Fréttablaðið - 24.03.2021, Page 1

Fréttablaðið - 24.03.2021, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —5 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . M A R S 2 0 2 1 Stöðugur hraunstraumurinn í Geldingadölum heldur áfram að laða til sín gosáhugafólk. Þorvaldur Þórðarson, jarðvísindamaður hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, segir merkilegt að sjá hversu stöðugt hraunf læðið hefur verið úr eldfjallinu í stað þess að það dragi úr krafti þess eftir því sem dagarnir líða. Með þessu áframhaldi fyllast dalirnir á næstu vikum. Nóg er að gera hjá björgunarsveitum við að sjá til þess að fíf ldjarfir gestir lendi ekki í háska og eru áætlanir uppi um að bæta símasamband á svæðinu á næstu dögum. Sjá síðu 6 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR VIÐSKIPTI Stærstu keppinautar Festar sem hefur verið boðin verslun Kjarvals á Hellu til sölu, en Festi er skylt að selja hana samkvæmt sátt við Samkeppniseftirlitið, hafa engan áhuga á henni nema með því að fá aðrar eignir á gjafverði. Versluninni verður að óbreyttu lokað í maí. Samkvæmt sátt við Samkeppnis- eftirlitið frá árinu 2018 er Festi skylt að selja verslun Kjarvals á Hellu. Til- raunir til að selja verslunina hafa ekki borið árangur en í byrjun árs náði Festi samkomulagi um sölu til Sigurðar Elíasar Guðmundssonar. Samkeppniseftirlitið kom í veg fyrir söluna og sagði kaupandann ekki uppfylla skilyrði sáttarinnar. „Það skýtur skökku við,“ útskýrir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festar, „að efast um fjárhagslegan styrk hans þegar litið er til þess að rekstrarfélag í hans eigu er með 800 milljónir í eigið fé og þá hefur hann reynslu af verslunarrekstri á svæðinu og er ekki háður okkur á neinn hátt.“ Eggert segir að eftirlitið hafi verið upplýst um það í byrjun september að Festi hefði sagt upp leigusamningi verslunarinnar á Hellu og ætti í við- ræðum við áhugasaman kaupanda. „Óskað var í tvígang eftir fundi með Samkeppniseftirlitinu vegna málsins en ekkert svar barst fyrr en um tveimur mánuðum síðar.“ Aðspurður segir Eggert að félag- ið muni að óbreyttu, takist ekki að selja verslunina áður en leigusamn- ingurinn rennur út 1. maí næstkom- andi, loka versluninni. „Ljóst er að stærstu keppinautar félagsins, sem hefur verið boðin verslunin til kaups, hafa engan áhuga á henni nema Festi greiði með sölunni umtalsverða fjármuni með því að fá aðrar eignir félagsins með á gjafverði,“ segir Eggert. Spurður hvort hann óttist að eftirlitið bregðist illa við gagnrýni Festar segir Þórður Már Jóhannes- son, stjórnarformaður félagsins, að tíminn verði að leiða það í ljós. „Það eitt að upplýsa eigendur um þessi mál á aðalfundi hlýtur að vera eðli- legur hlutur.“ – hae, þfh / sjá Markaðinn Sölunni á Kjarvali siglt í strand Festi mun að óbreyttu loka verslun Kjarvals á Hellu í maí. Sölu verslunarinnar var synjað af Samkeppniseftir- litinu. Stórir keppinautar vilja aðrar eignir á gjafverði í kaupbæti fyrir að kaupa verslunina að sögn forstjóra. Ekkert svar barst frá eftirlitinu fyrr en um tveimur mánuðum síðar. Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festar Festar. VIÐSKIPTI Eyrir Invest hefur bæst í hluthafahóp íslenska tæknifyrir- tækisins Carbon Recycling Interna- tional (CRI), sem framleiðir metanól úr koltvísýringi og vetni, með fjár- festingu í félaginu fyrir jafnvirði um 1.300 milljóna króna. Með kaupunum mun fjárfest- ingafélagið eignast tíu prósenta hlut og Þórður Magnússon, stofnandi og stjórnarformaður Eyris, hefur tekið við sem stjórnarformaður CRI. „Við teljum að miklir vaxtar- möguleikar séu fyrir hendi í þeirri tækni sem CRI hefur þróað og þegar sannreynt,“ segir Þórður. Fyrirtækið, sem velti um 700 milljónum króna í fyrra, vinnur nú að undirbúningi skráningar á Euro- next Growth markaðinn í Osló með norska viðskiptabankanum Spare- bank1. – hae / sjá Markaðinn Eyrir Invest fjárfestir í CRI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.