Fréttablaðið - 01.04.2021, Síða 14
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Við sunnanverðan Arnarfjörð eru Ketil-dalir, röð stuttra dala sem einkennast af þverhníptum fjöllum með kletta-beltum efst sem úr falla skriður alveg niður að sjó. Úr fjarlægð minna Ketildalir á dokkur í höfn, enda liggja þeir allir í
norðaustur. Verdalir eru yst en síðan koma Selárdalur,
Fífustaðadalur, Austmannsdalur, Bakkadalur, Hrings-
dalur, Hvestudalur og innst Auðihrísdalur, rétt utan
við Bíldudal. Þarna var áður blómleg byggð, sérstak-
lega í Selárdal, en nú er aðeins heilsársbúseta í tveimur
þeirra, Bakkadal og Hvestudal. Á milli síðastnefndu
dalanna er Hringsdalur en þar er snoturt uppgert
eyðibýli. Ofan þess er Hringdalsnúpur (625 m), hæsti
tindur Ketildala, en af honum er stórkostlegt útsýni yfir
sunnanverða Vestfirði. Handan Arnarfjarðar sést vel
í hæsta fjall Vestfjarða, Kaldbak (998 m) og Tjaldanes-
fjöllin austan hans.
Auðveldast er að ganga á Hringdalsnúp að suðvestan-
verðu úr Hvestudal, en fyrst þarf leyfi ábúenda. Aðrar
leiðir, eins og upp úr snarbröttum Hringsdal, eru mun
torfærari. Þó er skemmtilegt að ganga inn þröngan
dalinn meðfram Hringsdalsá með klettastálið beggja
vegna. Blágrýtislögin minna á stafla af pönnukökum
en á milli þeirra finnast víða surtarbrandur og plöntu-
steingervingar. Á sumrin halda bjargfuglar til í klett-
unum en niðri í dalnum gleðja vaðfuglar göngufólk.
Einnig má ganga meðfram ströndinni við Hringsdal
þar sem ljós skeljasandur er skreyttur biksvörtum
klettum. Þarna er æðarfugl áberandi en stundum sést
til skarfs og jafnvel álku og langvíu. Selir geta einnig
skotið upp kollinum og úti á firðinum smáhveli. Ekki
kemur á óvart að heiðnir menn hafi látið jarða þá látnu
á svona stað. Kallast slíkir grafreitir kuml og hafa í
kringum 320 fundist á 160 stöðum á landinu, þar af
fimm í kumlateignum við nesið Hreggsnasa í Hrings-
dal. Á árunum 2005-2011 fór þarna fram uppgröftur og
fundust m.a. beinagrindur en einnig ómetanlegt haugfé
eins og spjót og sverð sem nú eru varðveitt á Þjóðminja-
safninu. Ekki er vitað hvort heillegasta beinagrindin sé
af landnámsmanninum Hringi en aldagamlar munn-
mælasögur sögðu hann hafa átt í stöðugum
útistöðum við Austmann frá Noregi sem vildi
ná fram hefndum. Féllu þeir báðir í bardaga í
Hringsdal og voru heygðir í Hringshaugi
og Austmannshaugi. Grafstæðið hefur
örugglega verið Hringi að skapi, enda
Hringsdalur með fallegustu stöðum
á Vestfjörðum.
Hringur um
Hringsdal
Hringsdalur séður af Hringdalsnúp á fallegum vetrardegi. MYNDIR/TG
Miðnætursól á Íslandi er óvíða fallegri en í Hringsdal. Myndin er tekin á miðnætti um miðjan júní.
Útsýnið af
Hringdalsnúp
er engu líkt.
Tjaldanes-
fjöllin blasa
við handan
Arnarfjarðar en
Kaldbakur felur
sig í skýjum.
Ofan í dalnum
sér í eyðibýlið
Hringsdal en
á nesi austan
þess er kumla-
teigurinn sem
kenndur er
við landnáms-
manninn Hring.
1 . A P R Í L 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð