Fréttablaðið - 24.03.2021, Síða 14

Fréttablaðið - 24.03.2021, Síða 14
SagaImmune er byggt á eldri vöru sem var þróuð úr ætihvönn fyrir um 20 árum. Um er að ræða sér- stætt bætiefni á alþjóðamarkaði fyrir sakir einstakrar blöndu inni- haldsefna sem hafa víðtæk áhrif og veita sterka vörn gegn kvefveirum og inflúensu. „SagaImmune er vara sem við þróuðum og settum svo á markað fyrir ári síðan, en hvatinn að þróuninni var COVID-19. Í upp- hafi faraldursins ákváðum við að dusta rykið af gömlum rannsókn- um um veirkuvirkni hvannar innar en gömlu góðu vörurnar okkar sem byggðu á hvönninni, eins og SagaVita og Voxis molarnir, hafa lengi verið vinsælar og seldar undir nafni SagaMedica. Þá hafa þær verið þekktar fyrir veiruvirkni og getu til að styrkja ónæmiskerfið,“ segir Lilja Kjalarsdóttir, doktor í líflæknisfræði frá Bandaríkjunum og framkvæmdastjóri líftækni- fyrirtækisins SagaNatura sem selur heilsuvörulínuna KeyNatura á Íslandi. Einstök blanda á heimsvísu Nýtt teymi hjá fyrirtækinu gerði frekari rannsóknir á hvannafræja- extrakti og kom þá veiruvirknin skýrar í ljós. „Teymið skoðaði sér- staklega virkni gegn inflúensuvír- usum, en einnig gegn COVID-19. Þá var þróuð aðferð til þess að einangra imperatorín, veiruvirka efnið úr hvannafræjaextrakti. Nýjar rannsóknir voru gerðar í samstarfi við Utah State Univer- sity. Því miður sýndu prófanir ekki fram á næga svörun gegn COVID-19 en virknin gegn inflúensu er hins vegar umtalsverð. Að auki er að finna í SagaImm- une þörungaextraktinn góða sem inniheldur lífvirkar fjölsykrur er hafa virkni gegn nokkrum veirum eins og inflúensuveirunni. Að auki er beta glúkan úr gersveppum sem styður ónæmiskerfið og getur stytt meðgöngutíma kvefs og inflúensu. Í blöndunni eru C-vítamín og D-víta- mín sem flestum er kunnugt að eru ómissandi fyrir heilbrigt ónæmis- kerfi. Svo eru að auki selen og sink, sem bæði styðja við eðlilega virkni ónæmiskerfisins. Við erum virki- lega stolt af þessari blöndu enda er þetta einstök vara á heimsvísu.“ Kvefið og inflúensan hætta ekki við komu Lilja segir að fyrirtækið hafi ekki byrjað að kynna vöruna strax og hún kom á markað. „Þetta var í byrj- un faraldursins fyrir rúmu ári síðan, þegar takmark margra var að finna lausnir á COVID-19. Þá spurðum við okkur hvort við gætum ekki notað eitthvað beint úr náttúrunni, en þar finnst hellingur af veiruvirkum efnum. Þrátt fyrir að hafa ekki mælanleg áhrif á COVID-veiruna þá er SagaImmune alveg dúndurflott vara. En ástæðan fyrir því að bæti- efnið fékk ekki jafnmikla athygli og það átti skilið, var líklega sú að við vonuðumst eftir virkni gegn COVID sem var svo ekki til staðar. En það munu alltaf koma kvefveirur og við munum alltaf glíma við hinn árlega inflúensufaraldur. Þó svo öll umfjöllun sé mettuð af COVID- faraldrinum í dag þá hætta hinar veirurnar ekkert við að koma. Það hefur líka sýnt sig að fólk er ánægt með árangurinn. SagaImmune hefur selst vel þrátt fyrir litla kynn- ingu og það er sérstaklega gaman að sjá hversu margir hafa skráð sig í áskrift að bætiefninu.“ Mælt er með að hefja inntöku á SagaImmune áður en skólar og leikskólar hefjast á haustin og taka 2 hylki á dag fram á vor þegar sumarfrí hefjast. „Hægt er að koma í áskrift hjá okkur og fá SagaImmune sent heim mánaðarlega. Auðvelt er að sleppa áskrift í ákveðinn tíma ef fólk telur sig ekki hafa þörf á að taka bætiefnið inn yfir sumarið,“ segir Lilja. Voxis á traustum grunni Á sama tíma og SagaImmune var í þróun voru vísindamenn SagaNatura einnig að þróa nýjar bragðtegundir af hinum sívinsæla Voxis mola sem inniheldur æti- hvannarextrakt sem mýkir hálsinn og hefur heilsubætandi áhrif. Mikill metnaður var í teyminu að bæta hinum fullkomna sykurlausa lakkrísmola við Voxis vörulínuna. „Eftir samruna SagaMedica og Key- Natura hafa allar vörur SagaMedica verið færðar yfir í KeyNatura vöru- línuna en síðasta skrefið í þessu ferli eru Voxis molarnir. Sykurlausu Voxis molarnir verða færðir í nýjan KeyNatura búning í sumar,“ segir Snæfríður Arnardóttir, gæðastjóri KeyNatura á Íslandi. Gott fyrir röddina Voxis molarnir hafa verið í uppá- haldi hjá söngelsku fólki um árabil, allt frá atvinnusöngvurum til kór- söngvara. Þá hafa molarnir einnig vakið athygli út fyrir landsteinana. „Fólk er að fá sér Voxis mola fyrir æfingar og söngleiki, en einnig eru molarnir kærkomnir fólki eins og mér sem heldur oft fyrirlestra. Þá finnst mér frábært að grípa í einn mola til að tryggja að röddin bresti ekki. Voxis molinn inniheldur fjölsykru úr hvönn sem leysist upp í munnvatninu og hefur góð og mýkjandi áhrif á hálsinn. Ekki má svo gleyma því að hvannafræjaext- raktinn er einnig með veiruvirkni.“ Svo miklu meira en bara hálsbrjóstsykur Voxis er ekki bara hálsbrjóst- sykur, heldur einnig frábært heilsunammi. „Hér í höfuðstöðv- unum maulum við mikið Voxis molana enda eru þeir bragðgóðir og mýkjandi í hálsinn. Við höfum sett þrjár bragðtegundir á markað og eru tvær af þeim sykurlausar. Þegar mann langar í eitthvað sætt eða gott bragð í munninn þá er frábært að geta stungið upp í sig einum Voxis mola, enda slær hann vel á sykurlöngun. Þá höfum við fundið fyrir miklum áhuga fólks á sykurlausu bragð- tegundunum og erum að vinna í að koma með f leiri brögð af Voxis molunum.“ Spennandi nýtt bragð Ein af þessum nýju bragð- tegundum hefur verið í vinnslu í um það bil ár hjá fyrirtækinu og liggur mikil leynd yfir því hvaða brögð eru væntanleg. „Fyrsta af þessum nýju bragðtegundum mun líklega koma á markað í maí, en það er sykurlaus Voxis með lakkrísbragði. Við erum virkilega spennt fyrir þessum nýja mola og höfum við prófað yfir tuttugu af brigði. Nú teljum við okkur loksins vera búin að þróa hinn fullkomna Voxis lakkrísmola. Það besta við hann er að hann er bæði sykurlaus, sem þýðir að hann hentar þeim sem eru á lágkol- vetnafæði eða ketó, og inniheldur lágt magn af efninu sem finna má í sumum tegundum af lakkrís og hefur áhrif á blóðþrýstinginn. Því hækkar lakkrísmolinn frá Voxis hvorki blóðsykur né blóðþrýst- ing,“ segir Snæfríður. Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergs- dóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Voxis fæst í þremur bragðtegund- um: Klassíski, sykurlaus og engifer. Hvönnin spilar lykilhlutverk í mörgum vörum KeyNatura. Hvönnin er lífrænt vottuð og er safnað á sjálfbæran hátt í Hrísey. Myndir/SvavarSig. Snæfríður segir Voxis molana byggja á virkni hvannarinnar sem mýkir háls- inn og styrkir varnir líkamans. Lilja Kjalars- dóttir segir fyrirtækið afar stolt af SagaImmune enda inniheldur bætiefnið m.a. þörungaextrakt þróaðan af vís- indamönnum fyrirtækisins. SagaImmune fyrir ónæmiskerfið er nýjasta bætiefnið frá KeyNatura. Þó svo öll umfjöll- un sé mettuð af COVID-faraldrinum í dag þá hætta hinar veirurnar ekkert við að koma. Lilja Kjalarsdóttir Því hækkar lakkr- ísmolinn frá Voxis hvorki blóðsykur né blóðþrýsting. Snæfríður Arnardóttir 2 kynningarblað A L LT 24. mars 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.