Fréttablaðið - 01.04.2021, Síða 13
Einbýlishús
í Fossvogi
Við leitum að eign fyrir
ákveðinn kaupanda.
Rúmur afhendingartími.
519 5500
SÍÐUMÚLA 23
FASTBORG.IS
Gunnlaugur Þráinsson
Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari
844 6447gunnlaugur@fastborg.is
LANDSBANKINN. IS
Við veitum Námufélögum veglega
náms styrki á framhalds- og háskóla-
stigi fyrir skólaárið 2021–2022.
Umsóknarfrestur er til og með
3. maí 2021. Sæktu um á
landsbankinn.is/namsstyrkir.
Sæktu um
námsstyrk
Fosshótel Reykjavík við Höfða-torg, stærsta hótel landsins, er að sækja um greiðsluskjól
vegna tekjufalls sem rekja má til
COVID-19. Þetta staðfestir Eiríkur
S. Svavarsson, lögmaður félagsins,
en vill að öðru leyti ekki tjá sig um
málið sem er í vinnslu hjá dómstól-
um. Ekki náðist í Davíð Torfa Ólafs-
son, framkvæmdastjóra Íslands-
hótela, móðurfélags Fosshótela, við
vinnslu fréttarinnar.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa
nýtt sér úrræðið en þau hafa verið
tekjulítil eða tekjulaus frá því að
heimsfaraldurinn hófst fyrir rúmu
ári. Hótel Saga, rútufyrirtækið Gray
Line og tvö fyrirtæki í eigu Arctic
Adventures hafa til að mynda farið
í greiðsluskjól.
Til að eiga kost á úrræðinu þarf
félag að hafa orðið fyrir að minnsta
kosti 75 prósenta tekjufalli á til-
teknu tímabili og fyrirséð sé að
handbært reiðufé og kröfur á hend-
ur öðrum nái ekki að standa straum
af áætluðum rekstrarkostnaði og
af borgunum skulda næstu tveggja
mánaða.
Stjórnendur fyrirtækja í ferða-
þjónustu hafa sagt að greiðsluskjól
gefi tækifæri á að endurskipuleggja
reksturinn í takt við nýjan raun-
veruleika og semja við kröfuhafa og
leigusala. Greiðsluskjólið gerir það
að verkum að fyrirtækin þurfa ekki
að standa skil á kröfum og ekki er
hægt að knýja þau í gjaldþrot.
Greiðsluskjólsbeiðnirnar byggja
á lögum sem tóku gildi síðasta
sumar um tímabundnar heimildir
til fjárhagslegrar endurskipulagn-
ingar. Með nauðasamningi má
kveða um breytingu á greiðsluskil-
málum samningsveðkrafna, þar
á meðal að lengja lánstíma, fresta
gjalddaga hluta skuldarinnar eða
henni allri í allt að þrjú ár, að því er
fram hefur komið í fréttum.
Fosshótel Reykjavík er dóttur-
félag Íslandshótela, stærstu hótel-
keðju landsins sem hefur staðið að
rekstri 17 hótela. Íþaka, systurfélag
verktakafyrirtækisins Eyktar, er
leigusali umrædds hótel. Eignir fast-
eignafélagsins námu 26 milljörðum
króna árið 2019 og eiginfjárhlut-
fallið var 28 prósent.
Á árinu 2019 velti Fosshótel
Reykjavík 2,3 milljörðum króna og
hagnaðist um 19 milljónir króna.
Árið áður var veltan átta prósent
meiri og hagnaðurinn 264 millj-
ónir króna. Eigið fé félagsins var 722
milljónir króna árið 2019 og eigin-
fjárhlutfallið níu prósent. Aftur á
móti var eigið fé Íslandshótela 18
milljarðar króna og eiginfjárhlut-
fallið 36 prósent við lok júní 2020.
Tekjur Íslandshótela drógust
saman úr 4,7 milljörðum króna
á fyrri helmingi ársins 2019 í 2,1
milljarð á sama tíma árið 2020.
Samstæðan tapaði 184 milljónum
króna á fyrri hluta ársins 2019 en
einum milljarði á fyrri hluta ársins
2020.
Ólafur D. Torfason á 74 prósenta
hlut í Íslandshótelum og Edda,
sjóður í rekstri Kviku, á 24 prósenta
hlut. helgivifill@frettabladid.is
Fosshótel Reykjavík óskar eftir
greiðsluskjóli vegna samdráttar
Fosshótel Reykjavík er stærsta hótel landsins. MYND/ÍSLANDSHÓTEL
F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F I M M T U D A G U R 1 . A P R Í L 2 0 2 1