Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nóv. 2020, Blaðsíða 10
10http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2020
aett@aett.is
Þorsteinn fær Steinunnar
Nokkru eftir að Þorsteinn kom heim frá Danmörku,
vildi hann fara að eiga með sig sjálfur og stofna sitt
eigið heimili. Í Drangshlíð undir Eyjafjöllum, var um
þessar mundir ein sú álitlegasta stúlka þar í sveit, var
hún öllum kvenlegum kostum búin, sem eina stúlku
má prýða. Þessi stúlka var Steinunn Jónsdóttir, hins
ríka, Björnssonar í Drangshlíð, og var það móður-
nafnið hans og í miklu eftirlæti. Jón hefur víst ekki
ætlað að gefa hana neinu smámenni.
Hér var því í mikið ráðist hjá Þorsteini. Þó að hann
væri myndarlegur og stórættaður, var hann fátækur.
Steingrímur Jónsson prófastur fór með frænda sín-
um, Þorsteini, að Drangshlíð og studdi mál hans við
Jón Björnsson. Gekk allt að óskum. Þau Steinunn
Jónsdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson giftust og byrj-
uðu búskap í Vatnsdal í Fljótshlíð. Þeim búnaðist
vel og urðu stórefnuð. Börn þeirra öll eru fædd í
Vatnsdal.
Börnin
1. Þuríður f. 7. 8. 1822, átti Guðmund Magnússon,
þau bjuggu í Stekkholti.
2. Steinunn f. 11. 10. 1823 d. 7. 3. 1824.
3. Jón Collin f. 9. 11. 1824, átti Kristínu Árnadóttur,
þau bjuggu í Hrauntúni og síðan í Úthlíð.
4. Þórunn f. 15. 2. 1826 d. 29. 8. 1826.
5. Auðbjörg f. 15. 4. 1827 d. 20. 4. 1827.
6. Auðbjörg f. 11. 11. 1828, átti Vigfús Guðmundsson
smið, þau áttu 16 börn. Vigfús deyr 1875.
Auðbjörg flyst vestur um haf 69 ára og dó þar 96
ára.
7. Þórunn f. 22. 4. 1830, átti Sigurð Eyjólfsson frá
Steig. Þau voru bræðrabörn.
8. Erlendur f. 27. 4. 1831, átti Ingveldi Árnadóttur.
Þau bjuggu í Leirvogstungu.
9. Guðrún f. 5. 9. 1832, átti Guðmund Ólafsson.
Þau voru systrabörn.
10. Þorsteinn f. 22. 9. 1834, átti Guðlaugu Stefáns-
dóttur. Þau bjuggu í Breiðumýrarholti við
Stokkseyri.
11. Þorvaldur f. 20. 11. 1835 d. 25. 11. 1835.
12. Margrét f. 24. 4. 1838, átti Guðmund Guð-
mundsson frá Efstadal.
Úthlíðarárin
Árið 1841 fluttu þau hjónin, Þorsteinn og Steinunn,
að Úthlíð og keyptu Úthlíðartorfuna, ásamt Stekkholti
og Hrauntúni. Borgaði Þorsteinn allt út í peningum.
Þeim hjónum búnaðist vel í Úthlíð og ekki minnk-
aði auðurinn á meðan Steinunnar naut við. Steinunn
Jónsdóttir andaðist 17. 7. 1846, aðeins 52 ára, úr
barnaveiki. Steinunn hafði verið frábær kona, ástrík
móðir og góð hjúum sínum.
Þegar Steinunn fæddist var hjá foreldrum hennar
stúlka um fermingu, Auðbjörg Sigurðardóttir. Var hún
samtíða Steinunni alla tíð og dó hjá henni í Vatnsdal
um 1840. Auðbjörg hafði svo mikla ást á Steinunni
að hún vildi ekki við hana skilja, og þegar börn
Steinunnar fæddust, tók hún ástfóstri við þau. Tvær
dætur sínar skírði Steinunn Auðbjargarnafninu.
Í Úthlíðarrétt
Þorsteinn í Úthlíð var mikill fjármaður og hafði margt
fé í Úthlíð eftir að hann fluttist þangað. Það var ein-
hverju sinni við vorréttir þegar rúning fór fram í
Úthlíðarrétt, að nokkuð af óskilafé slæddist með fé
Úthlíðinga. Nokkrir bændur úr nágrenninu voru við
réttina. Þá kom það fyrir að Þorsteinn í Úthlíð og
fátækur bóndi deildu um illa markað lamb, taldi hvor
að hann ætti lambið. Þorsteinn reiddist, hann var bráð-
ur. Horfði til stórvandræða á milli þeirra. Eitthvert
Steingrímur Jónsson
biskup.
Þorsteinn Þorsteinsson
fór 14 ára að Odda
til frænda síns
Steingríms Jónssonar
prófasts og síðar
biskups. Þorsteinn,
faðir Þorsteins, og
Steingrímur voru syst-
kinabörn. Steingrímur
var Þorsteini einnig
innan handar við að fá
Steinunni fyrir konu.
Öll tólf börn Þorsteins og Steinunnar fæddust í Vatnsdal
á árunum 1822-1838.
Gamli bærinn í Úthlíð, 1930, í túninu þar sem hann stóð
í um þúsund ár. Þorsteinn og Steinunn kona hans keyptu
Úthlíðartorfuna, 1841, ásamt Stekkholti og Hrauntúni.
Borgaði Þorsteinn allt út í peningum. Teikning Gísli
Sigurðsson.