Fréttablaðið - 24.03.2021, Side 9

Fréttablaðið - 24.03.2021, Side 9
Evrópubílar með STÓRA batteríinu e+ 62 kwh Nýir árgerð 2021 Skoðum með uppítöku á öllum tegundum bifreiða • Leiðsögukerfi með Íslandskorti • App aðgangur • 360°Myndavélakerfi • Leðursæti • Hiti í sætum og stýri • Bosel hljóðkerfi • ProPilot VERÐ AÐEINS ÞÚSUND stgr. 4.990NISSAN LEAF TEKNA Komið og reynsluakið Bílar í ábyrgð - Allt að 100% lánamöguleiki - Til í ýmsum litum - Góð endursala Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík 586 1414 stora@stora.is · stora.is facebook.com/storabilasalan ...á verði fyrir þig! kaffi á könnunni opið mán-fös 10-18 lau 12-15 Á frábæru tilboði! 8 ára rafhlöðuábyrgð Alþjóðaheilbrigðismálastofn-unin (WHO) skilgreinir of beldi geg n öldr uðum meðal annars á eftirfarandi hátt: „Einstakur eða endurtekinn verknaður, eða skortur á inngripi, sem kemur fram hjá þeim aðilum sem eiga í sambandi við aðra mann- eskju þar sem vænst er trausts, en veldur þess í stað skaða eða óþæg- indum fyrir aldraðan einstakling.“ Norrænar rannsóknir styðjast einnig við skilgreiningu WHO. Birtingarmyndir ofbeldis gegn öldr- uðum geta verið af margvíslegum toga og oftast er um hulinn vanda að ræða. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að skortur á samskiptum og tengslum við nákomna ættingja getur f lokkast sem andlegt of beldi líkt og skortur á virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti og reisn við- komandi. Ofbeldi getur þannig verið líkam- legt, sálrænt, kynferðislegt, fjár- hagslegt, trúarlegs eðlis eða í formi vanrækslu og niðurlægingar af ein- hverju tagi. Á vettvangi WHO er hefð fyrir að skipta of beldi gegn öldruðum í eftirfarandi f lokka: Líkamlegt of beldi: Áverkar eftir að kýla, sparka, hrinda eða lemja, beinbrot, bruna- sár, skurðir, glóðarauga, mar eða bólga í kjölfar líkamlegra átaka. Innvortis blæðingar geta verið af leiðing eftir á. Skyndi- leg meiðsli og léleg líkamleg umhirða. Sálrænt ofbeldi: Hótanir, nið- urlægjandi skammaryrði, lygi, óheiðarleiki, ástarsamband og svik á netinu sem maki veit ekki um. Slík sambönd (netsex) enda vanalega í miklum peningastuldi og eyðileggja hjónaband og fjöl- skyldulíf viðkomandi. Kynferðislegt of beldi: Til dæmis kynferðisleg áreitni eða nauðgun eða tilraun til nauðg- unar oftast samfara hótunum og líkamsmeiðingum. Fjárhagslegt ofbeldi: Maki veitir ekki upplýsingar um inn- stæðu á bankareikningi sínum og útvegar ekki peninga fyrir nauðsynjum heimilis. Þjófnaður eða svik og misnotkun fjármuna. Þrýstingur og ógnanir vegna ráð- stafana fjármuna. Vanræksla: Aldraður er illa klæddur og hirtur, föt óhrein og umönnun ekki sem skyldi. Aldraður er vannærður eða þjáist af vökvaskorti og tíðum veikindum. Tíð saga um slys og meiðsli þar sem aldraður dvelur Rannsókn á vegum WHO árið 2017 í breska læknatímaritinu The Lancet frá 28 þjóðríkjum sýndi að heildar- niðurstaða var að 15,7% fólks 60 ára og eldra hefðu orðið fyrir of beldi á undanliðnum 12 mánuðum. Aldraðir eru sístækkandi hópur á Íslandi og of beldi gegn öldruðu fólki er vaxandi vandamál sam- kvæmt nýlegri greinargerð Ríkis- lögreglustjóra. Heimilisof beldi hefur aukist um allan heim á tímum COVID-far- aldurs. Áfengisneysla hefur einnig aukist hér á landi undanfarið ár en áfengi leiðir ósjaldan til of beldis. Samfélagsbreytingar síðustu áratuga hafa orðið til þess að sam- skiptamynstur og venjur innan fjölskyldna hafa breyst mikið. Það getur leitt til þess að aldraðir ein- angrist frekar, bæði félagslega og tilfinningalega, og útilokist þannig frá þátttöku í samfélaginu. Mikil- vægt er að sinna vel hagsmunum eldra fólks hvað varðar öryggi og vernd og tryggja að það geti lifað með reisn. Það er erfitt að meta nákvæm- lega umfang of beldis gegn öldr- uðum hér á landi því tölfræði- legar upplýsingar og rannsóknir eru af skornum skammti. Þó hafa verið gerðar þrettán rannsóknir tengdar háskólaprófum hér á landi um of beldi gegn öldruðum á árunum 2007-2017. Ennfremur er ljóst að eldra fólk er ólíklegra en þeir sem yngri eru til að tilkynna um of beldi sem það verður fyrir og skilgreinir það oft á tíðum á annan hátt. Þess vegna er nauðsynlegt að kalla eftir vaxandi vitund um of beldi gegn öldruðum í þjóð- félaginu bæði innan heimilis og á dvalar- og hjúkrunarstofnunum. Ef fólk býr yfir vitneskju um að aldraður einstaklingur sæti of beldi ber alltaf að tilkynna um slíkt athæfi til yfirvalda og gildir þá einu hvort of beldið er af hendi nákominna eða annarra. Zonta hreyfingin á Íslandi leggur áherslu á að samfélagið í heild viðurkenni þann vanda sem felst í of beldi gegn öldruðum og öðrum viðkvæmum hópum í þjóðfélaginu. Við köllum eftir aukinni vitund meðal yfir- valda og almennings og hvetjum þá sem búa við eða hafa vitneskju um of beldi gegn öldruðum að „Segja frá“ og leita hjálpar með því að hafa samband við 112 og heimilislækni viðkomandi. Fyrir hönd Zonta hreyfingarinnar á Íslandi. Um ofbeldi gegn öldruðu fólki á Íslandi Helga Hannesdóttir geðlæknir S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . M A R S 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.