Fréttablaðið - 24.03.2021, Side 18
Hafnarstræti 1–3 > fjallkona.isfjallkonan.rvk fjallkonan
FJALLKONAN FAGNAR ÞÉR!
SALATTÍMI
Í MARS
Þrjár tegundir af ljúffengu salati
í hádeginu mánudaga–föstudaga
Kjúklingasalat
Tígrisrækjusalat
Confit kalkúnasalat
Hummusturn fylgir með!
>1.900 kr.
EITT SALAT + HUMMUSTURN
Stærstu keppinautar Festar, sem hefur verið boðin verslun Kjarvals á Hellu til sölu, hafa engan áhuga á versluninni, sem Festi er skylt að selja samkvæmt
sátt við Samkeppniseftirlitið, nema
með því að fá aðrar eignir á gjaf-
verði. Samskipti smásölufélagsins
við eftirlitsstofnunina hafa á tíðum
verið slitrótt, langan tíma tekur að
fá svör og kostnaður við óháðan
kunnáttumann er „talsvert hærri“
en það sem þekkist fyrir sambæri-
leg störf.
Þetta kemur fram í máli Eggerts
Þórs Kristóferssonar, forstjóra Fest-
ar, og Þórðar Más Jóhannessonar
stjórnarformanns.
Á aðalfundi Festar í byrjun
vikunnar var greint frá því að
kostnaður félagsins af óháðum
kunnáttumanni vegna sáttar við
Samkeppniseftirlitið, frá því að
hann tók til starfa haustið 2018,
næmi samtals 56 milljónum króna.
Umræddur kunnáttumaður, Lúð-
vík Bergvinsson héraðsdómslög-
maður, var skipaður af Samkeppn-
iseftirlitinu í kjölfar þess að N1 og
eftirlitið náðu samkomulagi um sátt
vegna kaupa olíufélagsins á Festi í
lok júlí árið 2018. Af sáttinni leiddi
að skipa þurfti óháðan kunnáttu-
mann sem ætlað er að hafa eftirlit
með þeim aðgerðum sem kveðið er
á um í sáttinni.
Eggert Þór segir í samtali við
Markaðinn að kostnaðurinn sé
„talsvert hærri en það sem þekk-
ist í sambærilegum störfum í
atvinnulífinu“. Eins og Markaður-
inn fjallaði um í apríl í fyrra var
kostnaður Haga af störfum sérstaks
kunnáttumanns, sem fylgist með
því að skilyrðum í sátt félagsins við
Samkeppniseftirlitið vegna kaupa
þess á Olís sé fylgt eftir, tæplega
einn áttundi af kostnaði Festar af
störfum kunnáttumanns.
Skipunartími óháðs kunnáttu-
manns með sáttinni er frá október
2018 til október 2023.
Þórður Már Jóhannesson, stjórn-
arformaður Festar, sagði á aðal-
fundinum að Festi myndi í fram-
haldinu óska eftir breytingum á
aðkomu kunnáttumannsins.
Spurður hvað það feli í sér segir
Eggert að félagið muni fara fram
á það við Samkeppniseftirlitið að
skipaður verði nýr óháður kunn-
áttumaður.
Samkvæmt sáttinni er Festi skylt
að selja verslun Kjarvals á Hellu.
Þar sem vafi lék á söluhæfi versl-
unarinnar á Hellu var jafnframt
mælt fyrir um það í sáttinni að ef
ekki tækist að selja verslunina á
Hellu bæri Festi að selja aðrar eignir
félagsins á þessu svæði á grundvelli
sömu skilmála.
Fyrr á þessu ári náði Festi sam-
komulagi um sölu á verslun Kjar-
vals til Sigurðar Elíasar Guð-
mundssonar, hótelrekanda og
veitingamanns, en Samkeppnis-
eftirlitið kom í veg fyrir söluna.
Vísaði stofnunin í rökstutt álit
kunnáttumanns Festar sem komst
að þeirri niðurstöðu að umræddur
kaupandi uppfyllti ekki þær kröfur
sem gerðar væru til hæfis hans sam-
kvæmt ákvæðum sáttarinnar, um
að kaupandi væri óháður Festi og
ekki í neinum tengslum við félagið.
Einnig léki vafi á um fjárhagslegan
styrk og hvata kaupanda til þess að
veita Festi umtalsvert samkeppnis-
legt aðhald á svæðinu líkt og sáttin
áskilur.
Samkeppniseftirlitið hefur nú til
rannsóknar möguleg brot Festar á
umræddri sátt, meðal annars vegna
tafa við sölu á eignum félagsins.
„Það skýtur skökku við,“ útskýrir
Eggert, „að efast um fjárhagslegan
styrk hans þegar litið er til þess að
samkvæmt fyrirliggjandi gögnum
hefur rekstrarfélag í hans eigu um
800 milljónir króna í eigið fé og þá
hefur hann reynslu af verslunar-
rekstri á svæðinu og er ekki háður
okkur á neinn hátt.“
Áður hafði Festi náð samkomu-
lagi um sölu verslunarinnar en
ekkert varð af af hendingu vegna
andstöðu leigusala húsnæðisins.
Gerði Festi þá samkomulag um sölu
verslunar Krónunnar á Hvolsvelli
en í febrúar 2020 hafnaði sveitar-
félagið Rangárþing eystra að fram-
selja leigusamning um húsnæðið og
varð því ekki af þeim viðskiptum.
Samkvæmt heimildum Markað-
arins sendi kunnáttumaðurinn 80
spurningar á Sigurð Elías þar sem
hann var meðal annars spurður út
í fyrirætlanir sínar með verslunina
og mögulega útvíkkun á starfsemi
hennar á svæðinu.
Eggert segir að Samkeppnis-
eftirlitið hafi verið upplýst um það
í byrjun september á liðnu ári að
Festi hefði sagt upp leigusamningi
verslunarinnar á Hellu og félagið
ætti í viðræðum við áhugasaman
kaupanda.
„Óskað var í tvígang eftir fundi
með Samkeppniseftirlitinu vegna
málsins en ekkert svar barst frá
eftirlitinu fyrr en um tveimur mán-
uðum síðar,“ bætir Eggert við.
Aðspurður segir Eggert að félag-
ið muni að óbreyttu, takist ekki að
selja verslunina áður en leigusamn-
ingurinn rennur út 1. maí næstkom-
andi, loka versluninni.
„Ljóst er, eins og fram kom á aðal-
fundi Festar í vikunni, að stærstu
keppinautar félagsins, sem hafi
verið boðin verslunin til kaups,
hafi engan áhuga á henni nema
Festi greiði með sölunni umtals-
verða fjármuni með því að fá aðrar
eignir félagsins með á gjafverði,“
segir Eggert.
Verslunin á Hellu veltir um 600
milljónum á ári samkvæmt heim-
ildum Markaðarins og EBITDA-
hagnaður er hverfandi. Miðað við
það er ljóst að kaupverðið hleypur
aðeins á nokkrum tugum milljóna.
Bíða lengi eftir svörum
Á aðalfundi Festar fjallaði Þórður
Már Jóhannesson stjórnarformaður
í ræðu sinni um sáttina við Sam-
keppniseftirlitið. Í máli hans kom
fram að frá upphafi sáttarinnar hafi
samskipti Festar og Samkeppniseft-
irlitsins verið ágæt en þó stundum
slitrótt og allt of oft tekið langan
tíma að fá svör frá stofnuninni.
Í samtali við Markaðinn segir
Þórður Már að frá upphafi hafi
enginn ágreiningur verið um skil-
yrði sáttarinnar.
„Hins vegar sóttum við um breyt-
ingar á þeim vegna sölu búðarinnar
á Hellu, eftir að ekkert gekk að selja
hana, en var hafnað. Sú gagnrýni
sem kom fram á fundinum var
hins vegar á mikinn kostnað vegna
starfa kunnáttumanns og sam-
skipti félagsins við hann síðustu
misserin,“ segir Þórður Már. „Það
er eðlilegt að umræða skapist um
ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins
en þær þurfa að vera yfirvegaðar og
málefnalegar.“
Spurður hvort hann óttist að
Samkeppniseftirlitið bregðist illa
við gagnrýni stjórnenda Festar
segir Þórður Már að tíminn verði
að leiða það í ljós. „Það eitt að upp-
lýsa eigendur Festar um þessi mál á
aðalfundi hlýtur að vera eðlilegur
hlutur.“
Vilja eignir á gjafverði í
kaupbæti fyrir Kjarval
Festi mun fara fram á skipun nýs kunnáttumanns. Röksemdir SKE fyrir synjun
á sölu Kjarvals „skjóta skökku við“. Loka versluninni í maí að óbreyttu. Keppi-
nautar vilja aðrar eignir á gjafverði í kaupbæti fyrir að kaupa verslunina.
Hörður Ægisson
hordur@frettabladid.is
Þorsteinn Halldórsson
thorsteinn@frettabladid.is
Óskað var í tvígang
eftir fundi með
Samkeppniseftirlitinu vegna
málsins en ekkert svar barst
frá eftirlitinu fyrr en um
tveimur mánuðum síðar.
Eggert Þór Kristófersson,
forstjóri Festar
Það eitt að upplýsa
eigendur Festar um
þessi mál á aðalfundi hlýtur
að vera eðlilegur hlutur.
Þórður Már Jóhannesson,
stjórnarformaður Festar
Eggert segir SKE hafa verið upplýst í september í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN