Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.03.2021, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 24.03.2021, Qupperneq 23
Þórður Gunnarsson thg@frettabladid.is Kaup, sala og samruni fyrirtækja. kontakt@kontakt.is I 414 1200 I www.kontakt.is FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF • Verðmat • Ráðgjöf og undirbúningur fyrir sölumeðferð • Milliganga um fjármögnun • Samningagerð Hlutfall ríkisútgjalda af vergri landsframleiðslu jókst hratt á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Rí k i s ú t g j a l d a s t e f n a stjórnvalda í kjölfar heimsfaraldursins var afgerandi önnur nú en hún var fyrir 12 árum þegar fjármálakerfið hrundi. Minni samdráttur hag- kerfisins en vænst var á síðasta ári er sönnun þess að viðbrögð ríkis- stjórnarinnar nú hafi verið rétt stefna. Þetta er mat Bjarna Bene- diktssonar, fjármála- og efnahags- ráðherra. Bjarni kynnti árlega fjár- málaáætlun stjórnvalda fyrir árin 2022 til 2026 í byrjun vikunnar. Bjarni benti á að ríkisútgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hefðu haldist svo að segja stöðug fyrstu árin eftir hrun, en það var einkum vegna mikils niðurskurðar í útgjöldum ríkisins. Eftir að fjár- málakerfið hrundi árið 2008 mættu fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins hingað til lands og lögðu fram ákveðna stefnu um ríkisútgjöld á meðan hagkerfið næði vopnum sínum. Það fól í sér mikinn niður- skurð á útgjöldum, þvert á alla málaflokka. Mistök að leita til AGS Bjarni segir að eftir á að hyggja hafi það verið mistök að fá Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn að borðinu til að aðstoða við endurreisn efna- hagslífsins eftir gjaldþrot fjármála- kerfisins: „Ég held að það hafi verið mistök og tel að alþjóðlega sé fólk sam mála um það að of harkalegar aðlögunaraðgerðir í ríkisfjármálum kosti of mikið í landsframleiðslu- stigi. Hér í fjármálaráðuneytinu er stofnanaminni frá þessum tíma og því erum við að fara í aðra átt núna en eftir fjármálahrunið,“ segir Bjarni. Máli sínu til stuðnings benti Bjarni á að áætlað sé að verg lands- framleiðsla hefði orðið 100 millj- örðum króna minni á síðasta ári en ella, ef ekki hefði komið til sú stefna ríkissjóðs að reka sig í miklum halla á síðasta ári og halda útgjaldastigi í meginatriðum óbreyttu. Í kjölfar birtingar Hagstofunnar á hagvexti síðasta árs undir lok febrúar kom á daginn að fjárfesting hins opin- bera hefði nánast staðið í stað á síðasta ári. „Afkomubati ríkissjóðs eftir fjármálahrunið byggðist á því að algjörlega var skrúfað fyrir fjár- festingar og framkvæmdir á vegum hins opinbera,“ segir Bjarni og bætir við: „Við erum að fara í öfuga átt núna og höfum tryggt áframhald- andi fjárheimildir til fjárfestinga á vegum hins opinbera.“ Ráðherrann segir einnig að margt af því sem túlka megi sem fjárfestingu komi ekki fram með þeim hætti í tölfræði Hagstofunnar: „Við erum að setja fjármuni inn í samkeppnissjóði og búa til íviln- anir vegna rannsókna og þróunar. Þetta eru hvatar til fyrirtækja til að stunda rannsóknir og þróun hér frekar en erlendis.“ Hann nefnir líka að erfitt sé að keyra upp framkvæmdastig hins opinbera á skömmum tíma: „Það þarf ákveðinn undirbúningstíma. Þó að það sé mikið atvinnuleysi þá þarf meira en það til að hefja fram- kvæmdir á vegum hins opinbera. Þeir sem hafa til dæmis misst starf í ferðaþjónustu geta ekki endilega hoppað upp í jarðýtu og hafið störf við vegagerð.“ Eignasala forsenda Af koma ríkissjóðs er samkvæmt nýju f jármálaáætluninni talin verða um 134 milljörðum króna betri fyrir árin 2021 til 2025 en gert var ráð fyrir í síðustu áætlun. Í erindi sínu benti Bjarni á að sú tala væri nokkurn veginn á pari við áætlað söluandvirði Íslandsbanka. Að sögn Bjarna breytir batnandi af komuspá ríkissjóðs þó engu um áætlaða eignasölu ríkissjóðs. „Þvert á móti, sá undirbúningur gengur vel og ennþá er áætlað að ljúka sölu á allt að 35 prósenta hlut í Íslandsbanka í lok maí eða byrjun júní. Salan á þessum hlut í Íslandsbanka er mikilvægur liður í skuldastýringu ríkissjóðs og fjár- málaáætlunin byggir meðal annars á því að við munum ljúka henni. Spá um skuldahlutföll ríkissjóðs miðast við það. Við erum ekki með sölu á öllum hlut ríkisins í Íslandsbanka inni í þessari áætlun og heldur ekki Landsbankann að neinu leyti.“ Skuldir halda áfram að aukast Í fjármálaáætluninni er gert ráð fyrir því að skuldir ríkissjóðs muni halda áfram að aukast næstu fimm árin, þó að hægja taki á aukning- unni á síðari hluta tímabilsins. Heildarskuldir rík issjóðs eru áætlaðar 1.519 milljarðar króna við lok þessa árs, eða um 48,5 pró- sent af vergri landsframleiðslu. Skuldir ríkis sjóðs munu aukast um 776 milljarða á tímabili fjár- málaáætlunarinnar og nema 2.285 milljörðum króna við árslok, að því er kemur fram í þjóðhagsspá Hag- stofunnar. „Sú snarpa aukning skulda sem fyrirsjáanleg er á næstu árum er áskorun, ekki síst að mæta henni á ásættanlegum kjörum fyrir ríkissjóð. Þessi áskorun er þó við- ráðanlegri en ella vegna hóflegrar skuldastöðu hins opinbera við upp- haf faraldursins, góðs lánshæfis, sterkrar vaxtargetu hagkerfisins og aukins trúverðugleika hag- stjórnarinnar undanfarinn áratug,“ segir jafnframt í umfjöllun Hag- stofunnar. Skuldir ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru engu að síður áætlaðar vel undir 50 prósentum allt til ársins 2026, sem er um það bil helmingi lægra en gengur og gerist meðal annarra Evrópuríkja að meðaltali. Segir útgjaldastefnu hafa borið árangur Fjármálaráðherra segir að ríkisfjármálastefnan eftir kórónakreppuna hafi borið árangur þar sem hagkerfinu reiddi betur af en allar spár höfðu gert ráð fyrir. Þetta sýni að mistök hafi verið að fá AGS að borðinu eftir fjármálahrun. Ég held að það hafi verið mistök og tel að alþjóðlega sé fólk sam- mála um það að of harka- legar aðlögunaraðgerðir í ríkisfjármálum kosti of mikið í landsframleiðslu. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra Verðmæti hlutafjáreignar fjár-festingafélagsins Norvikur í sænska timburframleiðand- anum Bergs Timber hefur hækkað um 10 milljarða króna á síðustu 12 mánuðum. Norvik heldur á um tveimur þriðju hlutafjár í Bergs Timber, sem er skráð í sænsku kaup- höllina. Verðmæti eignarhlutar Norvikur hefur hækkað úr tæpum 5,7 milljörðum króna í rúmlega 15,7 milljarða. Gengi Bergs Timber hefur hækkað úr 1,8 sænskum krónum á hlut í 4,9, eða um 172 prósent. Rekja má hækkun á gengi Bergs Timber til hraðra hækkana á heims- markaðsverði timburs, en það hefur nærri fjórfaldast á síðastliðnum 12 mánuðum. Líkt og á f lestum hrá- vörum hrundi timburverð í apríl á síðasta ári, en síðan þá hefur ekk- ert lát verið á hækkunum og hefur verðið aldrei verið hærra en nú. Timburframleiðsla stöðvaðist í stórum stíl á síðasta ári og ekki hefur tekist að vinna upp fram- boðsskortinn sem hefur myndast. Mikill kippur í húsbyggingum og viðhaldi fasteigna í Bandaríkjunum er sagður veigamikil ástæða fyrir þróuninni. Norvik eignaðist tvo þriðju hluta- fjár í Bergs Timber í ársbyrjun 2018, en fram að því hafði félagið átt tæp- lega 30 prósenta hlut í félaginu. Við sölu erlendra dótturfélaga Norvikur í Bretlandi, Eistlandi og Lettlandi til Bergs Timber eignaðist Norvik núverandi hlut í sænska framleið- andanum. Kaupverð Bergs Timber á dóttur- félögum Norvikur árið 2018 nam um 10 milljörðum króna. Þar af voru um 3,5 milljarðar greiddir út og stærstur hluti þess sem út af stóð greiddur með hlutabréfum í Bergs Timber á genginu 2,71 sænsk króna á hlut. Í dag er gengi félagsins, eins og áður sagði, 4,9 sænskar krónur. Eigendur Norvikur eru Jón Helgi Guðmundsson, kenndur við Byko, og fjölskylda hans. – thg Virði hlutar Norvikur hækkað um tíu milljarða Jón Helgi Guðmundsson í Byko er aðaleigandi Norvíkur FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 9M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . M A R S 2 0 2 1 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.