Fréttablaðið - 24.03.2021, Síða 22

Fréttablaðið - 24.03.2021, Síða 22
Hagnaður stéttarfélagsins VR dróst saman um 91 milljón króna á milli ára, eða 10 prósent, og var 835 milljónir króna á árinu 2020. Eigið fé jókst í 14,5 milljarða króna við árslok. Þetta kemur fram í ársreikningi. Athygli vekur að á síðasta ári lækkuðu greiðslur sjúkradagpen- inga um átta prósent samanborið við árið 2019. Á undanförnum árum hefur hækkun á greiðslum sjúkradagpeninga aukist verulega. Á aðalfundi VR á árinu 2019 var reglum breytt til að bregðast við aukningu útgjalda sem tókst með fyrrnefndum hætti. Tekjur VR drógust saman um fimm prósent á milli ára, eða 248 milljónir króna, og námu 4,3 millj- örðum króna á árinu 2020. Þar af dróst leiga á sumarbústöðum saman um 125 milljónir króna. Atvinnuleysi meðal félagsmanna VR var 9,1 prósent í árslok 2020. Greidd félagsgjöld til félagsins stóðu í stað, námu 1,5 milljörðum króna, þrátt fyrir fækkun félagsmanna um 2,3 prósent. Greiðslur í sjúkrasjóð og orlofssjóð lækkuðu um fimm prósent milli ára þar sem atvinnu- leysi félagsmanna rúmlega tvö- faldaðist á árinu, en atvinnulausir greiða ekki í sjúkra- og orlofssjóð. Fjármagnstekjur drógust saman um 225 milljónir króna, eða 16 pró- sent, og námu 1,2 milljörðum króna á árinu 2020. Raunávöxtun verð- bréfaeignar var 5,7 prósent á árinu 2020 samanborið við níu prósent á árinu 2019. Verðbréfaeign VR nam 12,5 milljörðum króna við árslok 2020 samanborið við 11,9 milljarða árið áður. VR átti um 7,2 milljarða í ríkisskuldabréfum við árslok, 2,4 milljarða í erlendum hlutabréfum og 792 milljónir í innlendum hluta- bréfum. – hvj 2,3% nam fækkun félagsmanna VR á síðasta ári en tekjur stéttarfélagsins drógust saman um 248 milljónir og voru samtals 4,3 milljarðar króna. Stefnir, sjóðastýringarfélag í eigu Arion banka, hefur safnað í 16 milljarða fram-takssjóð, SÍA IV. Áskriftar-loforð urðu 20 milljarðar og því var umtalsverð umframeftirspurn. Fjárfest verður í fimm til sex óskráðum fyrirtækjum fyrir um tvo til fjóra milljarða að jafnaði. Leitast verður eftir að fjár- festa í fyrirtækjum í ólíkri starfsemi en sem hvert um sig eru leiðandi á sínu sviði. Þetta segir Arnar Ragn- arsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni, í samtali við Markaðinn. „Þetta er stærsti framtakssjóður- inn fram til þessa þar sem áskriftar- loforðum er safnað og því næst hefst vinna við að finna fjárfestingartæki- færi,“ segir hann. Fram að því var SÍA III stærsti sjóður Stefnis, en í hans tilviki var safnað 12,8 milljörðum króna, hann var því um þremur milljörðum króna minni en SÍA IV. Hverjir leggja sjóðnum til fé? „Það eru fyrst og fremst lífeyris- sjóðir og aðrir stofnanafjárfestar, tryggingafélög og verðbréfasjóðir. Framtakssjóðir henta vel þeim sem eru með stór og dreifð eignasöfn og fjárfesta til langs tíma enda er verið að binda fjármuni í sjóðnum í um tíu ár. Það eru gefin fjögur ár til þess að finna fjárfestingartækifæri og um fimm ár til að vinna úr hverri fjárfestingu.“ Af hverju heldurðu að það hafi verið umframeftirspurn hjá SÍA IV? „Stofnanafjárfestar eru að leita eftir f jölbreyttari f járfestingar- kostum í lágvaxtaumhverfi. Fyrir- tæki skráð í Kauphöll eru að mörgu leyti einsleit og þeim hefur lítið fjölgað á undanförnum árum. Með því að fjárfesta í framtakssjóðum gefst tækifæri til að fjárfesta með fjölbreyttari hætti í atvinnulífinu,“ segir hann. Arnar bendir á að f lestar skrán- ingar á hlutabréfamarkað frá hruni séu runnar undan rifjum framtaks- sjóða. Stundum með skráningu beint á markað, eins og í tilviki Haga, en í öðrum tilvikum sé breidd skráðra fyrirtækja aukin með kaup- um á fyrirtækjum eins og þegar N1 keypti Festi. Af hverju brugðuð þið ekki á það ráð að stækka sjóðinn í ljósi umframeftirspurnar? „Við lögðum upp með að sjóður- inn yrði um 15 milljarðar að stærð og vildum halda okkur við það. Við mátum út frá þeim auðlindum sem við höfum úr að spila að sjóður sem fjárfestir í fimm til sex fyrirtækjum henti okkur vel. Það er mikil vinna að fylgja hverri fjárfestingu eftir og miðað við þau tækifæri sem við höfum verið að sjá teljum við að þetta sé hentug stærð,“ segir Arnar. Hann segir að SÍA vilji hafa áhrif á framgang fyrirtækjanna með stjórn- arsetu og því sé horft til þess að eignarhlutur í félögum sé nægilega stór til að tryggja slík áhrif. Horft sé til þess að vinna með einkafjár- festum eða stjórnendum sem hafi sérþekkingu á viðkomandi rekstri þegar það á við og draga þannig að borðinu aukna þekkingu. Jafnframt bjóði SÍA sjóðsfélögum að taka þátt í einstaka verkefnum þegar um stærri fjárfestingar sé að ræða. Hvernig er landslagið að fjárfesta þegar hagkerfið er að fara taka við sér eftir erfiðan COVID-vetur? „Þetta er góður tími til að fjár- festa. Almennt skapast mikil fjár- festingatækifæri í og rétt eftir kreppu. Það hefur verið mikil óvissa í efnahagslífinu frá árinu 2019. Flug- félagið WOW air féll, óvissa var um hvernig mörg fyrirtæki myndu fóta sig í kjölfar launahækkana sem samið var um í kjarasamningum og loks erfiðleikar tengdir COVID-19. Mörg fyrirtæki hafa beðið með að sækja fram þar til stjórnendur þeirra töldu sig geta gert það með meiri vissu. Af þeim sökum hefur lítið verið um kaup á óskráðum fyr- irtækjum að undanförnu. Við finn- um að nú er að koma aftur hreyfing á málin. Það eru ýmis tækifæri: sum fyrirtæki þurfa að sækja aukið hlutafé til að styrkja efnahaginn, önnur vilja sameinast og svo eru ýmsir stjórnendur að leita tækifæra til þess að auka framleiðni í rekstri í ljósi launa- og annarra verðhækk- ana. Því til viðbótar hefur verið fjár- fest umtalsvert í sprotafyrirtækjum og einhver þeirra þurfa frekara fjár- magn til að fjármagna vöxt.“ Hvernig horfir verðlagning fyrir- tækja við nú þegar vextir eru í sögu- legu lágmarki. Þeir munu ef til vill vera orðnir hærri eftir tvö ár. Leiðir það af sér að fyrirtæki verði keypt á of háu verði? „Á sama tíma og vextir hafa lækkað hefur verið samdráttur víða og ýmiss kostnaður hækkað. Af því leiðir að rekstrarspár eru almennt lægri, sem hefur áhrif á virði fyrir- tækja. Horfur í rekstri munu að öllum líkindum hafa batnað þegar vextir taka að hækka að nýju. Við teljum okkur því geta fjárfest í fyrir- tækjum á skynsömu verði.“ Hvernig hafa hinir framtakssjóð- irnir ykkar gengið? „Þeir hafa gengið vel. Fyrstu tveir sjóðirnir hafa skilað fjárfestum mjög góðri ávöxtun og greitt út umtalsvert meiri fjármuni en þeir tóku á móti. Hér þarf líka að horfa til þess að stór hluti útgreiðslna úr þessum sjóðum var í formi skráðra hlutabréfa sem hafa hækkað veru- lega í virði. Hvað SÍA III varðar, þá lauk sá sjóður nýverið sínu fjárfest- ingartímabili svo útgreiðslur eru enn sem komið er takmarkaðar. Við teljum eignasafn sjóðsins hins vegar sterkt og gerum ráð fyrir að umtals- vert virði muni raungerast á næstu árum samhliða sölu eigna.“ Arnar segir að framtakssjóðir Stefnis hafi fjárfest fyrir um 50 milljarða frá árinu 2011. Stefnir hleypir 16 milljarða framtakssjóði af stokkunum SÍA IV er stærsti framtakssjóður landsins til þessa. Stofnanafjárfestar eru að leita að ávöxtun í lágvaxta­ umhverfi og var þriggja milljarða umframeftirspurn eftir þátttöku í sjóðnum. Framtakssjóðir Stefnis hafa fjárfest fyrir um 50 milljarða frá árinu 2011 og komið að skráningu fyrirtækja á hlutabréfamarkað. Arnar segir að fjárfest verði fyrir tvo til fjóra milljarða að jafnaði í fimm til sex fyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Þetta er góður tími til að fjárfesta. Almennt skapast mikil fjárfestingatækifæri í og rétt eftir kreppu. Lífeyrisskuldbindingar með bakábyrgð ríkissjóðs eða sveitarfélaga námu ríflega 1.100 milljörðum króna í árslok 2019. Stytting vinnuvikunnar hjá opinberum star fsmönnum mun ekki valda hækkunum á skuldbindingum lífeyrissjóðsdeilda sem eru með bakábyrgð hins opin- bera. Skuldbindingarnar, sem ætla má að hafi hækkað um tæplega 150 milljarða króna frá árslokum 2019 vegna vísitölu lífeyrisskuld- bindinga, hækka því ekki um  15 milljarða til viðbótar. Í kjarasamningum á opinberum markaði var kveðið á um styttingu vinnuvikunnar um 13 mínútur á dag frá 1. janúar 2021. Stytting vinnuvikunnar var tekin með í útreikningum á vísitölu lífeyris- skuldbindinga fyrir opinbera starfs- menn sem er raunvísitala fastra launa opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu. Lífeyrisskuldbindingar í lokuðum deildum með bakábyrgð hins opinbera hækka og lækka í takti við vísitöluna. Eftir ábendingar frá þeim lífeyr- issjóðum sem málið varðar leitaði Hagstofa Íslands lögfræðiálits frá Landslögum. Álitaefnið var hvort kjarasamningsbundin stytting vinnutíma teldist breyting á föstum laun opinberra starfsmanna. Réð lögmannsstofan gegn því að að taka með í reikninginn launabreytingar sem ekki bera iðgjöld. „Segja má að samræmi milli iðgjalda, réttinda og verðtryggingar væri raskað ef Hagstofan tæki að meta inn í vísitöluna réttindi sem ekki væru greidd iðgjöld af,“ segir í áliti Landslaga. Í kjölfarið ákvað Hagstofan að endurskoða gildi vísi- tölu lífeyrisskuldbindinga í janúar 2021 Lífey risskuldbindingar með bakábyrgð ríkissjóðs eða sveitar- félaga námu ríf lega 1.100 millj- örðum króna í árslok 2019. Megnið má rekja til B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, LSR, alls 951 milljarð króna. Síðan þá hefur vísi- tala lífeyrisskuldbindinga fyrir opinbera starfsmenn hækkað um 13,5 prósent sem skilar sér í hækk- un á lífeyrisskuldbindingum upp á tæplega 150 milljarða króna. Ef stytting vinnuvikunnar hefði verið tekin með í reikninginn í janúar hefði hækkunin frá árslok- um 2019 numið um 15 prósentum sem samsvara um 165 milljörðum. Styttri vinnuvika hefði þannig valdið 15 milljarða króna hækkun á skuldbindingum lífeyrissjóðs- deildanna til viðbótar við þá 150 milljarða aukningu sem fyrir var. Sem fyrr segir námu skuldbind- ingar B-deildar Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins um 951 milljarði króna í árslok 2019. Þau réttindi sem sjóðfélagar ávinna sér eru mun meiri en hægt er að standa undir með iðgjaldi.Í ársskýrslu LSR fyrir árið 2019 kom fram að B-deildin ætti eignir til að mæta 26,5 pró- sentum af skuldbindingunum. Ríkissjóður hefur byggt upp eignir B-deildar með sérstökum greiðslum en aðrar eignir voru uppurnar í nóv- ember 2015. Ef ekki er gert ráð fyrir frekari aukagreiðslum eftir árslok 2019 þarf ríkissjóður frá og með 2029 að öllu óbreyttu að standa að fullu undir greiðslu lífeyris úr B-deild. Samkvæmt sjóðsstreymisgrein- ingu í ársskýrslunni yrðu greiðslur ríkissjóðs vegna bakábyrgðar að meðaltali 20 milljarðar króna á ári næstu fimm árin eftir að B-deild tæmist, miðað við verðlag í árslok 2019, en færu svo lækkandi. Á sama tíma munu greiðslur til B-deildar vegna hlutdeildar launagreiðenda í lífeyrisgreiðslum nema 25 millj- örðum króna á ári að meðaltali en stærstur hluti þeirrar fjárhæðar kemur úr ríkissjóði. – þfh Komast hjá fimmtán milljarða króna skuldaaukningu Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. VR hagnast um 835 milljónir 2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.