Fréttablaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 16
„Viskíglösin spruttu einfaldlega upp úr áhugamáli. Mig langaði sjálfum í „official“ viskíglös og tók eftir því að það var töluverður áhugi fyrir viskíi á Íslandi. Hins vegar voru Glencairn-glös ófáanleg hér á landi, en þau eru afar vinsæl hjá vískíáhugafólki. Ég hafði því samband við Glencairn í Skotlandi og fór í kjölfarið að selja þessi góðu viskíglös hér heima. Nokkrir viskí- klúbbar hafa þegar látið merkja sér glös og einnig hafa hótel keypt þau,“ upplýsir Ólafur Sigurðsson, eigandi Varmáss, um skemmtilega hliðarvöru sem fyrirtæki hans flytur inn. Varmás er nefnilega tæknifyrir- tæki sem hefur frá upphafi selt og þjónustað ýmiss konar tækni- búnað. „Þegar ég stofnaði Varmás árið 1989 var ég upphaflega með aðstöðu í bílskúrnum heima í Mosfellsbæ. Þegar aðstaðan varð of lítil keypti ég kjallarann í næsta húsi og var þar til ársins 1996 að ég keypti Markholt 2 undir starfsem- ina. Þremur árum seinna byggði ég við húsið um 108 fermetra og enn í dag er verið að huga að breytingum og meiri stækkun sem mun nýtast undir lagerinn,“ segir Ólafur sem ásamt Eyþóri G. Jóns- syni stofnaði einnig rafeindahluta- verslunina Íhluti sem starfrækt hefur verið í Skipholti 7 síðan 1992. Gott tæknilæsi notadrjúgt Ólafur er rafeindavirkjameistari sem hefur unnið í tækniumhverf- inu síðastliðin 48 ár. „Því má segja að tækni og tækni- þróun hafi fylgt mér lengi. Eins og allir vita er tæknin í stöðugri þróun og hef ég árlega sótt margar tæknisýningar til að fylgjast með og sjá nýja strauma. Í sumum til- fellum er ég beðinn um að finna lausnir fyrir viðskiptavini sem koma þá með hugmyndir um hvers kyns búnað sem þeir þurfa, eða vandamál sem þarf að leysa, og oftast finn ég lausnina fyrir þá,“ greinir Ólafur frá og nefnir sem dæmi fyrirspurn frá Ráðhúsi Reykjavíkur. „Þar vantaði ljósasúlur sem telja niður ræðutíma fyrir ræðuborð í borgarstjórnarsalnum og eftir að hafa fundið búnað fyrir Ráðhúsið og sett hann upp þar er ég með slíkan búnaði í sölu hjá Varmás.“ Ólafur segir ungt fólk vera einkar meðvitað um tækni og fljótt að til- einka sér hana. „Til að gera sér grein fyrir virkni og notagildi tækninnar er betra að hafa gott tæknilæsi. Sumir af eldri kynslóðinni eru ekki eins öruggir með tæknina, eða eru hræddir að prófa og tileinka sér hana. Þó eru til einstaklingar sem eru óhræddir við að nýta sér tæknina og sjá það helst að hún léttir þeim verkið til muna með því að forvinna verkin og nota þau aftur og aftur.“ Gróðursetja tré fyrir hvern skjá Ólafur hóf innflutning á gagn- virkum SMART-töflum árið 2001 og hefur síðan selt slíkan búnað í marga íslenska skóla. SMART var stofnað í Calgary í Kanada árið 1984. „SMART er brautryðjandi í gagn- virkum töflum og skjáum,“ segir Ólafur og heldur áfram: „Ég myndi segja að notkun á gagnvirkum töfl- um og skjáum hafi valdið straum- hvörfum í kennslu og fundarher- bergjum, og eru margir kennarar á sama máli og ég. Erlendis hafa verið gerðar rannsóknir sem hafa sýnt fram á aukinn námsárangur. Kennslan verður meira lifandi með notkun slíks búnaðar, þar sem kennarar hafa meiri möguleika hvað varðar fjölbreytni í námsefni og kennsluaðferðum til að grípa athygli og áhuga nemenda.“ Varmás flytur einnig inn gagn- virka skjái frá Prowise og ýmsar gerðir af rafmagns-hjólafestingum fyrir skjáina. Þess má geta að Prowise gróðursetur tré fyrir hvern skjá sem seldur er. „Í dag er þróunin orðin sú að komnir eru gagnvirkir snertiskjáir á hjólaborðum sem hægt er að hækka og lækka og halla í borð. Nýjasta verkefnið mitt var uppsetning á sex skjáveggjum í skóla í Reykja- nesbæ, þar sem hver skjáveggur samanstendur af níu 49" LG-skjáum sem eru tengdir saman og mynda eina heild. Þá settum við jafnframt upp gagnvirka skjái frá Prowise í kennslustofur skólans.“ Fjærverur hjálpa mannverum Á upphafsárum Varmáss vann Ólafur eingöngu að tölvu- og tækni- búnaði fyrir skóla landsins. „Seinna meir fór ég að snúa mér að öllum markaðnum því ég sá að búnaðurinn hentaði jafnt skólum, stofnunum og fyrirtækjum,“ segir Ólafur. Nýjasta varan hjá Varmási eru róbótar sem Ólafur kallar því skemmtilega nafni fjærverur en nafnið er komið frá Háskólanum á Akureyri. Þær hafa marga kosti og fjölbreytt notagildi, og nefnir Ólafur þrjú dæmi fyrir mismun- andi stofnanir. „Í skólum getur nemandi sem ekki kemst í skólann fengið að tengjast fjærveru og verið í tíma, tekið þátt í umræðum og farið á milli stofa með því að stjórna fjær- verunni. Á milli kennslustunda getur hann einnig verið með skóla- félögum sínum og haldið þannig félagslegum tengslum, sem eru líka mikilvægur þáttur í skólagöng- unni. Annað dæmi er sjúkrahús á landsbyggðinni þar sem læknir á Reykjavíkursvæðinu gæti tekið þátt í stofugangi og talað við sjúklinga, og eins gæti læknir á einhverju stóru sjúkrahúsanna aðstoðað með fjærveru á heilsugæslum og tengdum stofnunum, en það er háð því að fjærvera sé þar til staðar. Í fyrirtækjum er svo hægt að nota fjærveru til að bjóða utanaðkom- andi á fjarfund þar sem hægt er að ferðast innanhúss og skoða sig um, og jafnvel skoða vöruúrval,“ upp- lýsir Ólafur um gagnlega rótbótana sem hægt er að stjórna hvaðan sem er ef netsamband er til staðar; til að ferðast um rými og stjórna því sjálfur hvar maður er. „Eins og er eru fjærverur aðallega notaðar innanhúss og þá einungis á einni hæð þar sem háir þröskuldar eru ekki til staðar, því hún myndi stoppa á þeim vegna skynjara sem sér fyrirstöðu fyrir framan sig og niður á gólf. Þessi tækni er auðvitað í sífelldri þróun svo það er eflaust bara tímaspursmál hvenær hægt verður að skoða land og þjóð með fjærveru, hvernig sem viðrar.“ Skrúfað frá hita á köldu vatni Varmás selur einnig eftirsótta hitara sem hita vatn um leið og skrúfað er frá krananum og henta vel á svæðum þar sem eingöngu er kalt vatn. „Ég hef verið með þessa hitara síðastliðin átta ár, bæði fyrir 220 volt og þriggja fasa, en hitararnir hita vatnið um leið og skrúfað er frá og slökkva síðan á sér þegar skrúfað er fyrir. Margar stærðir eru til fyrir mismunandi notkun og hafa mikið verið keyptir fyrir sumarbústaði. Með þessum græjum er hægt að sleppa hitakút og er sparnaður í orkunotkun og plássi þó nokkur,“ útskýrir Ólafur. Varmás er líka með skjávarpa, hljóðkerfi, bókvarpa, stjórnbúnað fyrir skólabjöllur, svo fátt sé upp- talið. „Undanfarin ár hef ég útvegað perur í skjávarpa og get fengið perur í f lestar gerðir innan örfárra daga. Við erum líka með OMBEA- búnað sem gefur einkunn eða álit á þjónustu og er hægt að staðsetja á mörgum stöðum, sérstaklega þar sem umgangur er, og í ýmsum útfærslum. Það nýjasta frá OMBEA er snertilaust takkaborð en þá þarf einungis að setja höndina yfir takkann til að gefa einkunn,“ upp- lýsir Ólafur. Varmás er með umboð fyrir Interspace sem framleiðir ýmsan búnað fyrir ræðusali, svo sem stillanlegar klukkur sem telja niður ræðutíma og sýna niðurtaln- ingu á ljósasúlu með grænu, gulu og rauðu ljósi. Einnig er hægt að fá skjái sem sýna klukku og niður- talningu, eða búnað sem varpar henni á myndupptöku. „Við erum líka með búnað frá Sapling sem stjórnar klukkum og bjöllum í til dæmis skólum. Með honum er hægt að sam- tengja klukkur sem staðsettar eru víða um skólann eða stofnunina. Búnaðurinn sækir uppfærslur á tíu klukkuþjóna víðs vegar um heim og er klukkan því alltaf rétt. Einfaldur hugbúnaður fylgir stjórnbúnaði og hægt að stilla allt skólaárið inn í einu, og hringja þá bjöllurnar einungis á skóladögum en ekki frídögum,“ útskýrir Ólafur sem hefur einnig selt Sapling- búnað í fyrirtæki og fiskvinnslu þar sem hann er til dæmis notaður til að hringja inn og út kaffi- og matartíma. Tæknivörur fyrir öll verkefni Fleiri áhugaverðar vörur sem Varm ás býður viðskiptavinum eru: AVER bókvarpar (e. visualizer) og fjarfundabúnaður. Bókvarpar eru tæki sem tengjast við tölvu og varpa mynd af því sem sett er undir þá. Þeir leysa af hólmi gömlu glæruvarpana sem mikið voru notaðir í skólum og vörpuðu mynd frá glæru á vegg. Sumar tegundir er einnig hægt að tengja við smá- sjár, sem kemur sér vel, til dæmis í kennslu raungreina. aSc Timetables er hugbún- aður til að búa til stundatöflur og sannreyna þær, það er að stunda- taflan skarist ekki tímalega og að kennari sé ekki að kenna í tveimur kennslustofum. Hægt er að flytja stundatöflur frá þessum hug- búnaði yfir í Info Mentor kerfið sem margir skólar nota. Hljóðkerfi – raddhjálp: Röddin er mikils virði en kennarar nota hana mikið á hverjum degi sem leiðir oft til þess að með tímanum verða þeir sárir í hálsi. Með hljóð- búnaði í kennslustofum þarf kenn- ari ekki að beita röddinni eins mikið því búnaðurinn magnar upp röddina og varpar hljóðinu jafnt um alla stofuna. Robotel er með hugbúnað fyrir tungumálaver og tungumála- kennslu sem gerir fjarkennslu tungumála auðvelda með því að færa hana yfir í tölvur og snjalltæki nemenda og gerir kennara kleift að fara yfir verkefni einstakra nemenda þegar þeim hentar, um leið og þeim er skilað. Mersive framleiðir fjarfunda- búnað sem tengist við skjái í fundarherbergi. Tölvur og snjalltæki tengjast þráðlaust við búnaðinn og geta þátttakendur á fundum þannig deilt efni upp á skjáinn, til dæmis glærukynn- ingu eða sínum eigin skjá, jafnvel margir í einu. Þegar ekki er verið að nota búnaðinn sem fjarfunda- búnað er hægt að nota hann sem upplýsingaskjá í fyrirtækinu. Varmás er í Markholti 2 í Mos- fellsbæ. Sími 566 8144. Allar nánari upplýsingar á varmas.is Ólafur er vakinn og sofinn yfir hvers kyns tækninýjungum sem íslenskir skólar, fyrirtæki og stofnanir njóta góðs af, en inni á milli flytur hann inn óvenjulegar og skemmtilegar vörur, eins og viskíglös og hitara sem hita kalt vatn um leið og skrúfað er frá kran­ anum. FRÉTTA- BLAÐIÐ/STEFÁN Hér sést nett fjærvera á ferðinni. Robotel auðveldar tungumálanám. Skosku Glencairn viskíglösin góðu. Prowise gagnvirkur snertiskjár. Með gagn­ virkum snerti­ lausum skjám er hægt að mynda heilu skjáveggina sem valda straumhvörfum þegar kemur að þægindum í kennslustofum og fundar­ herbergjum. 2 kynningarblað A L LT 20. apríl 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.