Fréttablaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 10
FÓTBOLTI Dagný Brynjarsdóttir gekk til liðs við West Ham United frá Selfossi í lok janúar síðastliðins en þar var hún að ganga til liðs við félagið sem hún styður í ensku knattspyrnunni. Hún er ein fjöl­ margra landsliðskvenna sem hafa söðlað um og haldið til Englands undanfarna mánuði. Mikill uppgangur er í kvenna­ knattspyrnu á enskri grundu og til marks um það er sögulegur útsendingarsamningur sem Sky­ Sports og BBC gerðu um að sýna leiki frá ensku ofurdeildinni frá og með næsta keppnistímabili. „Ég finn það vel að það er mikil stemming fyrir kvennaknattspyrnu á Englandi þessa stundina og mikill meðbyr sem er bara frábært. Það er til að mynda mun meiri fjölmiðlaat­ hygli hérna en þegar ég var að spila með Bayern München í Þýskalandi. Það var hins vegar mun meiri umfjöllun og áhorfendafjöldi þegar ég spilaði með Portland Thorns í Bandaríkjunum en þar er rík hefð fyrir kvennaknattspyrnu þannig að það er erfitt að bera það saman. Þetta er hins vegar allt í rétta átt hérna á Englandi og gaman að sjá hversu hröð skrefin eru í þróun­ inni,“ segir Dagný um upplifun sína af enskri kvennaknattspyrnu. „Það skiptir að sjálfsögðu miklu máli að leikirnir séu sýnilegir sem víðast um heiminn þannig að stelpur sem eru að byrja sinn fót­ boltaferil geti eignast kvenkyns fyrirmyndir. Leikirnir eru núna sýndir á appi sem er eingöngu aðgengilegt í Bret­ landi þannig að vinir mínir og fjöl­ skylda sem eru heima hafa ekki getað horft á leiki sem ég er að spila með góðu móti. Það er auðvitað ekki nógu gott og það breytir heil­ miklu að SkySports og BBC hafi stigið þetta stóra skref í samstarfi við Enska knattspyrnusambandið,“ segir landsliðskonan. Hvað leikinn um helgina varðar er Dagný mjög spennt að mæta jafn sterku liði og Manchester United á Old Trafford. Liðin eru fyrir leik­ inn hvort á sínum enda töflunnar en West Ham United vermir botn­ sætið á meðan Manchester United, með norsku landsliðskonuna Maríu Þórisdóttur innanborðs, situr í þriðja sæti. Þetta verður í fyrsta skipti sem kvennalið Manchester United í knattspyrnu leikur heimaleik á Old Trafford. „Við vorum hársbreidd frá því að vinna langþráðan sigur á móti Birmingham í síðustu umferð deildarinnar og sá leikur var týp­ ískur fyrir lið sem er í botnbaráttu. Við fengum á okkur jöfnunarmark í uppbótartíma leiksins. Það var svo­ lítið þung stemming þegar ég kom þar sem það hafði gengið illa, liðið lent í kórónaveirusmiti og meiðsli að herja á leikmanna­ hópinn. Eftir að hafa skipt um þjálfara finnst mér hafa komið ják væðar i ork a og við þurfum bara einn sigurleik til þess að koma okkur á skrið. Við erum með sterkt lið sem ætti ekki að falla en nú þurfum við bara að fara að sýna það í verki,“ segir sóknartengiliðurinn. „Hvað mig sjálfa varðar þá er ég að komast í mitt fyrra form en ég kom meidd til West Ham United og það var svekkjandi að geta ekki hjálpað meira strax þegar ég kom. Nú er ég búin að spila tvo leiki og mér líður vel hérna. Þetta er gott lið sem mikið býr í. Ég er að upplifa það sjálf í fyrsta skipti að vera í fallbaráttu og það er allt öðruvísi en ég hélt. Þetta tekur meiri á andlega en ég gerði mér grein fyrir en nú reynir bara á kar­ akterinn,“ segir Dagný sem samdi við West Ham United til 18 mánaða þegar hún kom. „Samingurinn fellur úr gildi ef við föllum og það er auðvitað mark­ miðið að svo verði ekki. Mig myndi langa til þess að vera annað ár hérna hjá West Ham United og það er vonandi að það geti orðið að veruleika. Fyrsta mál á dagskrá er að koma okkur af botninum og bjarga okkur frá falli,“ segir hún um framhaldið. hjorvaro@frettabladid.is Skref í rétta átt og gaman að sjá hversu hröð þróunin er Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, segist finna að áhuginn á enskri kvennaknattspyrnu sé að aukast og finnst gaman að taka þátt í þessari þróun. Hún leikur tímamótaleik um helgina þegar leikur West Ham og Manchester United fer fram á Old Trafford í fyrsta sinn í sögu kvennaliðs United. FÓTBOLTI Ljóst er að kvennalið Breiðabliks í knattspyrnu mun mæta með mikið breytt lið til leiks þegar það freistar þess að verja titil sinn á Íslandsmótinu í sumar. Rakel Hönnudóttir sem lék með Kópavogsliðinu á síðasta keppnis­ tímabili, eftir að hafa komið frá enska félaginu Reading í loks árs 2019, greindi frá því á samfélags­ miðlum sínum í gær að hún væri barnshafandi og mun hún þar af leiðandi ekki leika með liðinu á komandi leiktíð. Áður hafði Alexandra Jóhanns­ dóttir farið til Eintracht Frank­ furt, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gengið til liðs við Bayern München og Sveindís Jane Jónsdóttir samið við Wolfsburg og verið lánuð til Kristianstad. Berglind Björg Þorvaldsdóttir fór þar áður til franska liðsins Le Harve og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir fylgdi sömu leið í haust. Andrea Rán er hins vegar á láni frá Blikum og kemur aftur í Kópavoginn áður en Íslandsmótið hefst. Þá er mark­ vörðurinn Sonný Lára Þráinsdóttir hætt. Ofan á þessa breytingu í leik­ mannahópnum urðu þjálfara­ skipti hjá Breiðabliki í upphafi ársins en Þorsteinn H. Halldórs­ son var þá ráðinn þjálfari íslenska kvennalandsliðsins og Vilhjálmur Kári Haraldsson tók við keflinu af honum. Vilhjálmur Kári þjálfaði áður Augnablik sem er venslafélag Breiðabliks. Til þess að fylla þessi skörð eru markverðirnir Ásta Vigdís Guð­ laugsdóttir og Telma Ívarsdóttir komnar aftur úr láni. Karítas Tóm­ asdóttir kom frá Selfossi og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir frá KR. Birta Georgsdóttir gekk svo í raðir Blika frá FH. Þrátt fyrir þessar miklu breyting­ ar er engan bilbug að finna á Blikum sem eru efstar, ásamt Fylki, í sínum riðli í Lengjubikarnum. Breiðablik vann Stjörnuna 7­0 í fyrsta leik sínum í riðlinum, gerði jafntefli við Fylki og vann svo Þór/KA og Tinda­ stól. – hó Breiðablik mætir með mikið breytt lið til leiks í sumar Hryggjarstykkið úr meistaraliði Blika í fyrra er horfið á brott. Dagný í baráttunni við Pernille Harder, einu fremstu knattspyrnu- konu heims, sem leikur með Chelsea. FRÉTTA- BLAÐIÐ/GETTY Ég er að upplifa það sjálf í fyrsta sinn að vera í fallbaráttu og það er allt öðruvísi en ég hélt. Dagný Brynjarsdóttir HANDBOLTI Akureyringar lýstu yfir óánægju sinni í gær vegna dómsúr­ skurðar þar sem kveðið var á um að leikur KA/Þórs gegn Stjörnunni skyldi leikinn á ný vegna mistaka á ritaraborði. Í tilkynningu sem Akur­ eyringar sendu frá sér kalla þeir eftir því að ákvörðun aga­ og úrskurðar­ nefndar um að úrslitum leiksins yrði ekki breytt skuli standa. Þar segjast Akureyringar furða sig á vinnubrögðum áfrýjunar­ dómstólsins og HSÍ enda aldrei hafa fengið að vita af áfrýjuninni né að málið yrði tekið aftur fyrir. Fyrir vikið fengu þeir ekki að koma fram vörnum sínum og heyrðu af málinu eftir að dómur var fallinn. „Rétt er að benda á að vegna máls­ meðferðarreglna HSÍ er KA/Þór varnaraðili í málinu, þrátt fyrir að Stjarnan kæri framkvæmd leiksins, framkvæmd sem sama félag bar ábyrgð á. KA/Þór hefur nú þegar óskað eftir því að dómur áfrýj­ unardómstóls HSÍ verði ógiltur eða endurupptekinn. Er KA/Þór enn fremur reiðubúið að fara með málið lengra, enda eiga öll félög innan íþróttahreyfingarinnar að standa jöfnum fæti fyrir dómstólum sinna sérsambanda.“ – hó Krefjast að fyrri dómur standi Úr síðasta leik kvennalandsliðsins gegn Ungverjalandi. MYND/MLSZ.HU FÓTBOLTI Íslenska kvennalands­ liðið í knattspyrnu leikur fyrsta leik sinn undir stjórn nýs þjálfarateymis gegn Ítalíu þann 13. apríl næst­ komandi. Enn er unnið að því að finna leikstað en þetta verður sjötta viðureign þjóðanna í kvennaflokki. Um leið er þetta fyrsti leikur kvennalandsliðsins eftir að Þor­ steinn Hallgrímsson tók við liðinu fyrr í vetur. Stelpurnar okkar áttu að taka þátt í sterku æfingamóti í febrúar en það féll niður vegna heimsfaraldursins. Fjórtán ár eru liðin frá síðustu viðureign liðanna en til þessa hefur Ísland unnið einn leik, tveimur lokið með jafntefli og tveimur með sigri Ítalíu. Ráðgert er svo að íslenska liðið spili einn eða tvo vináttulandsleiki í júní. Næstu mótsleikir Íslands eru svo í haust þegar undankeppni HM 2023 sem fram fer í Ástralíu og Nýja­ Sjálandi hefst. – hó Mæta Ítalíu í æfingaleik ytra 2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.