Fréttablaðið - 01.04.2021, Síða 12

Fréttablaðið - 01.04.2021, Síða 12
Háaleitisbraut 68 Sími: 581 2101 ALLA DAGA Verið velkomin Kæru viðskiptavinir. Við höfum opið í Apótekaranum Austurveri til miðnættis alla páskana. Verið velkomin og gleðilega páska. OPIÐ ALLA DAGA YFIR PÁSKANA Í AUSTURVERI www.apotekarinn.is Megingallinn við aðgerðir ríkisstjórnarinnar er að þær fela í sér frestanir og deyfingar á vanda,“ segir Sigmund- ur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Eina leiðin til að tak- ast á við stórfellda skuldaaukningu ríkissjóðs á liðnu ári sé að stuðla að hagvexti, svo að tekjur ríkissjóðs aukist á ný. „Við getum ekki skattlagt okkur út úr þessum vanda,“ sagði Sig- mundur í gærkvöld í sjónvarps- þætti Markaðarins á Hringbraut. Sigmundur sagði einnig að rétt hefði verið að keyra ríkissjóð í miklum halla á síðasta ári. „ Þessi hu nd raða mil lja rða skuldaaukning mun hafa áhrif á framhaldið en sem betur fer var ríkissjóður vel í stakk búinn fyrir [mikinn hallarekstur, innsk. blm.] ... Það er reyndar orðið ríkjandi við- horf í mörgum stjórnmálaflokkum í dag að skattlagning búi til verð- mæti. Menn taka ákvarðanir og móta stefnu út frá þeirri forsendu að skattlagning búi til verðmæti,“ sagði Sigmundur. Formaðurinn nefndi einnig að mikilvægt væri að einfalda skatt- kerfið og auðvelda fólki að stofna fyrirtæki. Nefndi hann þar sér- staklega lækkun tryggingagjalds, sem verkaði sem neikvæður hvati á rekstur og drægi úr mannaráðn- ingum. Hann sagðist vilja leggja áherslu á að styðja smá og meðal- stór fyrirtæki: „Þannig verða verð- mætin til,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. – thg Getum ekki skattlagt  okkur úr skuldavanda Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hópur rekstraraðila hótela og gististaða vill að ráðningar-styrk stjórnvalda verði breytt á þá leið að fyrirtækjum sem hafa orðið fyrir 60 til 100 prósenta tekjufalli frá 15. mars 2020 og fram til loka ársins verði gert kleift að sækja um styrkina. Þau fyrirtæki sem hafi tekið slag- inn og reynt að halda hluta starfsemi sinni gangandi í gegnum faraldurinn hafi þannig sömu tækifæri til að sækja um styrkina, en ekki bara þau fyrirtæki sem stöðvuðu sína starf- semi og sögðu upp öllu starfsfólki. Jafnframt er lagt til að þeir starfs- menn sem eru á hlutabótum verði þá færðir yfir á ráðningarstyrk. Hluta- bótaleiðin var nýlega framlengd um nokkra mánuði, en tekur þó þeim breytingum að starfshlutfall megi ekki vera meira en 50 prósent svo að hægt sé að sækja bæturnar. „Samkvæmt gildandi reglum þarf að segja starfsmanni upp og hann að vera kominn á atvinnuleysis- skrá til að hægt sé að sækjast eftir starfskröftum hans með nýtingu ráðningarstyrkja. Þannig má segja að núverandi útfærsla mismuni þeim sem hafa lagt mikið á sig til að halda starfsfólki á erfiðum tímum í rekstri, gagnvart þeim sem lokuðu alveg,“ segir Ragnar Bogason, fram- kvæmdastjóri Hótel Selfoss. Ragnar bendir einnig á að það skil- yrði að einstaklingur sé á atvinnu- leysisskrá svo að hægt sé að sækja um ráðningarstyrk búi til hvata hjá fyrirtækjum til að segja upp fólki og ráða það svo aftur inn þegar það er formlega orðið atvinnulaust. „Þótt hlutabótaleiðin hafi reynst mikil- vægt úrræði er hún með sínu 50 prósenta þaki orðin takmarkandi í rekstri aðila í ferðaþjónustu í dag og skerðir möguleikann á því að halda starfsmönnum í fullu starfi,“ segir Ragnar jafnframt. Hann nefnir að margir starfsmenn innan ferðaþjónustugeirans séu eðli- lega orðnir langþreyttir á því að vera á skertum tekjum: „Fyrirtækin eru farin að finna fyrir aukinni óþreyju hjá starfsfólki að ná ekki fullum launum. Að óbreyttu er það hins vegar erfitt hjá fyrirtækjum sem eru með 10-40 prósent af tekjum saman- borið við árið 2019 að borga full laun og líklegt að þau muni huga að því að fækka frekar í hópi starfsfólks á  næstu vikum og mánuðum. Til dæmis með því að stytta opnunar- tíma eða leggja niður ákveðnar ein- ingar, svo sem veitingarekstur. Halda má því fram að á meðan fáir sem engir erlendir ferðamenn eru að koma til landsins sé skynsamlegt að hafa einungis opið um helgar. Það er hins vegar skammsýn hugsun, því ef allir í þessum rekstri færu þá leið þá mun það hafa áhrif á trúverðugleika Íslands sem áfangastaðar á komandi misserum og valda því að erfiðara verður að trekkja kerfið í gang þegar ferðalög hefjast á ný,“ segir Ragnar Bogason. thg@frettabladid.is Vilja breyta útfærslu ráðningarstyrkja Samspil nýrra ráðningarstyrkja og hlutabóta býr til hvata til handa fyrirtækjum í gistiþjónustu til að segja starfsfólki upp og ráða það aftur inn á ráðningarstyrk. Hóteleigandi vill að ekki sé gerð krafa um meira en 60 prósenta tekjufall til að geta sótt um ráðningarstyrki.   Þess er enn beðið að erlendir ferðamenn mæti til landsins í stórum stíl. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þótt hlutabóta- leiðin hafi reynst mikilvægt úrræði er hún með sínu 50 prósenta þaki orðin takmarkandi í rekstri aðila í ferðaþjónustu í dag og skerðir möguleikann á því að halda starfsmönnum í fullu starfi. Ragnar Bogason, framkvæmdastjóri Hótel Selfoss Það er reyndar orðið ríkjandi viðhorf í mörgum stjórn- málaflokkum í dag að skattlagning búi til verð- mæti. MARKAÐURINN 1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.