Fréttablaðið - 20.04.2021, Side 20
„Það má segja að dekkjaáhuginn
hafi magnast með hjólreiðunum.
Ég hef verið að vasast í ýmsu í
gegnum tíðina. Ég er með meira-
prófið og próf á nánasta hvaða
tæki og tól sem eru með dekk
eða belti. Það lærist fljótt hvar og
hvenær góð dekk skipta máli. En
þegar nándin við dekkin eru orðin
jafn mikil og hún er á hjólinu þá
fór ég alveg að pæla mun meira í
dekkjum.“
Elín stundar hjólreiðar allan
ársins hring og segir færð og veður
sjaldan stoppa sig. Hún er því afar
fróð um þær gerðir dekkja sem
henta á mismunandi árstíma.
„Stærsti munurinn á sumar- og
vetrardekkjum á Íslandi eru lík-
legast naglar. Vetrardekk eru yfir-
leitt aðeins breiðari, með grófara
mynstri sem kastar frá sér snjó
og slabbi. Vetrardekkin eru mun
þyngri en á móti sterkbyggðari
og veita meira viðnám. Svo er það
bara persónubundið hvort fólk
fer í naglana eða ekki. Sjálf kýs ég
að hjóla á vel negldum dekkjum á
veturna og það er ansi mikil veisla
þegar maður skiptir svo yfir í fis-
léttu sumardekkin að vori til,“ segir
hún.
„Þar sem dekkin eru fyrsta og
eina tengingin þín við undirlagið
þá finnst mér frekar mikilvægt að
vanda valið og hafa dekkin í lagi.“
Rétt dekk fyrir réttar aðstæður
Elín nefnir nokkur atriði sem æski-
legt er að hafa í huga áður en dekk
eru valin. „Þegar maður velur dekk
á hjól er gott að hafa í huga hvar
þú ætlar að eyða mestum tíma á
hjólinu þínu. Ef þú ætlar að vera í
borginni á malbikuðum stígum þá
henta mjó og slétt dekk vel þar sem
þau rúlla vel. Ef þú ætlar að vera á
blönduðum stígum væri gott að
skoða sterkari og gripmeiri dekk,“
útskýrir hún.
„Svo þegar þú ert komin út í
fjallahjólreiðar þá flækist þetta
enn meira. Þá er maður farin að
pæla í ákveðnum mynstrum,
kubbastærð, styrkleika, þyngd og
fleiru. Vissulega er þetta komið á
frekar nördalegt stig þegar maður
er komin út í slíkar pælingar en
höfuðreglan er bara að velja rétt
dekk fyrir réttar aðstæður.“
Elín greinir frá því að hún
skipti nokkuð reglulega um dekk
á hjólunum sínum en ljóst er að
það eru heilmikil vísindi að baki
því hvaða dekk verða fyrir valinu
hverju sinni.
„Á götuhjólinu er ég með sterk
æfingadekk sem þola hnjask og
slitna síður en set svo keppnis-
dekk undir þegar svo ber við. Það
sama á við um fjallahjólin, þar er
ég með uppáhaldsdekk sem ég
nota við leik og æfingar en þegar
ég fer að keppa vel ég dekk eftir
gerð brautar. Sum dekk eru góð
í sleipum klettum, önnur betri í
blautri drullu og svo framvegis.“
Ertu með einhver markmið tengt
hjólamennskunni?
„Já, ég er með fjölmörg markmið
en er ekki alveg tilbúin að deila
þeim öllum með alheiminum.
Þetta sumar fer ég í nýjan keppnis-
galla og mun keppa undir merkj-
um hjólreiðafélagsins Tinds. Ég
stefni upp á við og ætla að gera enn
betur næsta tímabil, halda áfram
að hafa gaman og efla sportið.“
Það verður meira en nóg um
að vera hjá Elínu í sumar. „Nú er
ég bara á fullu að undirbúa mig
fyrir fyrstu keppnir sumarsins en
mótaskráin er vel pökkuð. Einnig
er ég með nokkrar fjallahjólaferðir
á hálendi Íslands í dagbókinni.
Þess á milli mun ég njóta góðra
stunda í faðmi fjölskyldu og vina
og flakka um Ísland á ævintýrabíl
fjölskyldunnar.“
Frá Íslandsmótinu í fjallabruni
á Akureyri á grófum og þungum
dekkjum. MYND/ÁRMANN HINRIK
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@
frettabladid.is
Útivistar- og ævintýrakonan
Elín Björg Björnsdóttir kynntist
hjólreiðum af alvöru árið 2015
og þá varð ekki aftur snúið. Sam-
hliða hjólamennskunni hefur
Elín þróað með sér mikinn áhuga
og þekkingu á dekkjum enda er
fátt sem skiptir jafn miklu máli
í hjólreiðunum og að vera með
viðeigandi dekkjabúnað.
„Ég er alin upp við í útivist og
ævintýraferðamennsku og veit
ekkert betra en að leika mér í nátt-
úrunni, hvort sem það er að klifra
upp fjöll, renna niður fjöll, sigla
ár, kafa, surfa og nú síðast en ekki
síst, hjóla,“ segir Elín, létt í bragði.
„Auk þess hef ég alla mína tíð verið
mikil íþróttamanneskja og æft fjöl-
breyttar íþróttir af krafti.“
Hugljómun á Fjallabaki
Elín rifjar upp áhrifamikið augna-
blik sem markaði upphaf ástríðu
sem ekki sér enn fyrir endann á.
„Ég byrjaði að hjóla af einhverju
viti árið 2015 þegar ég fór með
vinkonum mínum í fjögurra daga
fjallahjólaferð (sem er enn árleg)
upp á Fjallabak. Ég þekkti svæðið
vel en þegar ég hjólaði um það í
fyrsta skipti var líkt og opnaðist
ný vídd og ég sá heiminn í öðru
ljósi. Ekki varð aftur snúið, ég bara
elskaði að hjóla,“ segir hún.
„Ég náði fljótt ágætis færni en ég
er með smá bakgrunn úr mótor-
sporti og held því fram að það hafi
hjálpað til við beitingu og hraða á
fjallahjólinu.“
Það var þó aðeins seinna sem
ástríðan náði nýjum hæðum. „Það
var svo haustið 2019 að ég var göbb-
uð inn í heim götuhjólreiðanna.
Þá fyrst fékk ég alvarlega dellu og
líf mitt byrjaði alfarið að snúast í
kringum hjól.“
Hvað er það sem heillar þig svona
við hjólreiðar?
„Ef ég ætti að lýsa hjólreiðum í
einu orði þá væri það „frelsi“. Það
að geta ferðast um fjöll og firnindi,
borgir og bæi, ein eða í góðum
hóp, fá loft í lungun, roða í kinnar,
útrás og hugarró. Færð allt þetta og
meira til í einum umhverfisvænum
pakka. Ansi heillandi pakki,“ segir
Elín brosandi.
Er eitthvert ákveðið augnablik
sem stendur upp úr?
„Þegar ég lít til baka þá er það
ekki endilega eitt eftirminnilegt
augnablik. Vissulega eru margar
virkilega góðar minningar, per-
sónulegir og veraldlegir sigrar. Síð-
asta sumar var mitt fyrsta keppn-
issumar og það í heild sinni er núna
mjög eftirminnilegt. En þegar öllu
er á botninn hvolft er það lífið og
lífsstílinn sem fylgdi hjólreiðunum
sem hefur gefið mér mest.“
Hefurðu lent í háska?
„Mér leiðist ekkert fara hratt
og hraða fylgir ákveðin áhætta.
Ég hef tvisvar sinnum slasað mig
þannig að ég var úr leik í smá tíma.
Brotnaði frekar illa í svissnesku
ölpunum 2016, það tók smá toll en
gréri nú allt á endanum.“
Meiri nánd við dekkin
Elín var ekki ókunnug dekkjum
áður en hjólamennskan kom til
sögunnar en samhliða henni fór
áhugi hennar á dekkjum vaxandi.
Skipti nánast oftar um dekk en föt
Elín Björg
Björns-
dóttir kolféll
fyrir hjóla-
mennskunni.
Hún byrjaði að
keppa síðasta
sumar og tók
þátt í fjölda
keppna en í
sumar mun hún
keppa undir
merkjum hjól-
reiðafélagsins
Tinds.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Elín í Þórs-
mörk á „basic
leikdekk jum“.
MYND/MAGNEA
MAGNÚSDÓTTIR
Léttari og fín dekk sem henta vel á
klappir. MYND/MAGNEA MAGNÚSDÓTTIR
Dekkjaviðgerð í miðri Enduro-
keppni 2020. MYND/SIMBI SÆVARS
4 kynningarblað 20. apríl 2021 ÞRIÐJUDAGURSUMARDEKK