Fréttablaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 24.03.2021, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Árna Helgasonar BAKÞANKAR Mikið úrval af spennandi eggjum! PÁSKA- EGG Verslaðu á 66north.is Fylgdu okkur á Instagram @66north Ísland hættir aldrei að koma á óvart. Í dag tíðkast að skerpa á öllum víglínum og skilgreina and­stæðinga sem víðast. Þetta er vinnandi fólk gegn fyrirtækjunum, úthverfin gegn miðbænum, neysla gegn loftslagi. Allir eru með sinn málstað, algóritminn tryggir eilífan samhljóm skoðana og við þurfum að lágmarki fimmtán stjórnmálaflokka því þeir verða jú að tala fyrir nákvæmlega sömu skoðunum og félagsmenn sínir og mega undir engum kringum­ stæðum gefa afslátt. Grá svæði hafa verið upprætt, brýr eru ekki byggðar lengur og málamiðlunum hefur verið aflýst. Samband okkar við kapítal­ ismann markast af þessu. Hann þykir hvorki woke né hluti af lausninni, hann er ekki í köflóttri skyrtu og ekki með eigið hlað­ varp. Ég las tvít um daginn þar sem kapítalismanum var slaufað ræki­ lega sem vonlausri hugmyndafræði. Samhengið var samt áhugavert, tvítið birtist á samfélagsmiðli í eigu bandarísks einkafyrirtækis og var skrifað á snjallsíma sem einkafyrir­ tæki framleiðir. Höfundurinn, sem aðhyllist bíllausan lífsstíl, ferðast um á rafmagnshlaupahjóli, borgar farið með appi og situr á kaffi­ húsum. Allt forboðnir ávextir hug­ myndafræðinnar sem hann þolir ekki. Opinberlega að minnsta kosti. Kapítalisminn er margslungnara fyrirbæri en bara stórfyrirtækið sem lúrir á aflandseyjum. Hann er líka sköpunarkrafturinn sem býr til vörur og valkosti sem markað­ urinn velur. Hann er aflið sem gerir flókna og kostnaðarsama hluti við­ ráðanlega og neytendavæna, hann er frumkvöðullinn sem dettur niður á nýja lausn og einyrkinn sem lætur flakka og stofnar lítið fyrirtæki. Þó að það hljómi vel og gefi læk að afskrifa kapítalismann þá er hann hluti af þessu öllu saman, rétt eins og samkenndin, velferðar­ kerfið og öryggisnetið. Das(s) (af) kapítal(isma) Kauptu sokka á krabb.is og á sölustöðum um land allt

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.