Fréttablaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 16
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
FJÁRFESTING Í SJÓÐUM
ER GÓÐUR VALKOSTUR
TIL AÐ ÁVAXTA PENINGA TIL
SKEMMRI OG LENGRI TÍMA
Kynntu þér árangur og úrval
ÍV sjóða á WWW.IV.IS
Tveir hlutabréfasjóðir í stýr-ingu Stefnis, dótturfélags Arion banka, fjárfestu í Alvo-
tech fyrir samanlagt um 5 milljónir
Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega
600 milljóna króna, í lokuðu útboði
sem lauk fyrr í þessum mánuði þar
sem lyfjafyrirtækið sótti sér 35
milljónir dala í nýtt hlutafé.
Aðrir íslenskir fjárfestar sem
komu að útboðinu, samkvæmt
heimildum Markaðarins, voru
tryggingafélagið TM, fjárfestingar-
félagið Hvalur, sem er stýrt af Krist-
jáni Loftssyni, og Lífeyrissjóður
Vestmannaeyja en auk þess lögðu
nokkrir einkafjárfestar félaginu til
fjármagn. Jöklar-Verðbréf höfðu
umsjón með fjárfestingu Lífeyris-
sjóðs Vestmannaeyja, sem á helm-
ingshlut í verðbréfafyrirtækinu, en
engir ef helstu lífeyrissjóðum lands-
ins komu hins vegar að fjármögnun
Alvotech á þessu stigi.
Fjárfesting Stefnis nam um þriðj-
ungi þeirrar heildarfjárhæðar sem
íslenskir fjárfestar keyptu fyrir í
útboðinu – 15 milljónum dala – en
þetta var í fyrsta sinn sem inn-
lendir fjárfestar, sem eru ekki hluti
af stjórnendateymi lyfjafyrirtækis-
ins, koma inn í hluthafahóp Alvo-
tech. Það voru sjóðirnir ÍS 15, opinn
hlutabréfasjóður, og ÍS 5, lokaður
vogunarsjóður, sem stóðu að baki
fjárfestingunni hjá Stefni.
Samtals hefur Alvotech sótt sér
um 100 milljónir dala í nýtt hlutafé
á undanförnum fjórum mánuðum.
Með þeirri fjármögnun sem nú
er lokið, þar sem Alvotech var verð-
metið á um 2,4 milljarða dala, er
talið að búið sé að tryggja rekstur
fyrirtækisins fram yfir áformað
hlutafjárútboð og skráningu á
markað erlendis síðar á árinu. Stefnt
hefur verið að skráningu í kauphöll
í Hong Kong en samhliða er einnig
horft til þess möguleika að félagið
fari á markað í bandarísku kaup-
höllinni Nasdaq. Alþjóðlegu fjár-
festingarbankarnir Morgan Stanley,
Goldman Sachs og HSBC verða ráð-
gjafar félagsins við skráningarferlið.
Alvotech, sem er stýrt af Róberti
Wessman, stofnanda félagsins, hóf
vinnu við útgáfu á nýju hlutafé á
síðasta ári, eins og Markaðurinn
hefur áður sagt frá, og var mark-
miðið að sækja sér samtals 100
milljónir dala. Fjárfestingin var
meðal annars kynnt íslenskum fjár-
festingafélögum og lífeyrissjóðum
síðastliðið haust.
Ekkert varð hins vegar af aðkomu
þeirra þegar Alvotech lauk fyrsta
áfanga fjármögnunar – upp á sam-
tals 65 milljónir dala – í lok október.
Auk núverandi hluthafa Alvotech,
sem lögðu til stóran hluta fjár-
magnsins, komu að þeirri hlutafjár-
aukningu fjárfestar úr lyfjageiranum
í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu.
Alvotech er í meirihlutaeigu
Aztiq Pharma og þá er Alvogen
stór hluthafi, en þar eru fyrir einir
stærstu fjárfestingarsjóðir í heimin-
um í dag, CVC Capital Management
og Temasek, sem er fjárfestingar-
sjóður í Singapúr. Aðrir hluthafar
eru meðal annars alþjóðlegi fjár-
festingarsjóðurinn Yas Holding
og japanska lyfjafyrirtækið Fuji
Pharma. – hae
Stefnir, TM og Hvalur á
meðal fjárfesta í Alvotech
Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech.
2,4
milljarðar dala er markaðs-
virði Alvotech eftir síðustu
hlutafjáraukningu félagsins.
Ekki komma í fyrirsögn
Heilda reig nir innst æðu-deildar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjár-
festa (TIF) námu í árslok tæplega
48 milljörðum króna og eigið fé var
tæpir 47 milljarðar króna. Eignirn-
ar jukust um tæplega 4 milljarða
króna á milli ára. Þetta kemur fram
í nýbirtum ársreikningi sjóðsins.
Fjármálafyrirtæki greiddu um 2,1
milljarð króna í iðgjöld til sjóðsins
og fjármunatekjur námu um 3,6
milljörðum. Raunávöxtun fjár-
muna í virkri stýringu, sem eru nær
alfarið bundnir í skuldabréfum,
nam 4,4 prósentum á árinu.
Rekstrarkostnaður TIF nam
186 milljónum króna á árinu 2020
samanborið við 193 milljónir árið
á undan. Mestu munar um kostnað
vegna eftirlits og umsýsluþóknana
sem nam 124 milljónum króna.
Launakostnaður nam 34,6 milljón-
um og annar rekstrarkostnaður 27
milljónum. Á árinu var einn starfs-
maður á launum hjá sjóðnum.
Með gildistöku laga um skila-
meðferð í september á síðasta ári
var stofnuð ný deild innan TIF, sem
nefnist skilasjóður, og verður að
lágmarki 1 prósent af innstæðum.
Árið 2020 var byrjað að safna fjár-
munum í sjóðinn, með framlagi úr
innstæðudeild TIF að fjárhæð 1,2
milljarðar króna. Sama fjárhæð
verður færð frá innstæðudeild til
skilasjóðs á árinu 2021. Gert er ráð
fyrir að skilasjóður verði að fullu
fjármagnaður fyrir árslok 2027.
Í grein sem Yngvi Örn Kristins-
son, hagfræðingur Samtaka fjár-
málafyrirtækja, birti í Markaðinum
í janúar kom fram að búast mætti
við að greiðslur fjármálafyrirtækja
til sjóðsins gætu framvegis numið
um röskum milljarði króna á ári að
öllu óbreyttu. Hann sagði vandséð
að þörf væri á frekari uppbyggingu
sjóðsins.
Yngvi benti á að nýtt regluverk
hefði áhrif á stærð innstæðutrygg-
ingarsjóðsins. Kerfislega mikil-
vægu bankarnir þrír yrðu, ef kæmi
til alvarlegra erfiðleika í rekstri,
teknir til skilameðferðar og innlán
bætt með skilameðferð en ekki með
greiðslum úr innstæðutryggingar-
sjóði. – þfh
Nær 50 milljarðar á bókum TIF
Rekstrarkostnaður TIF
nam 186 milljónum króna á
árinu 2020 samanborið við
193 milljónir árið á undan.
Eyrir Invest hefur bæst í hluthafahóp íslenska t æ k n i f y r i r t æ k i s i n s Carbon Recycling Int-ernational (CRI), sem framleiðir metanól úr
koltvísýringi og vetni, með fjár-
festingu í félaginu fyrir 10 milljónir
dala, jafnvirði um 1.300 milljóna
króna. Með kaupunum mun fjár-
festingafélagið eignast tíu prósenta
hlut í Carbon Recycling og tveir
stjórnendur Eyris, meðal annars
Þórður Magnússon stofnandi og
stjórnarformaður Eyris, hafa nú
sömuleiðis þegar tekið sæti í stjórn
CRI.
„Við teljum að miklir vaxtar-
möguleikar séu fyrir hendi í þeirri
tækni sem CRI hefur þróað og þegar
sannreynt. Starfsemi félagsins fellur
vel að okkar áherslum um að fjár-
festa í fyrirtækjum sem geta orðið
leiðandi í sínum geira á alþjóð-
legum mörkuðum. Fram undan
eru miklir vaxtarmöguleikar fyrir
CRI og er okkur ánægja að styðja
við þær áætlanir,“ segir Þórður, en
hann hefur verið kjörinn formaður
stjórnar CRI.
Tilkynnt var um fjárfestingu
Eyris, sem er stærsta fjárfestinga-
félag landsins og heldur utan um
tæplega fjórðungshlut í Marel, á
aðalfundi CRI um miðja síðustu
viku. Á fundinum var jafnframt
samþykkt tillaga stjórnar CRI, sem
var stofnað árið 2006 og starfrækir
verksmiðju í Svartsengi, sem heim-
ilar henni að skrá félagið á markað.
Ingólfur Guðmundsson, sem
hefur verið forstjóri CRI síðustu
tvö ár og situr einnig í stjórn Eyris,
segir að það sé mikil ánægja með að
fá Eyri í fjárfestahóp fyrirtækisins.
„Eyrir hefur fylgst vel með þróun
okkar undanfarin ár og verður með
þessari ákvörðun ein af burðar-
stoðum í f járfestahópnum. Við
hlökkum til samstarfsins þar sem
fram undan eru spennandi tímar í
starfsemi CRI.“
Fyrirtækið vinnur nú að undir-
búningi skráningar á Euronext
Growth markaðinn í Osló með
norska viðskiptabankanum Spare-
bank1. Norski bankinn hefur und-
anfarin ár leitt skráningu nokkurra
fyrirtækja sem bjóða umhverfis-
lausnir og mikill vöxtur hefur
verið í markaðsverðmæti slíkra
fyrirtækja í kauphöllum í Evrópu
og Bandaríkjunum að undanförnu.
CRI er brautryðjandi í þróun
búnaðar til að framleiða f ljótandi
eldsneyti og efnavöru úr vetni og
koltvísýringi. Fyrirtækið hefur
nýverið lokið við hönnun efna-
verksmiðju sem stefnt er að því að
gangsetja síðar á árinu í Anyang í
austurhluta Kína. Verkefnið byggir
á tækni CRI og mun draga úr losun
á 160.000 tonnum af koltvísýringi
árlega. Heildarfjárfesting í verkefn-
inu nemur um 12 milljörðum króna.
Þá vinnur CRI nú einnig með
orkufyrirtækinu Statkraft að sam-
eiginlegri verkefnaþróun og fjár-
festingu í nýrri verksmiðju í Finn-
fjord í norðurhluta Noregs. Stefnt
er að því að framleiðslugeta þeirrar
verksmiðju verði um 25 sinnum
meiri en í fyrstu verksmiðju CRI,
sem reist var í Svartsengi, eða sem
nemur 100 þúsund tonnum á ári.
Carbon Recycling er að stærstum
hluta í eigu Íslendinga en á meðal
hluthafa, með tæplega 15 pró-
senta hlut, er kínverska fyrirtækið
Zhejiang Geely Holding Group sem
kom fyrst inn í hluthafahópinn árið
2015.
Í nýjum ársreikningi CRI fyrir
árið 2020 kemur fram í skýrslu
stjórnar að stjórnendur félags-
ins hafi á liðnu ári hrundið af stað
áætlun sem miðaði að því að draga
úr rekstrarkostnaði, auka tekjur
og bæta framlegð af rekstrinum.
Með fjárfestingu Eyris hefur CRI
tryggt sér nægjanlegt fjármagn til
að standa undir afborgunum lána á
þessu ári en þær nema samtals rúm-
lega 1.100 milljónum króna.
Tekjur fyrirtækisins námu um
722 milljónum króna í fyrra og
jukust um 300 milljónir milli ára.
Mikill viðsnúningur varð á hagn-
aði CRI fyrir skatta, afskriftir og
fjármagnsliði (EBITDA) sem nam
249 milljónum borið saman við
rekstrartap upp á 306 milljónir á
árinu 2019. Vegna mikils fjármagns-
kostnaðar var hins vegar heildartap
af starfseminni upp á 648 milljónir
en það minnkaði um 250 milljónir
frá fyrra ári. Eigið fé var um 1.280
milljónir króna í árslok 2020.
hordur@frettabladid.is
Eyrir fjárfestir í CRI
fyrir 1.300 milljónir
Fjárfestingafélagið eignast tíu prósenta hlut í íslenska fyrirtækinu Carbon
Recycling með fjárfestingu sinni. Stofnandi Eyris, Þórður Magnússon, kjörinn
stjórnarformaður. Stjórnin fær heimild til að skrá félagið á markað í Noregi.
13
milljarðar króna er mark-
aðsvirði Carbon Recycling í
dag miðað við fjárfestingu
Eyris Invest.
Verksmiðja CRI í Svartsengi en fyrirtækið framleiðir metanól úr koltvísýringi og vetni.
2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN