Fréttablaðið - 24.03.2021, Síða 2

Fréttablaðið - 24.03.2021, Síða 2
Veðurguðir með valkvíða Íbúar höfuðborgarsvæðisins þurftu að taka alla fataf lóruna með sér til að bregðast við breytingum á veðráttunni í gær. Í byrjun dags var hvítt lag yfir Reykjavíkurborg en þegar komið var að hádegi voru sólargeislarnir búnir að láta til sín taka og bræða snjóinn. Undanfarna daga hefur verið stutt á milli vorblíðunnar og snjókomu og þarf því að vanda fatavalið vel þegar haldið er út í daginn á hverjum morgni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK www.partybudin.is Faxafeni 11, 108 Reykjavík S: 534-0534 myndabas! Sjá nánar á booth.is Partýbúðin hefur tekið við rekstri tækjaleigunnar booth.is þar sem leigja má allskyns græjur fyrir partýið! ferming framundan? COVID-19 „Það sem tengist námi nemenda kom nokkuð vel út en þegar andleg líðan er skoðuð er ekki alveg sömu sögu að segja,“ segir Sig- valdi Sigurðarson, verkefnastjóri hjá Sambandi íslenskra framhalds- skólanema (SÍF). Hann flytur í dag erindi á málþingi um líðan og hagi framhaldsskólanema ásamt Mar- gréti Lilju Guðmundsdóttur frá Rannsóknum og greiningu. „Ég mun kynna niðurstöður könn- unar sem við hjá SÍF framkvæmdum og Margrét mun kynna niðurstöður Rannsóknar og greiningar og þær sýna allar svart á hvítu hvernig and- legri heilsu nemenda hefur hrakað síðustu ár,“ segir Sigvaldi. Þá segir Sigvaldi niðurstöður rannsóknar SÍF hafa sýnt að um átta prósent nemenda í framhaldsskóla séu í áhættuhópi vegna COVID-19 og að 47 prósent eigi náinn aðstand- anda í áhættuhópi. „Þessi hópur nemenda er líklegri til að upplifa verri andlega heilsu en aðrir hópar og það þarf bæði að hlúa vel að honum og veita honum sveigjan- leika,“ segir hann og tekur dæmi um slaka á mætingu eða val milli stað- eða fjarnáms. Sigvaldi segir mikla óvissu hafa einkennt nám síðustu anna í fram- haldsskólum og að slíkar aðstæður geti verið streituvaldandi fyrir nem- endur. Stuttur fyrirvari hafi verið um breytingar á sóttvarnareglum og að dæmi séu um að nemendur hafi einungis fengið nokkurra daga fyrir- vara um hvernig próf eða skólahald eigi að fara fram. „Þetta er mikið álag á nemendur og til eru dæmi þess að nemendur sem ekki gátu eða ekki treystu sér til að mæta í skólann vegna þess að þau eða einhver náinn þeim voru í áhættuhópi, hafi verið bent á að skrá sig í fjarnám,“ segir Sigvaldi og bætir við að við slíkar breytingar geti útgjöld nemenda aukist. „Og þá komum við að fjárhags- legu hliðinni en það voru mun fleiri en við bjuggumst við sem sögðust hafa upplifað fjárhagserfiðleika í faraldrinum,“ segir Sigvaldi, en 42 prósent allra nemenda höfðu upp- lifað fjárhagserfiðleika og 70 pró- sent nemenda á leigumarkaði. Sigvaldi segir mikilvægt í þessu samhengi að tryggja sálfræðiþjón- ustu í alla framhaldsskóla sem sé gjaldfrjáls fyrir nemendur. Nú séu einungis starfandi sálfræðingar í um helmingi framhaldsskóla lands- ins. „Andleg heilsa er í frjálsu falli meðal þessa hóps. Biðlistar eftir sálfræðiaðstoð eru alltof langir og aðstoð á einkastofum er kostnaðar- söm og mikið álag er á náms- og starfsráðgjöfum. Það þarf að finna leiðir til að laga þetta,“ segir hann. Málþingið fer fram klukkan tólf í dag og er öllum opið. Skráning fer fram á rannsoknir.is. birnadrofn@frettabladid.is Nemar á leigumarkaði í fjárhagserfiðleikum Átta prósent framhaldsskólanema eru í áhættuhópi vegna COVID-19 og yfir 40 prósent hafa upplifað fjárhagserfiðleika í faraldrinum. Verkefnastjóri hjá SÍF segir andlega heilsu þeirra í frjálsu falli og auka þurfi sálfræðiaðstoð. Stór hópur nema á einhvern náinn í áhættuhópi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Sigvaldi Sigurðarson, verkefnastjóri hjá Sambandi íslenskra fram- haldsskólanema (SÍF) Öryggisgæslan í Geldingadölum. NÁTTÚRUVÁ „Ég var um tíma þarna í gær og það var bara virkilega gaman að vera innan um allt fólkið sem var komið til að berja þetta augum, bæði Íslendinga og útlenska ferða- menn. Fólk var heilt yfir vel búið og mikil gleði meðal þeirra sem voru komnir,“ segir Úlfar Lúðvíks- son, lögreglustjóri á Suðurnesjum, aðspurður hvernig gengið hafi að sinna eftirliti við eldgosið í Geld- ingadölum í gær. Ákveðið var að rýma svæðið klukkan fimm vegna gasmengunar sem fór yfir svæðið í logninu. Það var því varað við að almannavarnir myndu rýma gossvæðið seinnipart gærdagsins og gekk það nokkuð vel að sögn Úlfars. „Ég veit ekki betur en að það hafi gengið vel, við tökum það betur fyrir á morgunfundinum en það gekk bara heilt yfir vel fyrir sig. Auð- vitað voru einhverjir sem þurftu frá að hverfa vegna þessarar lokunar en heilt yfir erum við ánægðir með þetta.“ – kpt Rýmingin gekk vel í gærkvöld COVID-19  Bilun í tölvukerfi gerði það að verkum að ekki tókst að ræsa greiningartæki sem notað er til að greina COVID-19 sýni á veiru- fræðideild Landspítalans í gær. Fyrir vikið lentu fáeinir einstaklingar í því að þurfa að bíða eftir niðurstöðum úr skimun en þeir áttu það allir sam- eiginlegt að vera með neikvætt sýni. Einn greindist með COVID-19 í sýna- töku sunnudagsins, sá var nemandi við Laugarnesskóla, en í gær greind- ust þrír til viðbótar. Þetta staðfesti aðstoðarskólastjóri Laugarnesskóla í samtali við Fréttablaðið í gær. Karl G. Kristins son, yfirlæknir sýkla- og veiru fræði deildar Land- spítala, segir að þau telji sig vera búin að leysa vandann en það komi í ljós á morgun. Takist ekki að ræsa búnað- inn er deildin með búnað tilbúinn til að greina sýnin. „Við héldum að það væri allt í lagi þar til að þessi bilun kom upp. Við teljum okkur vera með hugmynd um hvað fór úrskeiðis og það kemur í ljós hvort tilgáta okkar er rétt í fyrra- málið. Ef ekki erum við með aðra leið sem getur greint öll sýnin sem voru tekin.“ Að sögn Karls voru það ekki margir sem þurftu að bíða eftir niðurstöðunni. „Það fengu allir niðurstöðurnar sínar yfir daginn, flestir um hádegis- bilið. Það var búið að greina öll sýnin en niðurstöðurnar voru í einstaka tilvikum ekki að skila sér á rétta staði. Tölvudeildin okkar vann úr því og það gæti hafa tekið lengri tíma en vanalega en það á allt að hafa komist til skila,“ segir Karl og bætir við að öll sýnin sem hafi tafist hafi reynst neikvæð.  – kpt Aðeins neikvæð sýni sem sem töfðust í greiningu Einn greindist með COVID-19 í sýnatöku sunnudagsins. 2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.