Fréttablaðið - 24.03.2021, Page 21

Fréttablaðið - 24.03.2021, Page 21
tapas.is Skoðaðu úrval og verð á tapas.is Pantanir og nánari upplýsingar í síma 551-2344 og á tapas@tapas.is Hlökkum til að halda veislu með þér ER FERMING FRAMUNDAN? Í veisluþjónustu okkar finnur þú frábært úrval gómsætra veitinga. Við bjóðum samsett veislutilboð, sælkera- og lúxusveislur fyrir sérstök tilefni og þú getur líka valið þína uppáhaldsrétti og hannað þína eigin veislu. Og um nóg er að velja: • Tapas á snittu • Tapas á spjóti • Tapas í boxi • Tapas á vöfflu • Smáborgarar • Eftirréttir TAPAS Í VEISLUNA ÞÍNA menntaður stjórnmálafræðingur og lauk meistaraprófi frá London School of Economics and Political Science. Ég starfaði í fimmtán ár hjá forsætis- og fjármálaráðuneytinu, til ársins 2016. Ég kom einkum að verkefnum sem lutu að umbótum, hagræðingu í rekstri og stefnumót- un. Í upphafi starfsferilsins vann ég að því að brýna fyrir ráðuneytum og stofnunum að setja sér stefnu og markmið en fékk oft þau svör að það hljómaði vel en ætti ekki við þeirra rekstur. Það var auðvitað ekki rétt. Ég hætti í stjórnsýslunni árið 2016, f lutti til London og sat í stjórn Evrópska þróunarbankans (Euro- pean Bank for Reconstruction and Development) í þrjú ár. Bankinn er í eigu 67 landa og var settur á lagg- irnar til að aðstoða við að ryðja brautina fyrir einkarekstur eftir hrun kommúnismans í Austur- Evrópu og síðar falls Sovétríkjanna fyrrverandi. Evrópski þróunar- bankinn er með öðru sniði en til dæmis Alþjóðabankinn, því hann vinnur mest með einkageiranum og um 80 prósent lánveitinga og fjár- festinga tengjast einkarekstri. Bankinn lánar og fjárfestir fyrir um 10 milljarða evra á ári. Umsvifin eru býsna mikil og öll verkefnin eru borin undir stjórn. Þetta var skemmtilegur tími. Ég fékk fyrir vikið betri innsýn í viðskipti í nýmarkaðsríkjum, en þar hefur Marel verið að hasla sér völl. Ég sneri heim árið 2019 og nú sinni ég meðal annars ráðgjöf á sviði innviðauppbyggingar með fjármálafyrirtækinu Summu. Það eru mikil tækifæri fólgin í því að nýta samvinnu einkaaðila og hins opinbera á því sviði, eins og Hval- fjarðargöng sýna og sanna. Auk þess vinnum við hjá Summu í samstarfi við f leiri aðila að því að koma á fót fjárfestingarsjóði sem mun fjárfesta í endurnýjanlegum orkuverkefnum erlendis. Við viljum nýta íslenska sérfræðiþekkingu til að ná árangri, enda státum við af góðum árangri hér á landi í að virkja jarðvarma og vatnsaf l. Það er mikil eftirspurn eftir umhverfisvænum orkugjöfum um allan heim og um er að ræða svið þar sem Ísland hefur sannar- lega mikið fram að færa. Nýlega var ég kjörinn í stjórn Símans. Það fellur vel að störfum mínum fyrir Marel og Summu. Við hjá Marel höfum litið svo á að það sé nauðsynlegt að stjórnarformaður- inn geti varið nægum tíma í starfið. Það er erfitt ef viðkomandi er í fullri vinnu, ég tala nú ekki um ef um for- stjóra annars umsvifamikils fyrir- tækis væri að ræða,“ segir Arnar. Ásthildur Margrét Otharsdóttir, sem var stjórnarformaður Marels frá árinu 2013, var ekki í föstu starfi á þeim tíma sem hún sinnti stjórn- arformennsku fyrir Marel og Árni Oddur Þórðarson, sem var stjórnar- formaður á undan henni, var sam- hliða forstjóri Eyris Invest, en lang- stærsta eign fjárfestingafélagsins á þeim tíma var Marel og er enn. Hvað er mikil vinna að vera stjórnarformaður Marels? „Það er mikil vinna. Stjórnin öll vinnur mikilvægt starf og formað- urinn leiðir þá vinnu.“ Stjórnarhættir tekið framförum Hvað hefur breyst frá því þú settist í stjórn fyrir tveimur áratugum? „Stjórnarhættir hafa tekið stór- stígum framförum frá því að ég steig mín fyrstu skref á þessum vettvangi. Vinnan er orðin meiri og faglegri. Nú eru gerðar auknar kröfur um gagnsæi og minnihlutavernd svo dæmi sé tekið. Fyrir 20 árum var til að mynda ekki endurskoðunar- nefnd og fleira af þeim toga. Kaup- höllin var enn að slíta barnsskónum þegar ég settist í stjórnina, hún var einungis níu ára gömul. Það er eðli- legt að mikil þróun hafi átt sér stað frá þeim tíma. Nú gera stjórnar- menn sér betur grein fyrir ábyrgð sinni. Fjármálaáföll virðast einn- ig hafa skerpt á hlutverki stjórna. Kannski má segja að á undanförn- um árum hafi stjórnarmennska orðið faglegri og ekki óalgengt að stjórnarfólk sæki námskeið sem eru sniðin að þörfum þess. Sjálfur hef ég sótt námskeið fyrir stjórnarfólk bæði hjá IMD í Sviss og hjá Harward Business School í Boston.“ Síminn fékk kjölfestufjárfesti Af hverju bauðstu þig fram í stjórn Símans? „Það er margt áhugavert að eiga sér stað í rekstri Símans, eins og til dæmis að nú er verið að skoða hvernig best sé að halda utan um fjarskiptainnviði félagsins. Að sama skapi blása nú ferskir vindar um félagið eftir að Stoðir komu inn sem kjölfestufjárfestir. Ég hef mikla trú á því að með kjölfestufjárfestum fái stjórnendur fyrirtækja aukinn kraft og leiðsögn til að ráðast í verðug verkefni.“ Var kjölfestufjárfestirinn Eyrir Invest kominn í hluthafahóp Marels þegar þú settist í stjórnina 2001? „Nei, Eyrir Invest varð kjölfest- ufjárfestir í Marel árið 2005. Fyrir þann tíma var ekki sambærilegur kjölfestufjárfestir í fyrirtækinu. Með innkomu Eyris var skerpt á áherslum og fyrirtækið setti sér metnaðarfullt vaxtarmarkmið á árinu 2006 um að velta milljarði evra árið 2016. Stjórnendateymið fékk skýrt umboð til þess að fara í þessa vegferð. Markmiðið náðist og nú er stefnt að því að félagið velti 3 milljörðum evra árið 2026. Fram- tíðarsýn Marels er skýr og hefur í raun verið sú sama frá upphafi. Að umbylta matvælavinnslu á heims- vísu með sjálf bærni og aukna hag- kvæmni að leiðarljósi.“ Fordómar á milli hópa Það vekur athygli að þú varst em bættis maður en stóðst ekki í rekstri fyrirtækja þegar þú steigst inn í stjórn Marels? „Það er fróðlegt að hafa fengið innsýn inn í þessa tvo heima. Það ber örlítið á fordómum milli hóp- anna. Einkageirinn ber oft ekki nægilega virðingu fyrir opinberum starfsmönnum sem eru að sýsla með skattfé og tala um sóun, en þeir sem starfa hjá hinu opinbera eru oft tor- tryggnir gagnvart einkaframtakinu. Þeir gefa sér að einkafyrirtæki séu sífellt að reyna að fara á svig við lög og reglur. Ég naut einnig góðs af því að hafa unnið fyrir Marel í störfum mínum við að hagræða í rekstri hins opinbera. Þetta var skemmtileg blanda. Almennt ætti að vera meira samtal á milli þessara tveggja geira. Eitt af því sem við gerðum þegar ég var í forsætisráðuneytinu var að koma á fót Samráðsvettvangi um aukna hagsæld þar sem slíkt samtal fór fram á breiðum grunni.“ Hluti stjórnarmanna þarf að taka áhættu með fyrirtækinu Stjórnir eiga ekki að verða stjórnsýslunefndir þar sem stjórnarmenn eiga ekkert undir að fyrirtækinu vegni vel. Hluti stjórnarmanna þarf að vera tilbúinn að taka áhættu með fyrirtækinu. Erlendir fjárfestar horfa mikið til þess. Þetta segir Arnar. „Mikilvægt er að hafa gott jafn- vægi í stjórnum. Marel hefur farið aðra leið en önnur íslensk félög í Kauphöllinni varðandi skipun tilnefningarnefnda. Hjá okkur er hún alfarið skipuð stjórnar- mönnum og heyrir undir stjórn. Víða annars staðar situr meiri- hluti tilnefningarnefndar ekki í stjórn fyrirtækisins. Ástæðan er sú að við teljum að stjórnin viti hvaða þekkingu og reynslu hana skortir og sé því vel til þess fallin að eiga samtalið um bestu samsetninguna við hluthafa. Hjá Marel ræðum við við hluthafa um hvaða þekk- ingu og reynslu þeir telji að þurfi innan stjórnarinnar. Við óskum ekki endilega eftir tillögum að stjórnarmönnum, heldur náum saman með þeim um hvers konar hæfni væri æskilegust á þessum tiltekna tímapunkti í rekstri fyrir- tækisins. Síðan fáum við til liðs við okkur ráðningarfyrirtæki til að finna hæfa einstaklinga út frá þessum viðmiðum. Þetta hefur gengið ágætlega hingað til en hluthafarnir ákveða auðvitað endanlega hverjir setjast í stjórn félagsins. Stjórn Marels er vel skipuð og fjölbreytt: Tveir stjórnarmenn búa í Bandaríkjunum en aðrir í Bretlandi, Danmörku, Frakklandi og Hollandi. Ég er sá eini sem er búsettur hér á landi. Þannig að það er í mörg horn að líta,“ segir Arnar. Hvernig var stjórnarfundum háttað fyrir COVID-19 þegar allir þurftu að sitja heima á fjarfundi? „Fyrir COVID-19 héldum við að lágmarki fjóra fundi á ári á Íslandi í tengslum við uppgjörin. Fundir sem vörðuðu stefnumótun og fleira fóru flestir fram á stöðum þar sem Marel er með starfsemi, utan Íslands. Þá voru einnig haldnir símafundir þótt þeir hafi frekar verið undantekningin en reglan, eins og núna.“ Skiptir það stjórnir miklu máli að í þeim sitji stjórnarmaður sem hafi setið jafn lengi og þú? „Í mínum huga skiptir jafn- vægi öllu máli í samsetningu stjórna, eins og ég nefndi áðan. Það er ekki algengt að í stjórnum skráðra fyrirtækja séu stjórnarmenn sem hafa setið í tvo áratugi. Djúp þekking og mikil reynsla skiptir máli, en það er einnig nauðsynlegt að gera breytingar reglulega og fá nýja nálgun á hlutina. Best er að blanda saman nýrri þekkingu og sýn við þekkingu og reynslu.“ Fjölskyldan hefur átt hlutabréfin allar götur frá árinu 1992 og einungis selt hluta bréfanna. Systkinin, börn Sigurðar, hafa haft mikla trú á Marel en segja má að þau hafi ekki lifað í vellystingum jafnvel þótt þau eigi þessa verð- mætu eign í dag, enda er hún bundin í hlutabréfum og hlutabréfaverðið hefur farið upp og niður á þeim tíma sem þau hafa verið hlut- hafar. Ég hef mikla trú á því að með kjöl- festufjárfestum fái stjórn- endur fyrirtækja aukinn kraft og leiðsögn til að ráðast í verðug verkefni. MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . M A R S 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.