Fréttablaðið - 20.04.2021, Side 11

Fréttablaðið - 20.04.2021, Side 11
Fyrir fáum vikum var ung kona myrt af ókunnugum manni í London og líki hennar hent út í skóg þar sem það fannst nokkru síðar. Hún hafði verið á leiðinni heim til sín að kvöldlagi þegar mað- urinn réðist að henni. Í kjölfarið var vakin athygli á því á samfélags- miðlum og í fjölmiðlum að konur eru alltaf varar um sig þegar þær eru á gangi í borgum um kvöld og leiðbeiningum beint til karlmanna um hvernig þeir ættu að haga sér til að konum finnist þeim ekki vera ógnað af veru þeirra nálægt sér. Vonandi hafa sem flestir okkar séð þessar leiðbeiningar. Það stakk í hjartastað að heyra að f lestallar konur könnuðust við þá óttatilfinningu og varnarhegðun sem þær hafa þurft að tileinka sér í gegnum tíðina til að vernda sig frá áreitni eða árásum, hegðun eins og að stinga síða hárinu í hálsmálið á peysunni til að þykjast vera strák- ur, þykjast vera að tala í símann, skrifa niður bílnúmer leigubílsins sem þær eru að fara upp í og senda nánum vinum af ótta við að skila sér ekki heim. En það sem flestar konur könnuðust helst við var að senda hver annarri skilaboðin „sendu mér skilaboð þegar þú ert komin heim“. Þetta er eitthvað sem við karlmenn höfum ekki þurft að búa við. Við Íslendingar erum stolt af því að hafa verið í meira en áratug á toppi Global Gender Gap Index listans sem World Economic Forum gefur út. Það þýðir að ýmislegt hefur áunnist í jafnréttisbaráttunni hér á landi og er í betra horfi en víða annars staðar. Hins vegar er stað- reyndin sú að of beldi gegn konum á sér stað í ríkum mæli hér á landi. Þetta hefur verið kallað „norræna þversögnin“. Að í hinum jafnréttis- sinnuðu samfélögum Norðurlanda, sé of beldi gegn konum jafn útbreitt og raun ber vitni og réttarkerfið jafn illa í stakk búið til að taka á því. Og of beldið er sjaldnast eins og það sem lýst er hér í upphafi, að kona sé myrt af ókunnugum manni, þó að það atvik hafi hrundið af stað bylgju vitundarvakningar um of beldi gagnvart konum almennt. Í langflestum tilvikum fer of beldið fram innan veggja heimilisins og í skjóli náins sambands karls og konu. Samkvæmt lögreglunni á höfuð borgarsvæðinu komu tvö heimilisof beldismál að jafnaði upp á dag árið 2019 – og það eru bara þau sem skráð eru af lögreglu. Ljóst er líka að heimilisof beldi hefur aukist marktækt á meðan á COVID-far- aldrinum hefur staðið, hér á landi sem annars staðar. Í langf lestum tilvikum eru gerendur karlar og brotaþolar konur. Heimilisof beldi er vissulega ólöglegt hér á landi, en ljóst er af rannsóknum að fá mál af því tagi hljóta meðferð innan réttarkerfis- ins. Einnig er víst að margar konur skirrast við að standa í því, stund- um áralanga, ferli sem réttarkerfið setur þær í til að ná fram dómi yfir of beldismanninum, því mörgum þeirra kann að finnast að það sé einfaldlega framlenging á ofbeldinu og eins kann hið nána samband við brotamanninn að flækja málin. En þarna kemur að hlutverki okkar karla, því það er of beldis- menningin sjálf sem við þurfum að uppræta innan frá. Svo ég tali út frá eigin reynsluheimi, sem ég held að hafi ekki verið stórkostlegt frávik frá reynsluheimi annarra stráka af minni kynslóð, þá ólumst við flestir upp við þá hugmynd að yfirburðir í líkamlegum átökum væru jákvæðir eiginleikar. Að vera „sterkur“. Alla bernsku mína lifði ég með vitn- eskjunni um yfirvofandi líkamleg átök við aðra stráka og ófá voru slagsmálin á skólalóðinni þar sem hengingartaki var beitt þar til sá sem varð undir „gafst upp“, svona rétt áður en hann missti meðvit- und. Þetta var bara hluti af því að alast upp sem strákur. Þetta voru kennslustundir í hinni eitruðu karlmennsku. Mikið starf hefur verið unnið í skólum landsins til að vinna gegn einelti og öðrum birtingar- myndum of beldis undanfarin ár og slagsmálin sem ég upplifði sem barn eru vonandi fátíðari nú en þau voru þá. Það er vel ef svo er, en betur má ef duga skal. Eitt sem hefur sannarlega ekki breyst er of beldisdýrkunin sem er úti um allt. Í kvikmyndum, sjónvarps- þáttum, tölvuleikjum, samfélags- miðlum og jafnvel íþróttum. Við sem samfélag gerum því miður of lítið af því að koma þeim skila- boðum á framfæri að líkamlegt of beldi er aldrei í lagi. Það verkefni að útrýma of beldi er risavaxið og krefst mikilla menningarlegra umskipta. En það er nauðsynlegt. Beiting of beldis í nánum samböndum er nátengt hugmynd feðraveldisins um yfir- burði og yfirráð karlsins og þrífst í skjóli líkamlegra og oft á tíðum efnahagslegra yf irburða hans. Sumir karlmenn gera sér jafn- vel ekki grein fyrir að þeir séu að beita of beldi í sínu nána sambandi, því líkamlegt of beldi á sér jafnan aðdraganda kúgunar, hótana, gas- lýsingar og misréttis. Það brýst kannski aldrei út í barsmíðum, en er of beldi engu að síður. Við karlmenn þurfum að eiga í markvissu samtali um birtingar- myndir of beldis gagnvart konum. Við þurfum líka að tileinka okkur hegðun þar sem við stígum ekki yfir óþægindamörk kvenna, því þegar það er gert er það hótun um beitingu of beldis. En mikilvægast er auðvitað að beita aldrei of beldi. Það er hinn sanni styrkur. Höfundur hefur starfað að jafn- réttismálum, meðal annars á vett- vangi NATO í Afganistan og skipar 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. Sendu mér skilaboð þegar þú ert komin heim Magnús Árni Skjöld stjórnmála- fræðingur FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is LÍFRÆN VOTTUN Fréttablaðið vinnur í samstarfi við Vott narstofuna Tún að sérblaði. Blaðið mun innihalda alls kyns fróðleik um lífrænar afurðir, ásamt viðtölum og umfjöllunum. Blaðið kemur út 30. apríl nk. Vertu viss um að tryggja þér gott auglýsingapláss í langmest lesna blaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is Síðustu daga hafa birst greinar í fjölmiðlum sem benda réttilega á að ákveðið hlutfall aldraðs fólks sé beitt of beldi heima hjá sér eða á hjúkrunarheimilum. Eins og höfundar benda á er mikilvægt að hefja umræður um þetta mál í við- leitni til að koma í veg fyrir of beldi. Minna hefur borið á umræðu um of beldi sem starfsfólk í öllum starfsstéttum á heilbrigðisstofn- unum verður fyrir. Hjúkrunar- fræðingar og starfsfólk sem vinnur undir þeirra stjórn eru á meðal starfsstétta um allan heim sem oft- ast verða fyrir of beldi á vinnustað (e. workplace violence). Rannsóknir sýna að allt að 100% hjúkrunar- fræðinga á bráðadeildum, geðdeild- um og hjúkrunarheimilum verða fyrir munnlegu of beldi á starfsferli sínum og allt að 80% fyrir líkam- legu ofbeldi. Í óbirtri rannsókn sem gerð var á geðsviði Landspítala 2019 sögðust 23,5% starfsmanna hafa orðið fyrir líkamlegu of beldi síð- ustu 12 mánuði, 60,4% fyrir munn- legu of beldi og 18,9% fyrir kyn- ferðislegu of beldi. Algengast var að sjúklingar væru gerendur of beldis. Gestir á deildum áttu líka sinn hlut að of beldinu og starfsfólk sinn hlut í kynferðislegu of beldi. Það er þó mikilvægt að taka fram áður en lengra er haldið að langflestir þeirra sem dvelja á heilbrigðisstofnunum sýna ekki of beldi. Skipta má orsökum ofbeldis fólks sem dvelur á heilbrigðisstofnunum eða leitar sér hjálpar á bráðaþjón- ustu- og göngudeildum gagnvart starfsfólki í þrjá flokka: 1. Fólk upp- lifir mótlæti, þolir það illa og bregst við með of beldi (t.d. þegar því finnst ekki vera komið til móts við þarfir sínar). 2. Of beldi er hluti af lífsstíl sem sumt fólk hefur tileink- að sér og beitir þegar því finnst að gengið á rétt sinn. 3. Ofbeldi tengist sjúkdómnum. Þannig geta atvik þar sem ofbeldi á sér stað litið eins út og afleiðingarnar verið þær sömu þó orsakirnar séu ólíkar. Í rannsókn sem gerð var fyrir nokkrum árum á geðsviði Landspítala kom fram að algengasti aðdragandi að því að halda þurfti sjúklingum kyrrum með handafli að meðaltali í 10 mín- útur var að sjúklingar höfðu ráðist á starfsfólk. Þó afleiðingar of beldis séu oftast vægar hafa þær yfirleitt einhver áhrif á þau sem verða fyrir of beldi eða þau sem verða vitni að of beldi (starfsfólk og aðrir sjúklingar). Hér er um atriði að ræða eins og líkam- legur sársauki, líkamlegur áverki, hræðsla og kvíði, svefntruf lanir, depurð og tímabundin fjarvera úr starfi. Sumir þurfa að leita sér lækninga eða sálræns stuðnings og þá er þekkt að starfsfólk skipti um starf eða starfsvettvang eftir að hafa orðið fyrir of beldi. Rannsóknir sýna að þegar sjúkl- ingur sýnir árásargjarna og ógnandi hegðun er fyrsta úrræði starfsfólks að tala við hann og reyna að fá hann til að láta af hegðun sinni. Ef það tekst ekki er honum boðið lyf. Ef hann þiggur það ekki og heldur áfram óbreyttri hegðun sem að mati starfs- fólks getur þróast í enn alvarlegri hegðun eins og t.d. líkamlegt ofbeldi, er oft gripið til nauðungaraðgerða eins og að flytja sjúklinginn gegn eigin vilja yfir á annað svæði, hann látinn dvelja tímabundið (t.d. 30 mín.) í herbergi eða öðru afmörkuðu svæði og gefið lyf gegn vilja sjúklings. Með góðri vissu má fullyrða að tengsl eru á milli ofbeldis sjúklinga gagn- vart starfsfólki og öðrum sjúklingum og nauðungaraðgerðum. Fjöldi rannsókna hefur verið gerður um reynslu sjúklinga og starfsfólks af of beldi og nauðung- araðgerðum. Þær hafa aukið þekk- ingu starfsfólks og aukið viðleitni til að draga úr of beldi og um leið nauðungaraðgerðum, oft með góðum árangri. Sumir hafa gengið svo langt að krefjast þess að öllum nauðungaraðgerðum á heilbrigðis- stofnunum verði útrýmt og þær séu ekkert annað en of beldi. Aðrir telja að mikilvægt sé að draga úr nauðungaraðgerðum, þeim skuli aðeins beitt í neyð en að óraun- hæft sé að útrýma þeim alveg. Í nýlegri rannsókn þar sem talað var við einstaklinga á geðsviði Land- spítala sem höfðu verið beittir ein- hvers konar nauðungaraðgerðum sögðust allir vera á þeirri skoðun eftir að hafa horft upp á hegðun sumra samsjúklinga sinna að ekki yrði hægt að útrýma nauðungarað- gerðum. Þeim fannst hins vegar nauðungarinnlögn þeirra sjálfra ónauðsynleg og ósanngjörn. Það er mikilvægt að ræða of beldi gagvart starfsfólki á heil- brigðisstofnunum af hreinskilni, málefnalega og fordómalaust. Þar verður fyrst og fremst að ríkja við- horfið „aðgát skal höfð í nærveru sálar“. Ofbeldi gagnvart starfsfólki á heilbrigðisstofnunum Jón Snorrason geðhjúkrunar- fræðingur S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 2 0 . A P R Í L 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.