Fréttablaðið - 01.04.2021, Qupperneq 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —6 4 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 . A P R Í L 2 0 2 1
9-19
nánar á kronan.is
Opið í dag Gleðilega páska!
SAMGÖNGUMÁL Hafnarf jarðar-
bær mun kynna fyrir íbúum nýjar
veglokanir til þess að bregðast við
afar umdeildri lokun Garðabæjar á
Garðahraunsvegi.
Síðan veginum var lokað, til að
minnka umferð um Prýðahverfi,
hefur umferð stóraukist í íbúða-
hverfi norðurbæjar Hafnarfjarðar.
Meðal þess sem kynnt verður er að
loka á alla umferð úr Garðabæ um
Herjólfsbraut.
Ingi Tómasson, formaður skipu-
lags- og byggingarráðs Hafnarfjarð-
ar, segir mikla gremju vegna lokun-
arinnar. Þá hafi íbúar Hleinahverfis
í Garðabæ mótmælt harðlega þar
sem þeir þurfa nú að keyra 2 til 3
kílómetrum lengri leið. Lokunin
hafi líka áhrif á starfsfólk og vist-
menn dvalarheimilisins Hrafnistu.
„Ein leið sem verið er að skoða
er að loka fyrir umferð inn á
Skjólvanginn, Heiðvanginn og
loka Hleinahverfið af, svo við fáum
ekki viðbótarumferð inn í bæinn,“
segir Ingi. Þar sem kærumálum
bæði bæjarins og íbúa í norður-
bænum sé nú lokið, Garðabæ í vil,
þurfi að bregðast við til að vernda
norðurbæinn. Garðabær hafi ekki
staðið við að gera tengiveg milli
Álftanesveganna, nýju og gömlu,
vegna aukningar um Hafnarfjörð.
Samkvæmt talningu sem Hafn-
arfjarðarbær lét gera, hefur orðið
40 prósenta aukning á Herjólfs-
brautinni og 13 prósenta aukning á
Skjólvangi. Meðalhraðinn á Skjól-
vangi, sem hefur 30 kílómetra á
klukkustunda hámark, mældist 37
og hæst 69. Fullyrt er að fleiri öku-
menn noti Skjólvang sem tengigötu.
Ingi bendir á að samkvæmt
deiliskipulagi standi til að byggja
í kringum Hrafnistu og muni
umferðin því aukast. „Garðabær er
að leysa smávanda hjá sér með því
að varpa miklum vanda til okkar,“
segir hann.
„Það er leiðinlegt að þetta skuli
koma upp því að samskipti Hafn-
arfjarðar og Garðabæjar hafa verið
góð í áratugi.“
Bæjarráð Garðabæjar hefur lýst
undrun yfir mótmælum Hafnar-
fjarðar og bókaði að umferðaraukn-
ingin væri „lang líklegast tilkomin
vegna umferðar íbúa Hafnarfjarðar
sem áður fóru til síns heima í gegn-
um íbúðahverfi í Garðabæ.“
Áslaug Hulda Jónsdóttir, formað-
ur bæjarráðs Garðabæjar, hafnar
því að verið sé að fórna meiri hags-
munum fyrir minni og segir Garða-
hraunsveginn hafa verið orðinn
hættulegan fyrir svo mikla umferð.
„Þetta er ný staða og fólk verður
að setjast niður til að finna bestu
lausnina fyrir alla,“ segir hún.
Vegurinn verði þó ekki opnaður á
ný. – khg
Íhuga að loka leið fyrir Garðbæingum
Þar sem kærumálum er lokið mun Hafnarfjarðarbær kynna veglokanir til að svara lokun Garðabæjar á Garðahraunsvegi. Sam-
kvæmt talningu hefur umferð aukist í norðurbænum en bæjarráð Garðabæjar segir aukninguna vegna Hafnfirðinga sjálfra.
Garðabær er að
leysa smávanda hjá
sér með því að varpa mikl-
um vanda til okkar.
Ingi Tómasson, for-
maður skipulags-
og byggingaráðs
Hafnarfjarðar
Tún við Suðurstrandarveg hafa verið tekin undir bílastæði fyrir fólk sem leggur á sig göngu í Geldingadali til að fylgjast með eldgosinu sem hófst þar fyrir þrettán dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR