Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nov. 2020, Síða 4
4http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2020
aett@aett.is
gengið í arf frá móður til dóttur frá árinu 1870 til
2007, en þá færðu systurnar Bergljót, Hrafnhildur,
Valborg Elísabet og Herdís Dröfn Baldvinsdætur
Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi hann að gjöf til
minningar um móður sína, Kristínu Sigurðardóttur. Sú
Kristín var jafnframt barnabarn Kristínar Jónsdóttur
sem upphaflega saumaði skautbúninginn.
Skautbúningurinn var alltaf í notkun innan fjöl-
skyldunnar, en mest við hátíðleg tækifæri, svo sem
við giftingar og útskriftir. Árið 1992, á þjóðhátíðar-
degi Íslendinga, klæddist Fjallkonan í Kópavogi bún-
ingnum og möttlinum og var glæsileg að sjá, þegar
hún flutti fjallkonuræðuna. Þetta var mikill heiður og
að sama skapi stóð þessi fallegi búningur undir öll-
um væntingum, því hvert spor sem Kristín Jónsdóttir
tók var vandað og heldur enn, um það bil 170 árum
seinna.
Kristín gengur í hjónaband
Þann 15. júní 1872 giftist Kristín Gunnlaugi Þorvaldi
Stefánssyni presti í Hvammi í Norðurárdal. Þorvaldur,
eins og hann var alltaf kallaður, fæddist 8. apríl 1836,
og var því 14 árum eldri en Kristín. Faðir Þorvaldar var
Stefán Þorvaldsson, sem kominn var af hinum þekkta
Presta-Högna, en hann feðraði átta syni sem allir urðu
prestar. Afi Þorvaldar var Böðvar Þorvaldsson, stund-
um kallaður hinn mikli ættfaðir, en frá honum komu
flestir embættismannasynir er gengu menntaveginn á
19. öld.
Þorvaldur var vel menntaður, fór ungur til náms í
Reykjavíkurskóla, 14 ára gamall, og varð stúdent 21
árs. Aðeins 23 ára gamall var hann kominn með prests-
próf. Þá fór hann að Litla Hrauni við Eyrarbakka sem
kennari einn vetur. Árið 1861 fékk Þorvaldur brauðið
Nesþing og sat þar til ársins 1867, er hann var vígð-
ur til Hvamms í Norðurárdal, þar sem hann var til
æviloka. Þorvaldur hafði áður verið giftur Valborgu
Elísabetu Sveinbjarnardóttur, dóttur Sveinbjarnar
Egilssonar rektors á Bessastöðum á Álftanesi, en hún
lést af barnsförum er sonur þeirra fæddist árið 1870.
Sonur Þorvaldar og Valborgar var Benedikt Gröndal,
bæjarfógetaskrifari og skáld.
Kristín var nú orðin bæði húsmóðir og nýja prests-
maddaman í Hvammi, og hafði því tekið sér stórt
verkefni á hendur aðeins 22 ára gömul. Í stað þess
að vera eingöngu dóttir móður sinnar og vinna og
starfa í skjóli hennar, bar hún nú sjálf alla ábyrgð.
Kristín hafði ekki setið lengi í festum, því fyrri kona
Þorvaldar hafði látist af barnsförum 9. ágúst 1870, er
hún eignaðist Benedikt, og þau Þorvaldur og Kristín
giftust 15. júní 1872. Benedikt var því rétt tæplega
tveggja ára þegar hún kom inn á heimilið.
Kristín var ekki langskólagengin, frekar en stöllur
Þórdís Björt
Sigþórsdóttir
skrýðist hér
skautbúningn-
um í brúðkaupi
sínu, þar sem hún
gengur að eiga
Einar Kristinsson.
Þórdís Björt er
beinn afkom-
andi Kristínar
Jónsdóttur í fimmta
kvenlið.
Sigrún Erna Sævarsdóttir skrýðist hér skautbúningi
Kristínar, formóður sinnar, og möttli, en Sigrún Erna
er beinn afkomandi Kristínar Jónsdóttur í fimmta
kvenlið.
Fjallkonan Hrefna Hallgrímsdóttir í Kópavogi árið 1998
skrýðist hér skautbúningnum sem Kristín Jónsdóttir
saumaði sér, þegar hún sat í festum og beið þess að
ganga að eiga Gunnlaug Þorvald Stefánsson prest að
Hvammi í Norðurárdal.