Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.04.2021, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 01.04.2021, Qupperneq 8
jeep.is 35” BREYTTUR 33” BREYTTUR ÓBREYTTUR JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK – VERÐ FRÁ: 11.690.000 KR. • 3.0 V6 250 HÖ. DÍSEL, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING • 570 NM TOG • HÁTT OG LÁGT DRIF • RAFDRIFIN LÆSING Í AFTURDRIFI • LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN • HLÍFÐARPLÖTUR UNDIR VÉL, KÖSSUM OG SKIPTINGU • BI-XENON LED FRAMLJÓS MEÐ ÞVOTTAKERFI • RAFDRIFIN OPNUN Á AFTURHLERA ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF JEEP® GRAND CHEROKEE BREYTTIR OG ÓBREYTTIR • ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI • BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ • FJARLÆGÐASKYNJARAR AÐ FRAMAN OG AFTAN • BLINDHORNSVÖRN ALLAR BREYTINGAR UNNAR AF BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 • LOKAÐ LAUGARDAG FYRIR PÁSKA ALÞJÓÐAMÁL Bóluefnastríðið hefur og er að breyta valdahlutföllum á hinu alþjóðlega pólitíska sviði. Á meðan lýðræðisþjóðir Vesturlanda karpa og bítast um hverja sprautu eru valdboðsríkin í austri, Kínaog Rússland, að styrkja sig gagnvart ríkjum Asíu, Afríku og Rómönsku- Ameríku. „Þetta eru gríðarlegir landvinn- ingar,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Kínverjar hafa flutt út jafn mikið af bóluefni og þeir hafa notað sjálfir og Rússar hafa náð samningum við 60 ríki um kaup á Spútnik V, til dæmis Argentínu og Pakistan. „Kína hefur tekið gríðarlegt stökk fram á við til heimsáhrifa í þessum faraldri. Í Asíu og Afríku eru ríki að leita til Kína til heimsforystu en ekki Bandaríkjanna eins og áður var,“ segir Eiríkur. Að sögn Eiríks er helsta ástæðan sú að Vesturlönd hafi öll litið inn á við í stað þess að styrkja bönd sín á milli. „Vesturlönd eru svo upptekin af því að bólusetja eigin þegna að þau gleyma að líta til stöðu sinnar í alþjóðakerfinu,“ segir Eiríkur. Í Bandaríkjunum hefur bólu- efni ekki verið flutt út og því engin stefnubreyting hvað það varðar í tíð Joes Biden frá forveranum Donald Trump, Ameríka kemur fyrst. Þessi sókn alræðisríkja kemur ofan á veikingu lýðræðisþjóðfélaga innan frá í faraldrinum. Að sögn Eiríks er faraldurinn, rétt eins og aðrar krísur, frjór jarðvegur fyrir popúlista og ýmiss konar lodd- ara að komast til áhrifa. Samkvæmt rannsóknum hafa viðbrögðin við faraldrinum árið 2020, þar sem grafið hefur verið undan mannrétt- indum og frelsi fólks, leitt til þess að afturhvarf hefur verið í lýðræði á heimsvísu. Sem dæmi um þetta má nefna Ungverjaland þar sem forsetanum Viktor Orban var í raun falið ein- ræðisvald strax í apríl. „Það er leitun að tímabili þar sem jafn hratt hefur fjarað undan lýðræði,“ segir Eiríkur. Í faraldrinum og ekki síst bólu- efna stríðinu hefur hrikt í stoðum Evrópusambandsins eins og öllu alþjóðastarfi, til dæmis Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar. Fögur fyrirheit um jafnar bólu- setningar til fátækra ríkja í formi COVAX-samstarfsins virka nú sem hjómið eitt. Eiríkur segir að þrátt fyrir kergju ESB-ríkja vegna hægagangs í bólu- setningum séu þó ríki þar innan sem geti þakkað fyrir að vera í sam- starfinu. Í öðrum ríkjum á borð við Nýja-Sjálandi og Ástralíu séu bólusetningar mun skemur á veg komnar. „Evrópusambandinu hefur verið spáð dauða í öllum krísum, svo sem fjármálakrísunni 2008, evrukrís- unni sem fylgdi í kjölfarið og flótta- mannakrísunni 2015,“ segir Eiríkur. „Það er í uppbyggingarfasanum sem ESB og aðrar alþjóðastofnanir sanna sig.“ Kergjan kemur augljósast fram í deilum sambandsins við Bretland, sem hefur heldur ekki flutt út bólu- efni AstraZeneca. Þetta kemur á sér- staklega viðkvæmum tíma en í gær lauk aðlögunartímabili viðskipta- samningsins eftir útgöngu Bretlands úr sambandinu. „Það eru skarar Breta í Evrópu- sambandsríkjum, til dæmis á Spáni, sem ekki hafa gengið frá sínum dvalarréttindum og verða orðnir ólöglegir í dag,“ segir Eiríkur. „Það er hægt að senda þá heim.“ Samkvæmt Eiríki hefur bóluefna- deilan haft töluverð áhrif á sam- skipti ESB og Bretlands. „Það eru miklir skjálftar en óvíst hvort það gjósi,“ segir hann. Stærsta breytan er að sögn Eiríks viðskiptasamningurinn sem undir- ritaður var í desember, en er þó hálf karaður. Enn á eftir að semja um stóra hluti svo sem fjármálavið- skipti. Að mati Eiríks getur þetta enn farið úr skorðum og þó að Bretum hafi gengið mun betur í bólusetn- ingum skiptir þá meira máli að klára samningana en ESB. kristinnhaukur@frettabladid.is Áhrif Kína og Rússlands vaxa á heimsvísu í bóluefnastríðinu Á meðan vestræn lýðræðisþjóðfélög bítast um hverja sprautu í bóluefnastríðinu vex valdboðsríkjunum í austri ásmegin á heimsvísu. Prófessor í stjórnmálafræði segir leitun að tímabili þar sem jafn hratt fjari undan lýðræðinu. Vesturlönd séu upptekin við bólusetningar og líti ekki til eigin stöðu í alþjóðakerfinu. Túnis er meðal þeirra fjölmörgu ríkja sem nú þegar samið hafa við Kínverja um kaup á bóluefni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Í Asíu og Afríku eru ríki að leita til Kína til heimsforystu en ekki Bandaríkjanna eins og áður var Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræði- prófessor ALÞINGI Tveir þingmenn Sjálfstæð- isf lokks hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið. Þetta eru þeir Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að markmið þess sé að jafna samkeppnisstöðu einka- rekinna fjölmiðla gagnvart ríkis- reknu fjölmiðlafyrirtæki. Lagt er til í frumvarpinu til bráða- birgða að Ríkisútvarpinu verði óheimilt að stunda beina sölu aug- lýsinga, hlutfall þeirra fari ekki yfir fimm mínútur á hvern klukkutíma í útsendingartíma, óheimilt verði að slíta í sundur dagskrárliði með aug- lýsingum og kostun verði bönnuð. Þetta gildi frá ársbyrjun 2022 til ársloka 2023. Að því tímabili loknu verði það sem f lokkast til sam- keppnisrekstrar Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði hætt. Segja f lutningsmenn að með því að taka Ríkisútvarpið út af sam- keppnismarkaði í tveimur skrefum gefist stjórn stofnunarinnar tæki- færi til að aðlaga rekstur hennar breyttum aðstæðum. – jþ Fari af markaði fyrir auglýsingar ALÞINGI Þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunar- tillögu um að hafnar verði á ný viðræður um aðild að Evrópusam- bandinu. Segir í greinargerð að mark- miðið sé að uppfylla vilja Alþingis sem fram kom í samþykkt þess árið 2009. Ekki hafi verið ályktað um málið síðan. Segir jafnframt að forsætisráð- herra verði falið að skipa þriggja manna nefnd til að meta hvenær hefja skuli formlegar aðildarvið- ræður á ný og undirbúa tillögu til þingsályktunar, sem borin yrði undir bindandi þjóðaratkvæði til endanlegrar staðfestingar. Miðað er við í tillögunni að það verði ekki seinna en í janúar á næsta ári. – jþ Alþingi álykti um aðild að ESB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. RÚV verði óheimilt að stunda beina sölu auglýs- inga. 1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.