Fréttablaðið - 20.04.2021, Síða 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Öryggi í umferð síðan 1996
Fiskislóð 30
101 Reykjavík
561 4110
Tímabókun
Grjóthálsi 10
110 Reykjavík
561 4210
Röð
Njarðarbraut 9
260 Reykjanesbæ
420 3333
Röð
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
460 4350
Tímabókun
Lyngási 8
210 Garðabæ
565 8600
Röð
Breiðhöfði 13
110 Reykjavík
590 2080
Tímabókun
Sjáðu úrvalið á
nesdekk.is
Öryg i í umferð síðan 19 6
Nesdekk, sem er fjölskyldufyrir-
tæki með yfir 40 ára sögu, leggja
alla áherslu á persónulega þjónustu,
bestu fáanlegu vörumerki og hóf-
semi og skynsemi í vexti. „Stígandi
lukka er alltaf best og við pössum
upp á að eiga alltaf fyrir því sem við
byggjum,“ segir Ólafur Benedikts-
son, framkvæmdastjóri Nesdekkja.
Hvergi betri aðbúnaður
til dekkjaskipta
Nesdekkjaverkstæðin eru í dag
orðin sex talsins í Reykjavík, Garða-
bæ, Reykjanesbæ og á Akureyri.
„Þessu til viðbótar erum við nú
komin með yfir 80 endursöluaðila
um land allt þannig að allir ættu að
geta fundið þjónustuaðila í sinni
heimabyggð. Í höfuðstöðvum
fyrirtækisins á Breiðhöfða er svo
búið að opna stærsta og nútíma-
legasta verkstæði landsins þar
sem atvinnumenn njóta þess að
geta keyrt bíla sína beint í gegnum
húsið en hægt er að þjónusta allt
að fjóra vörubíla af stærstu gerð
ásamt nokkrum sendibílum í einu.
Á fólksbílaverkstæðinu eru svo
niðurgrafnar dekkjalyftur þannig
að engin hætta er á að reka bílinn
upp undir, engin dekkjavél er eldri
en tveggja ára (en á sumum dekkja-
verkstæðum þekkist að menn séu
að nota upp undir 30 ára gamlar
vélar). Auk þess bjóðum við upp
á snertilausar umfelgunarvélar
þannig að óhætt er að segja að
þú finnur ekki betri aðbúnað til
dekkjaskipta,“ segir Ólafur.
Netverslun, einfalt og öruggt
„Á seinasta ári opnuðum við svo
fyrir vefverslun á heimasíðunni
okkar nesdekk.is þar sem neyt-
endur geta á einfaldan hátt séð allt
úrvalið fyrir þeirra bíla og auðveld-
lega pantað dekk heim að dyrum.“
Mjög mikið úrval er í boði á síðunni
og auðvelt er að bera saman dekk
og verð.
Tímapantanir létta fólki lífið
Samhliða er einnig hægt að panta
tíma í dekkjaskipti bent á vef-
síðunni og því hægt að koma
áhyggjulaus á staðinn þar sem allt
er tilbúið. „Nú er tími til að skipta
yfir í sumardekkin og hefur þessi
tími alla jafna einkennst af löngum
biðröðum. Við í Nesdekkjum
höfum brugðist við þessum vanda
með því að bjóða fólki þann valkost
að panta tíma fyrir bílinn í dekkja-
skipti fyrir fram á verkstæðunum
á Breiðhöfða og Fiskislóð. Þetta
er spurning um að létta fólki lífið.
Viðskiptavinir okkar eru mjög
ánægðir með þessa nýjung, enda er
fólk almennt vant því að bóka tíma
fyrir fram þegar um annars konar
þjónustu er að ræða, samanber
klippingu eða læknavitjun.“ Ólafur
bendir líka á að eftir sem áður geti
fólk valið að fara í röð á öðrum Nes-
dekkjaverkstæðum.
Fagmenn í öllum stöðum
Hjólbarðaverkstæði Nesdekkja
eiga það sameiginlegt að veita
dekkjakaupendum fyrsta flokks
þjónustu. Þar finna bíleigendur
sömuleiðis einhverja breiðustu línu
af hjólbörðum sem völ er á. Að sögn
Ólafs er það viðurkennd staðreynd
að dekkin hafa heilmikið að segja
um aksturseiginleika bílsins og því
veltur öryggi ökumanna og farþega
á gæðum þeirra.
„Þess vegna skiptir miklu máli
að velja réttu dekkin fyrir réttar
aðstæður og fyrir farartækið þitt.
Við kappkostum að hjá Nes-
dekkjum séu fagmenn að störfum
sem geti veitt bestu ráðgjöf við
dekkjaval og þjónustu sem völ er á.
Viðskiptavinirnir geta treyst okkar
mönnum fyrir bílum sínum og
atvinnutækjunum þegar dekkin
eru annars vegar.“
Hjólbarðar frá helstu
framleiðendum
Hjá Nesdekkjum finnur þú hjól-
barða frá mörgum af þekktustu
framleiðendum í heimi. Má þar
nefna Toyo, Pirelli, Laufenn,
Maxxis, Mastercraft, Nangkang,
GT radial og Interstate. Jafnframt
miklu úrvali af dekkjum undir
fólksbíla hafa Nesdekk lagt mikinn
metnað í að bjóða upp á vörubíla-
dekk í breiðu úrvali og miklum
gæðum frá framleiðendunum
Pirelli, Laufenn og Doublecoin.
Allir á dekki frá kl. 6.00–23.00
að Breiðhöfða 13
Óhætt er að segja að mikið gangi
á þessa dagana hjá Nesdekkjum
á Breiðhöfða. „Þessi tími er okkar
vertíð og þegar eftirspurnin eftir
þjónustu er mikil er brýnt að skipu-
leggja starfsemina vel. Við erum því
á fullu gasi frá kl 6.00 á morgnana
til 23.00 á kvöldin í vortörninni.
Þannig náum við að þjóna enn
fleiri viðskiptavinum,“ segir Ólafur.
Lengri opnunartími að Breiðhöfða
er einnig hugsaður út frá því að
færri viðskiptavinir séu á staðnum
á sama tíma. Þá áréttar Ólafur að nú
á COVID-19 tímum séu allir starfs-
menn vel sprittaðir, beri grímur og
hanska. Þá fari enginn starfsmaður
inn í bílana og að eigendur aki
bílum sínum sjálfir inn á gólf.
Nánari upplýsingar á nesdekk.is og
í síma 561-4200.
Ólafur Benediktsson, framkvæmdarstjóri hjá Nesdekkj-
um, segir að dekkin hafi heilmikið að segja um aksturs-
eiginleika bifreiðarinnar og því veltur öryggi ökumanna
og farþega á gæðum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR.
Nesdekk eru með verkstæði á sex stöðum á landinu. Þau eru á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, í Reykja-
nesbæ og á Akureyri. Á Breiðhöfða 13 er nú opið frá 06.00 – 23.00 alla virka daga til að mæta eftirspurn.
Viðskiptavinir eru ánægðir með þann kost að geta nú bókað í dekkjaskipti á netinu, enda er
fólk almennt vant því að geta bókað tíma fyrir fram til þess að sleppa við langar biðraðir.
Dekkjaverk-
stæði Nes-
dekkja að
Breiðhöfða
13 er stærsta
og eitt full-
komnasta hjól-
barðaverkstæði
landsins með
tækjabúnaði og
aðstöðu til að
veita bílum af
öllum stærðum
og gerðum
fyrsta flokks
hjólbarðaþjón-
ustu.
2 kynningarblað 20. apríl 2021 ÞRIÐJUDAGURSUMARDEKK