Fréttablaðið - 20.04.2021, Síða 14
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Krakkar geta flogið um í eigin
heimi, það er eiginleiki sem
tapast dálítið þegar fólk verður
fullorðið og fyllir hausinn á sér
af rökum.
Okkar ástkæri
Aðalsteinn Dalmann
Októsson
fyrrverandi verkstjóri,
Hjallaseli 55, áður Þórðarsveig 1,
verður jarðsunginn frá Guðríðarkirkju
miðvikudaginn 21. apríl kl. 13. Vegna
aðstæðna verður einungis nánasta fjölskylda viðstödd.
Aðalheiður Bergsteinsdóttir
Hjörtur O. Aðalsteinsson Hildur Jónsdóttir
Eygló Aðalsteinsdóttir Flosi S. Valgarðsson
Guðrún Aðalsteinsdóttir Camillus B. Rafnsson
Erling Ó. Aðalsteinsson
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson Magnea Davíðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Magnús
Finnbogason
Dalseli 12,
lést á Landspítalanum
Fossvogi 1. apríl 2021.
Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Dagmar Inga Kristjánsdóttir
Margrét Geirrún Kristjánsdóttir Karl Þorsteinsson
afabörn og langafabörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararstjóri
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Okkar ástkæri sonur, bróðir,
mágur og barnabarn,
Egill Valgeirsson
Kambahrauni 25, Hveragerði,
verður jarðsunginn frá
Hveragerðiskirkju þriðjudaginn 20. apríl
klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða
einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir.
Útförinni verður streymt á promynd.is/egill
Valgeir Ásgeirsson Þórunn Sigurðardóttir
Sigurður Valgeirsson Sunna Björk Karlsdóttir
Valur Rafn Valgeirsson Díana Björk Olsen
Sigurður Sigurdórsson Erla Ragnarsdóttir
Ástkær sonur okkar,
Jón Ásgeir Halldórsson
lést á líknardeild Landspítalans
sunnudaginn 11. apríl.
Fjölskyldan þakkar starfsfólki
líknardeildar fyrir umhyggju og hlýju í
hans garð. Útförin fór fram í kyrrþey.
Hugrún Jónsdóttir Guðjón Helgi Þorvaldsson
Halldór Sveinbjörnsson Lumen Riondanga
Elsku móðir okkar, amma, langamma
og langalangamma,
Magnea Ingibjörg
Sigurhansdóttir
Hringbraut 50, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu
Grund þann 14. apríl sl.
Sigurhans Valgeir Hlynsson
Steinunn Þrúður Hlynsdóttir
Óskar Hlynsson Guðrún Magnúsdóttir
Jóhann Bergur Hlynsson Helga Þuríður Þórhallsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn, langalangömmubörn
og aðrir ættingjar og vinir.
Olíumálverk og skúlptúrar mæta augum í Þulu gall-eríi á Hverfisgötu 34. Bak við verkin er lista-konan Helga Páley Frið-þjófsdóttir. Hún segir
titil sýningarinnar, Húsvörðurinn sem
sló í gegn, vera langsóttan brandara sem
erfitt sé að útskýra.
„Sýningin er eins og að skyggnast inn
í óræðan draum. Það er niðurstaðan. Ég
byrjaði á að teikna mynd af húsverði á
sviði og það er tómur salur fyrir framan
hann. Hann gæti verið í félagsheimili eða
leikhúsi og hann er að skúra. En þetta er
eins og þegar maður lá í blómabeðinu í
unglingavinnunni og hlakkaði til alls
sem var fram undan. Krakkar geta flogið
um í eigin heimi, það er eiginleiki sem
tapast dálítið þegar fólk verður fullorðið
og fyllir hausinn á sér af rökum. Sem
betur fer getur húsvörðurinn enn gleymt
sér í dagdraumum og leyfir sjálfum sér
að fara eitthvert með það sem hann er
að gera. Það eru margar hugmyndir sem
hægt er að hlaða á þennan húsvörð.“
Sjálf kveðst Helga Páley hafa átt
ömmubróður sem var húsvörður hjá
sjónvarpinu eftir að hann brá búi. „Millj-
ónamæringur getur safnað innantómum
lúxusheitum en manneskjur sem eru
sáttar við sjálfar sig geta séð uppsprettu
að ævintýri í sínu nánasta umhverfi hvar
sem er.“
Sýningunni lýkur 24. apríl.
gun@frettabladid.is
Eins og að skyggnast inn í
óræðan draum á sýningu
Húsvörðurinn sem sló í gegn er forvitnilegur titill myndlistarsýningar sem er opin
fram á helgi í Þulu galleríi á Hverfisgötu 34 í Reykjavík. Höfundur er Helga Páley Frið-
þjófsdóttir. Hún segir margar hugmyndir sem hægt sé að hlaða á þennan húsvörð.
Helga Páley á vinnustofu sinni við Hólmaslóð en sýningin hennar er við Hverfisgötu 34 í Reykjavík út vikuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Húsvörðurinn:
Ég stend á sviði og horfi fram. Hvítt
ljósið úr kösturunum skín beint í and-
litið á mér svo mig verkjar í augun. Ég
lít niður á svart sviðið svart og matt –
svo matt að það er eins og það gleypi
í sig allt ljós.
Ætli ljósið fari í gegnum sviðið og
komi út hinum megin? Er þetta svarta
svið undir fótum mér kannski skel
yfir í síbjartan geim sem við sjáum
ekki?
Kallað er úr sal: „Gerðu eitthvað!“
Ljósið blindar mig enn. Ég hvíli augun
með því að fylgjast með mottunni
strjúkast með dáleiðandi zik zak
hreyfingum yfir sviðið.
2 0 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT