjöldi mála sem fer þessa leið.
Flest þeirra leysast farsællega
en alltaf eru einhver mál sem
þarf að leita til dómstóla með.
Á árinu fengust niðurstöður
í þremur málum sem SFR hafði
lagt fyrir dómstóla. í tveimur
þeirra dæmdi héraðsdómur.
Annað málið vannst en hitt
tapaðist. Málinu sem tapaðist
var vísað til Hæstaréttar, en
þar sem um svo lágar fjárhæð-
ir var að ræða hafnaði réttur-
inn því.
Eitt mál var dæmt í Hæsta-
rétti og tapaðist þar, en áður
hafði það unnist í héraðsdómi.
Tvö mál eru nú til meðferðar
hjá dómstólum og er niður-
stöðu að vænta innan
skamms.
Trúnaðarmenn á námskeiði í Árbæjarsafni.
Trúnaðarmannaráð og
trúnaðarmannafræðsla
Trúnaðarmannaráð kom saman sjö
sinnum á árinu. Á fundunum
voru m.a. haldin fræðsluerindi, skoð-
uð helstu einkenni íslenska dómkerf-
isins, fjallað um skoðanakönnun sem
gerð var meðal félagsmanna í febrú-
ar, tekin fyrir kröfugerð SFR fyrir
kjarasamninga og baráttumál/verkefni
opinberra starfsmanna haustið 2000,
símenntun félagsmanna, frumvarp
ríkisstjórnar um fæðingarorlof og
samkomulag um réttindamál. Einnig
hafa fundirnir snúist um almenn fé-
lagsmál, undirbúning fyrir aðalfund
o.fl.
Fræðslumorgnar fyrir
trúnaðarmenn hafa verið haldnir á
undan fundum ráðsins og eru þeir
skipulagðir af fræðslunefnd félagsins.
Trúnaðarmannanámskeiðin, Sam-
stíga til framtíðar I og II, voru haldin á
árinu í samvinnu við Starfsmannafé-
lag Reykjavíkurborgar. Fjögur grunn-
námskeið, Samstíga til framtlðar I, og
sex framhaldsnámskeið, Samstíga til
framtíðar II. Unnið var að undirbún-
ingi framhaldsnámskeiðsins haustið
1999 og var það fyrsta haldið um
mánaðamótin febrúar/mars 2000.
Framhaldsnámskeiðið mæltist vel fyrir
hjá trúnaðarmönnum, en nokkrar
ábendingar komu þó fram um hvað
betur mætti fara og var því ákveðið
að endurskoða skipulag þess yfir
sumarmánuðina Eitt námskeið hefur
verið haldið eftir þessa endurskoðun
og var almenn ánægja með það.
Framhaldsnámskeiðið er haldið í
Kornhúsinu í Árbæjarsafni og hafa
þátttakendur haft á orði að þeim þyki
gott að vera í Árbæjarsafni og það sé
það næsta sem hægt sé að komast
því að finna fyrir sveitasælu í höfuð-
borginni.
18
Félagstfðindi - mars 2001