Fréttablaðið - 24.03.2021, Side 36
Ég get í raun bara talað út frá minni reynslu á kúnnunum hjá okkur, hvað þeir eru helst að sækjast í,“ segir Gunna og bendir á að það geti
oft munað miklu á því hvað sé vin-
sælt hér heima og úti. Hún er sam-
mála um að það geta verið allt aðrir
straumar og stefnur í til að mynda
LA og París, sama gildi um Ísland.
Gunna Helga Sváfnis hefur starfað
sem há rg reiðslu-
kona á Slippnum
á Laugavegi í tvö
ár. „Ég hafði alltaf haft áhuga á því
að fara í hárgreiðslumeistarann. En
af því ég er svo mikill sveimhugi og
finnst erfitt að skuldbinda mig hafði
ég aldrei látið að því verða að fara í
námið,“ segir hún og hlær. „Síðan
sá ég Hárakademíuna, þar sem
námið er bara eitt ár og seinna árið
er á samningi á stofu. Þá stökk ég á
það því mér fannst það meira fram-
kvæmanlegt,“ bætir hún við.
Gunna Helga segist algjörlega hafa
fundið sig í náminu. „Ég fékk strax
„kikkið“ úr þessu sem listrænni
tjáningu og það að fá að sjá
endanlegu útkomuna hratt. Það er
mjög mikið ég, ég lærði leikstjórn
á sínum tíma en náði ekki alveg að
halda mig við þann bransa, mögu-
leg út af því að ég vil alltaf sjá loka
útkomuna svo fljótt. Í leikstjórninni
tekur allt lengri tíma.“ Gunna Helga
deilir því sem henni finnst vinsælast
í stólnum þessi misserin.
steingerdur@frettabladid.is
Rokka sig upp eða
hippa sig niður
Hártískan er síbreytileg og köldu tónarnir eru á leiðinni út, að sögn
hárgreiðslumeistarans Gunnu Helgu. Sítt að aftan er óvenju vinsælt
hjá körlum ásamt klassíkinni stutt í hliðum og síðara að ofan. Hjá
konum eru gardínutoppar vinsælir og Gunna segist helst taka eftir
því að þær vilji ýmist rokka sig upp eða hippa sig niður.
Klassík hjá körlunum
„Þessi klipping hefur verið
klassísk lengi. Það eru sumir sem
eru fastir í henni. Sem sagt, stutt
í hliðunum og aðeins lengra að
ofan. Þessi er mjög tímalaus og
alltaf jafn vinsæl.“
Sítt að aftan aftur vinsælt
Gunna segist í auknum mæli fá
beiðnir um það sem þau á stof-
unni kalli herramanns-mullett.
„Sítt að aftan, eða „mullettinn“ er
vinsæll núna hjá körlunum. Þeir
eru ekkert endilega með eitthvað
ótrúlega mikið síðara að aftan,
við erum farin að kalla þetta
herramanns-mullet uppi í vinnu.“
Brit-popparinn
„Ég hef tekið eftir því að það er kominn smá „brit-pop“ fílingur í herratískuna. Síðir bartar og útlínurnar eru ekki
snyrtilegar. Þetta er venjuleg herraklipping en útlínurnar eru ókláraðar, ef hægt að komast svo að orði.“
Úr köldu í heitt
Gunna segir vinsældir kaldra
strípa og heillitunar dvínandi.
„Litavalið er búið að breytast
mikið. Silfurstrípurnar eru alveg
dottnar út. Konur eru að velja
sér meira mjúka og hlýja liti.
Hunangssleginn, meira út í gyllt
og kopar en þessa köldu tóna
sem hafa verið áberandi undan-
farin ár. Við á stofunni erum mjög
fegin að þetta sé að breytast,“
segir hún hlæjandi.
Óhræddar við stytturnar
„Mjúkur toppur er mjög vinsæll
um þessar mundir. Þessi seventís
gardína. Það sem mér finnst
öðruvísi núna í vor í saman-
burði við hvernig þetta var
í fyrra, er að stelpur eru
orðnar óhræddar við að fá
mikið af styttum. Þannig að
þetta er orðið smá svona
villt, þeim finnst meira betra
og allt er mjög seventís,“
segir Gunna Helga.
Gardínutoppurinn vinsæll
Konur eru að leika sér meira með
hann. Krulla hann inn, krulla
hann út. Þetta er voða mikið
„Rokkaðu mig upp eða hippaðu
mig niður.“
Axlasítt á undanhaldi
„Axlasíða „bob“-klippingin er
mjög svipuð og klassíska herra-
klippingin. Það eru alltaf ein-
hverjar sem halda sig alltaf við
þessa klippingu og hún virkar
alltaf. En það er einfaldlega bara
vinsælla núna að vera villtari og
í meiri styttum,“ segir Gunna
Helga.
Gunna
Helga
Sváfnis,
hárgreiðslu-
meistari.
Jane Birkin
skartaði fal-
legum toppi og
hunangstónuðu
hári. FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Fyrir-
sætan
Georgia Fowler
er með topp og
mjög rokkaða
klippingu.
2 4 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ