Fréttablaðið - 24.03.2021, Page 4

Fréttablaðið - 24.03.2021, Page 4
www.lyfsalinn.is OPIÐ 8.30 - 18.00 virka daga Verið hjartanlega velkomin GLÆSILEGT APÓTEK Í ORKUHÚSINU URÐARHVARFI 8 NORÐURLÖND Um 40 prósent Íslendinga hafa neikvæðara viðhorf til Svíþjóðar en fyrir ári síðan, þegar heimsfaraldurinn var að festa rætur í Evrópu. Þar af hafa um 10 prósent mun neikvæðara viðhorf. En eins og flestir vita hafa Svíar farið sínar eigin leiðir í sóttvarnaaðgerðum og takmarkanir verið umtalsvert minni en í nágrannaríkjunum. Þetta kemur fram í nýrri nor- rænni könnun Sænsku stofnunar- innar, sem heyrir undir utanríkis- ráðuneyti Svíþjóðar. Könnunin var framkvæmd undir lok síðasta árs og haft var samband við þúsund manns í hverju landi Norðurlanda utan Svíþjóðar. Niðurstöðurnar voru svipaðar í Noregi, Danmörku og Finnlandi. Pär Ahlberger, sendiherra Sví- þjóðar á Íslandi, var hissa á niður- stöðunni. „Samband Svíþjóðar og Íslands er frábært,“ segir hann. Þó að viðhorfið í könnuninni sé svipað á Norðurlöndunum segir hann að neikvæðnin og núningurinn birt- ist með sterkari hætti milli fólks í Skandinavíu, sérstaklega Noregs og Svíþjóðar. Tugþúsundir Svía starfi á Oslóarsvæðinu og hafi ekki verið hleypt yfir landamærin. „Ég er sannfærður um að við- horfið gagnvart Svíþjóð lagist þegar faraldurinn er búinn,“ segir Pär. „Á milli Norðurlandanna eru miklir kærleikar.“ Flestir svarendur töldu viðbrögð Svía við COVID-19 faraldrinum helstu ástæðuna fyrir neikvæðara viðhorfi en áður. Stór hluti svar- enda í Danmörku nefndi einnig að innflytjendamál og glæpir spiluðu stóra rullu í viðhorfi þeirra en almennt séð mældist viðhorfið í Danmörku jákvæðast. Vel innan við 10 prósent sögðust hafa jákvæðara viðhorf í garð Svíþjóðar. Silja Dögg Gunnarsdóttir, for- maður Íslandsdeildar Norður- landaráðs, segir þá neikvæðni sem kom í ljós hafa verið rædda. „Sænskir þingmenn hafa sagt að það sé ákveðin Svíaandúð í gangi. Einkum á landamærasvæðunum.“ Silja segir hins vegar að þessi neikvæðni eða andúð birtist ekki í pólitísku samstarfi þjóðanna. „Í Norðurlandaráði höfum við ein- beitt okkur að því að þétta rað- irnar,“ segir hún. Í nóvember árið 2019 var samþykkt stefna um sam- félagsöryggi og allt árið 2020 hafi verið lögð rík áhersla á hana á öllum fundum með ráðherrum Norður- landanna. Hún segir samstarf og góð samskipti Norðurlandanna afar mikilvæg á tímum þegar vá steðjar að, ekki aðeins faraldrar, heldur náttúruhamfarir, hryðjuverk og fleiri ógnir. „Við höfum lagt áherslu á að tengja stofnanir betur saman þann- ig að það endurtaki sig ekki aftur, eins og gerðist í upphafi farald- ursins, að landamærum sé lokað án samráðs,“ segir Silja. Eins og Pär er Silja sannfærð um að sú andúð sem myndast hefur muni rjátlast af fólki þegar faraldrinum er lokið. „Faraldrinum fylgir mikil hræðsla og ekki að ósekju því fólk hefur dáið og eftirköstin eru alvarleg. Ég held og vona að þetta sé tímabundið ástand,“ segir Silja. kristinnhaukur@frettabladid.is Viðhorf til Svíþjóðar versnað á Norðurlöndunum á einu ári Samkvæmt nýrri könnun hafa viðhorf annarra Norðurlandabúa í garð Svíþjóðar versnað til muna á undanförnu ári. Fjörutíu prósent Íslendinga segjast hafa neikvæðara viðhorf til Svíþjóðar en áður og tæplega tíu prósent mun verra. Mjög fáir segjast hafa jákvæðara viðhorf til Svíþjóðar en fyrir ári síðan. Svíar hafa ekki skorað mörg stig hjá frændþjóðum sínum í faraldrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI S K I PU L AG S M ÁL „Við er um að bregðast við ábendingum frá sjó- sundsfólki sem hafa komið því það er sívaxandi aðsókn í sjóinn,“ segir Hjálmar Sveinsson, formaður menningar-, íþrótta- og tómstunda- ráðs, en á fundi ráðsins í vikunni var samþykkt að sett verði upp aðgangshlið í vor vegna búnings- klefa og rætt um lengri opnunar- tíma, sem Hjálmar segir líklegt að taki gildi síðar á þessu ári, jafnvel í haust. Ylströndin var opnuð fyrir 20 árum og það þarf meðal annars að bæta aðgengi fyrir fatlaða á strönd- inni og vegna vinsælda er nánast uppselt í heita pottinn, jafnvel á köldustu dögum. Hjálmar, sem stundar sjósund sjálfur, segir að það hafi verið rætt að gera útiklefa meðal annars. „Sjó- sund gerir manni svo gott,“ segir hann. „Jafnvel á köldum vetrardögum er allt fullt af sjósundsfólki í Naut- hólsvík. Það eru 20 ár síðan þetta var opnað og það er alveg kominn tími á að skoða hvaða umbætur er hægt að gera þarna.“ Hann þekkir því vel til vin- sælda aðstöðunnar sem er sú eina í borginni. Í hugmyndasamkeppni borgarinnar Hverfið mitt komu vinsældirnar bersýnilega í ljós, því alls staðar vildu borgarbúar fá sjósunds aðstöðu í hverfið. Hjálmar segir að tveir staðir séu í kortunum. Í Gufunesi og á Laugar- nesi. „Það má segja að pælingin með Gufunes sé komin lengra. Hún er inni í Græna plani borgarinnar og þar er falleg skeljasandsströnd.“ – bb Kominn tími á umbætur á Ylströndinni í Nauthólsvík Heiti potturinn í Nauthólsvík er oft þétt setinn af sjósundsfólki. Ég held og vona að þetta sé tímabundið ástand. Silja Dögg Gunnarsdóttir, formaður Ís- landsdeildar Norðurlandaráðs Höfuðstöðvar Alvotech í Vatnsmýri. DÓMSMÁL Bandaríska lyfjafyrir- tækið AbbVie hefur kært Alvotech vegna meints stuldar á viðskipta- leyndarmálum. Samkvæmt AbbVie voru leyndarmálin notuð til þess að búa til eftirlíkingu af gigtarlyfinu Humira. Lögfræðifréttasíðan Law Street Media greinir frá því að kæran hafi verið lögð fram. Þar kemur fram að Alvotech hafi ráðið til sín vísinda- manninn Rongzan Ho, sem vann hjá AbbVie við hönnun Humira Umræddur Ho á að hafa sent upp- lýsingar um þróun Humira á per- sónulegt netfang sitt áður en hann hætti hjá AbbVie og notað það hjá Alvotech. Ho hefur hins vegar sagst hafa eytt öllum gögnum tengdum AbbVie af tölvum sínum við vista- skiptin. Samkvæmt kærunni eru aðgerðir Ho ekki það eina sem lagt er til grundvallar. Alvotech hafi ráðið tvo aðra vísindamenn AbbVie. – khg Alvotech stefnt í Bandaríkjunum DÓMSMÁL Séra Skírnir Garðarsson er opinn fyrir sáttum við Þjóðkirkj- una í skaðabótamáli sínu vegna uppsagnar í apríl síðastliðnum. Sig- urður Kári Kristjánsson, lögmaður Skírnis, segist eiga von á því að sættir verði reyndar áður en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. Skírnir hefur stefnt bæði Þjóðkirkjunni og séra Agnesi Sigurðardóttur biskupi Íslands. Krafa Skírnis er tæpar 10 millj- ónir króna, annars vegar vegna fjártjóns og hins vegar miskabóta- krafa. „Skírnir lítur svo á að honum hafi verið vikið úr starfi með ólög- mætum hætti,“ segir Sigurður Kári. Skírni var tilkynnt um þjónustu- lok eftir að hann sagði Gylfa Ólafs- syni, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, frá afskiptum sínum af konu í bakvarðasveit sem grunuð var um að villa á sér heimildir og sagði frá þessu í viðtali við Vísi. Skírnir hefur sagt hana hafa beitt svikum til að fá fjárhagsaðstoð úr líknarsjóði Lágafellskirkju í Mos- fellsbæ þegar hann var þar prestur. Taldi Skírnir þetta öryggismál enda var þá fyrsta bylgja faraldursins að ganga yfir landið. Þjóðkirkjan taldi Skírni með þessu hafa rofið trúnaðarskyldu sína gagnvart skjólstæðingi. Hana bæri einungis að rjúfa ef um væri að ræða saknæmt mál gagnvart barni eða ungmenni. – khg Opinn fyrir sáttum við kirkjuna Skírni var sagt upp eftir bakvarðamálið á Bolungarvík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SAMGÖNGUR Þjóðarflugfélag Tékk- lands, Czech Airlines, tilkynnti í gær að á næstu vikum myndi hefj- ast beint flug til fimm nýrra áfanga- staða, þar á meðal til Íslands. Flug- félagið er að hefja starfsemi eftir að hafa sótt um gjaldþrotaskipti í febrúar, en flogið verður frá Prag. Flugfélagið var með f lug til Íslands síðasta sumar og áætlar að hefja f lug til Íslands þann 1. maí næstkomandi. Samkvæmt áætlun- um flugfélagsins verða fjögur flug til Íslands á viku en farþegar þurfa að sýna fram á neikvætt PCR-próf fyrir innritun. – kpt Hefja flug frá Tékklandi í maí 2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.