Fréttablaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 19
Klettur rekur fjögur dekkja- verkstæði á höfuðborgarsvæð- inu þar sem fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar geta fengið góða og persónulega þjónustu. Þar er boðið upp á fjölbreytt úrval af dekkjum á breiðu verð- bili. Klettur er leiðandi í sölu og þjón­ ustu fyrir breiða línu alls kyns bif­ reiða og véla, en fyrirtækið selur líka ýmsan hliðarbúnað og fylgi­ hluti frá þekktum vörumerkjum. Klettur rekur verkstæði, smurstöð og f leira í Klettagörðum og er með dekkjaverkstæði á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er upp á góða og persónu­ lega þjónustu. Persónuleg þjónusta „Hér hjá Kletti leggjum við okkur fram um að bjóða upp á mjög góða þjónustu og við viljum hafa þetta á persónulegu nótunum. Við gerum allt sem við getum fyrir kúnnann,“ segir Jóhann Thorleifsson, stöðvar­ stjóri á nýjasta verkstæði Kletts, sem er staðsett á Lynghálsi. „Við þjónustum alla, bæði fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Við erum með ýmsa fastakúnna en þeir sem koma af götunni fá sömu gæðaþjónustu og þeir sem eru á samningi,“ segir Jóhann. „Við gerum líka alltaf okkar besta til að redda fólki úr vandræðum og vera lausnamiðaðir. Ef einhver er til dæmis að fara eitthvað á haustin en þarf dekkjaskipti fyrst reynum við að koma viðkomandi að, jafn­ vel þó að það sé fullbókað. Við vorum að opna hér á Lyng­ hálsi núna í október og erum enn að koma okkur á kortið en það gengur vel. Það er mikið af fyrir­ tækjum hér í kring sem versla við okkur,“ segir Jóhann. Dekk á breiðu verðbili „Við bjóðum upp á gríðarlegt úrval af endingargóðum dekkjum frá fjölbreyttum framleiðendum á mjög breiðu verðbili. Við erum meðal annars með dekk frá Good­ year, Nexen, Sava og Hankook, þannig að við bjóðum bæði upp á þau allra fínustu og líka mjög góð ódýrari dekk fyrir þá sem hafa minna á milli handanna,“ segir Jóhann. „Þannig að það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, en það er hægt að skoða allt úrvalið á heimasíðunni okkar. Við bjóðum líka upp á dekkja­ hótel fyrir okkar viðskiptavini, þannig að þeir sem vilja geta geymt dekkin sín hjá okkur gegn vægu gjaldi,“ útskýrir Jóhann. „Þá er mjög þægilegt að panta bara tíma í dekkjaskipti og þá verða dekkin til reiðu þegar þú kemur. Þannig sleppur fólk við að burðast með þau niður í geymslu eða þurfa að finna einhvern annan stað fyrir þau.“ Nánari upplýsingar má finna á klettur.is. Dekk á verði sem hentar öllum Jóhann Thorleifsson er stöðvarstjóri á nýjasta verkstæði Kletts, sem er staðsett á Lynghálsi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hjá Kletti er áhersla á mjög góða og persónulegu þjónustu. Klettur býður upp á gríðar- legt úrval af endingargóðum dekkjum frá fjölbreyttum framleiðendum á mjög breiðu verðbili. Við erum með ýmsa fastakúnna en þeir sem koma af götunni fá sömu gæða- þjónustu og þeir sem eru á samningi. Við gerum líka alltaf okkar besta til að redda fólki úr vandræðum og vera lausnamiðaðir. Hjá Sólningu sinna reyndir starfsmenn hjólbarðaþjón- ustu. Þar er fjölbreytt úrval af dekkjum í öllum verð- og gæða- flokkum og boðið er upp á alls kyns auka þjónustu fyrir bílinn. Á Smiðjuvegi er líka boðið upp á stafræna biðröð. Sólning býður upp á fyrsta flokks hjólbarðaþjónustu með full­ komnum tækjabúnaði og rekur dekkjaverkstæði á fjórum stöðum; á Smiðjuvegi 34 í Kópavogi, í Skútuvogi 2 í Reykjavík, í Hjalla­ hrauni 4 í Hafnarfirði og á Fitja­ braut í Njarðvík. „Síðustu daga hefur verið heil­ mikið að gera vegna dekkjaskipta landans og til að mæta eftirspurn­ inni tvöföldum við starfsmanna­ fjölda okkar þessa dagana,“ segir Aron Elfar Jónsson, framkvæmda­ stjóri Sólningar. „Sólning er með gríðarlega reynslumikla starfs­ menn í þessum bransa sem hafa flestir starfað í þessu fagi í áraraðir og við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð.“ Allar gerðir dekkja „Við eigum fjöldann allan af dekkjum undir alla bíla í góðum gæðum og á mjög flottum verðum,“ segir Aron. „Við bjóðum meðal annars upp á Hankook dekk, sem hafa verið í gríðarlegri þróun síðustu ár, en þau hafa verið að keppa við flottustu merkin, þrátt fyrir það að vera áberandi ódýrari. Einnig erum við með Nexen dekk, sem voru upphaflega hönnuð fyrir Porsche bifreiðar. Það eru gríðarlega flott dekk sem eru líka á góðum verðum. Nýlega fórum við svo að bjóða upp á amerísk dekk frá Goodyear, sem er það allra flottasta á mark­ aðnum í dag,“ segir Aron. „En við bjóðum líka upp á fjöldann allan af ódýrari kostum í dekkjum.“ Stafræn röð á netinu „Við höfum lagt upp með það að sleppa því að hafa tímapantanir, þar sem flestir okkar kúnnar vilja komast að samdægurs,“ segir Aron. „Á Smiðjuveginum erum við með númerakerfi sem við vörpum inn á heimasíðuna okkar, solning.is. Þú þarft að koma til okkar og sækja þér númer í röðina en svo geturðu skotist frá ef þú þarft eitthvað að stússast og getur einfaldlega fylgst með stöðunni á röðinni í sím­ anum. Á hinum stöðunum erum við svo einfaldlega með klassískar biðraðir. Við pössum rosa vel að fylgja öllum fyrirmælum sóttvarnalækn­ is á öllum okkar verkstæðum og höfum sett upp gler fyrir framan starfsmenn í afgreiðslum og erum að sjálfsögðu með spritt við posa og aðra snertifleti,“ útskýrir Aron. Fjölbreytt þjónusta Sólning býður upp á ýmsa auka þjónustu fyrir utan dekkjaskiptin. „Dekkjageymsla eða dekkja­ hótel er einnig hluti af okkar þjónustu og við bjóðum fólki upp á að geyma dekkin hjá okkur á milli dekkjaskipta,“ segir Aron. „Svo höfum við einnig til taks fullkomna hjólastillingarbekki á verkstæðum okkar á höfuð­ borgarsvæðinu. Rétt hjólastilling skiptir sköpum til að auðvelda ökumönnum stjórn á ökutækinu og hámarka jafnvægi bílsins við hemlun,“ útskýrir Aron. „Hún eykur einnig líftíma hjólbarðanna, dregur úr eldsneytiseyðslu og gerir aksturinn þægilegri. Hjólastilling borgar sig upp á afar skömmum tíma í dekkjasliti og eldsneytis­ eyðslu bílsins. Við höfum líka verið með smá­ viðgerðir á bílum á milli dekkja­ tarna og þá getum við lagað allt í hjólabúnaði bílsins,“ segir Aron. „Síðast en ekki síst tökum við líka að okkur hefðbundna smur­ þjónustu. Við hvetjum fólk til þess að hafa samband við okkur í síma, tölvu­ pósti eða á samfélagsmiðlum, við erum hér til að aðstoða með allt sem tengist bílnum þínum,“ segir Aron að lokum. Hægt er að hafa samband við Sólningu í síma 544 5000, í gegn- um netfangið solning@solning.is, í í gegnum vefsíðuna solning.is og á samfélagsmiðlum. Aðstoð með allt sem tengist bílnum Aron Elfar Jónsson, framkvæmdastjóri Sólningar, segir að þar sé lögð áhersla á vönduð vinnubrögð og starfs- mannafjöldinn sé tvöfaldaður þessa dagana til að mæta eftirspurninni eftir dekkjaskiptum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sólning er með fjöldann allan af dekkjum undir alla bíla í góðum gæðum og á mjög góðum verðum. Þar er bæði hægt að fá dekk í ódýr- ari kantinum og það allra flottasta á markaðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sólning er með gríðarlega reynslu- mikla starfsmenn í þessum bransa sem hafa flestir starfað í þessu fagi í áraraðir. kynningarblað 3ÞRIÐJUDAGUR 20. apríl 2021 SUMARDEKK

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.