Fréttablaðið - 01.04.2021, Page 4

Fréttablaðið - 01.04.2021, Page 4
Aðalfundur Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús ohf. heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 15. apríl kl. 15:00 í Björtuloftum, 7. hæð í Hörpu. Dagskrá Almenn aðalfundarstörf Biðlund í Skútuvogi ELDGOS „Ég veit að það er alla vega eftirspurn,“ segir Þórarinn Ævars- son, eigandi pítsustaðarins Spaðans og fyrrverandi framkvæmdastjóri IKEA, sem hefur stofnað þyrluþjón- ustuna Þyrluspaðann. Hin nýja þyrluþjónusta Þórarins hefur starfsemi sína með því að fljúga með fólk að eldgosinu í Geld- ingadölum. Verður mun ódýrara að fljúga með Þyrluspaðanum en áður hefur þekkst. Þórarinn hefur lengi barist fyrir lægra vöruverði hérlendis og er óhræddur við að taka slaginn á óvæntum stöðum. Hann segist jafn- vel vera með lágt verð á heilanum og það eigi vel við í þessu tilviki. „Þyrluspaðinn verður með ódýr- ari ferðir en gengur og gerist. Það er hægt með ákveðinni taktík sem ég byrjaði með í IKEA og hef nýtt mér á Spaðanum og gengur út á að selja mikið en á lágu verði,“ útskýrir Þórarinn. Ferð með Þyrluspaðanum mun kosta 12 þúsund krónur á hvern far- þega. Þyrluferð í Geldingadali kost- ar í dag frá rúmlega 40 þúsundum samkvæmt lauslegri könnun Frétta- blaðsins. Þórarinn hefur um skeið undirbúið þyrlufyrirtæki sitt, en ætlaði í raun ekki að bjóða neinar ferðir fyrr en í sumar. „Eftir að ég sá viðtöl við allt þetta vonsvikna fólk sem komst ekki vegna bílaörtraðar gat ég ekki beðið lengur og fór á fullt,“ segir Þórarinn. Grundvöll þess að geta boðið svo ódýrar ferðir segir Þórarinn verða eins konar loftbrú frá Grindavík í Geldingadali. Þyrlan bíði ekki á gosstað heldur skilji farþegana eftir og nái í f leiri. Þannig myndist keðja yfir daginn þar sem hver hópur geti dvalið á svæðinu í eina klukku- stund. Flugtíminn sjálfur sé aðeins örfáar mínútur og gert sé ráð fyrir fjórum ferðum á klukkustund. Þyrlan nefnist Spaðaásinn og ef vel gengur fer Þórarinn upp spila- stokkinn í nafngiftum. Spaðatvist- urinn bíður því handan við hornið. Spaðaásinn ber einkennisstafina TF-GOS. „Ég trúði ekki að TF-GOS væri laust. Það kom mér eiginlega mest á óvart í öllu þessu ferli,“ segir Þórarinn léttur í bragði. Til að fagna páskum býður Frétta- blaðið tíu lesendum að fljúga með Spaðaásnum að eldstöðvunum. Með því að senda tölvupóst á thyrluferdir@frettabladid.is fer við- komandi í pott sem dregið verður úr klukkan fimm í dag. Fyrsta ferð er áætluð í fyrramálið klukkan 6.30. Jón Þórisson, ritstjóri Frétta- blaðsins, segir þetta kærkomna leið til að færa bros yfir lesendur á sótt- varnatímum. „Það fara fimm í hverri ferð auk f lugmanns þannig að vísitölufjöl- skyldan rúmast vel í Spaðaásnum. Við viljum upplýsa lesendur á hverjum degi en einnig gleðja. Þetta er okkar leið,“ segir ritstjórinn. benediktboas@frettabladid.is Ódýrar þyrluferðir að Geldingadölum í boði Þórarinn Ævarsson hefur sett á fót þyrluþjónustuna Þyrluspaðann og býður mjög ódýrar ferðir að eldgosinu í Geldingadölum. Lágt verð byggir á loftbrú milli Grindavíkur og gosstöðvanna. Fréttablaðið býður lesendum í flugferð. Þyrla Þyrluspaðans á Reykjavíkurflugvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þórarinn Ævarsson, eigandi Þyrlu­ spaðans getur boðið lægra verð með magnsölu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ELDGOS Eigendur söluvagna hafa hver á fætur öðrum dregist í átt að gosstöðvunum í Geldingadölum undanfarna daga. Sumir söluvagnanna, eins og Lobster Hut, Vöffluvagninn, Gastro- truck og Wingmanvængir, hafa aðstöðu á bílastæði nokkuð fjarri bílastæðunum við upphaf göngu- leiðarinnar að eldstöðinni, en Jóhann Issi Hallgrímsson í Issi Fish and Chips úr Reykjanesbæ selur sinn djúpsteikta fisk og franskar ofan í svanga göngugarpa á bíla- stæði við gönguleið að eldgosinu. Lögregla tók þá reglu upp í gær að opna gossvæðið klukkan sex að morgni og loka síðan leið þangað klukkan sex að kvöldi. Gildir þetta yfir páskana þótt lögregla kunni að loka fyrir aðgang innan þessa tíma- ramma meti hún ástandið svo. – gar Eldgosinu skolað niður með fiski og frönskum Jóhann Issi Hallgrímsson stendur vaktina í fisksölunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Langar raðir mynduðust í gær fyrir utan ýmsar verslanir. Við Vínbúðina í Skútuvogi náði röð þolinmóðra viðskiptavina meðfram öllu húsinu er leið á daginn. Yfir páskana verða matvöruverslanir opnar þótt sumar séu lokaðar bæði á föstudaginn langa og á páskadag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Við bílastæði við Suðurstrandarveg í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ELDGOS Frá og með í dag verður boðið upp reglubundnar rútu- ferðir frá Grindavík upp að stikuðu gönguleiðinni að gosinu í Geld- ingadölum. Þetta kemur fram á vef Grindavíkur. Ekið verður á heila og hálfa tím- anum gegn vægu gjaldi, að því er sagt er. Fyrsta ferðin er klukkan 8.00 í dag og síðan verður farið á hálf- tíma fresti til klukkan tíu í kvöld. Ferðirnar eru á vegum einkaaðila. „Ferðirnar eru skipulagðar í sam- ráði við aðgerðastjórn viðbragðs- aðila á svæðinu,“ segir á vef Grinda- víkur. Þar má sjá kort sem sýnir hvar leggja má bílum og hvar hægt er að bíða eftir rútu innan bæjar- ins. „Gætt verður að sóttvörnum og grímuskylda er í rútunum.“ Þá hefur verið efnt til vef kosn- ingar á vef Grindavíkur um nöfn á nýja gíga og hraun við Fagra- dalsfjall. Tekið er við tillögum til 9.  apríl. Hugmyndasmiðir þurfa að rökstyðja val sitt og upplýsa um búsetu sína. – gar Bjóða rútuferðir að bílastæðinu 1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.